Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 14. júní 2023

381/2018

Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Malí.

1. gr. Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja:

  1. ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem eru settar á grundvelli 41. gr. VII. kafla stofnskrár Sameinuðu þjóðanna,
  2. ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða
  3. ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir öryggisráðsins og framkvæmdanefnda þess eða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

  1. Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1775 frá 28. september 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.
    1.1 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/29 frá 9. janúar 2019 um breytingu ákvörðunar (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.1.
    1.2 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2019/1216 frá 17. júlí 2019 um breytingu ákvörðunar (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.2.
    1.3 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/9 frá 7. janúar 2020 um breytingu ákvörðunar (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.3.
    1.4 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/118 frá 27. janúar 2020 um breytingu ákvörðunar (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.4.
    1.5 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/2208 frá 13. desember 2021 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.5.
    1.6 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/157 frá 4. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.6.
    1.7 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2187 frá 8. nóvember 2022 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.7.
    1.8 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/726 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.8.
  2. Reglugerð ráðsins (ESB) 2017/1770 frá 28. september 2017 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 2.
    2.1 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (SSUÖ) 2020/8 frá 7. janúar 2020 um breytingu á reglugerð ráðsins (SSUÖ) 2017/1770 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 2.1.
    2.2 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (SSUÖ) 2020/116 frá 27. janúar 2020 um breytingu á reglugerð ráðsins (SSUÖ) 2017/1770 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 2.2.
    2.3 Reglugerð ráðsins (SSUÖ) 2021/2201 frá 13. desember 2021 um breytingu á reglugerð ráðsins (SSUÖ) 2017/1770 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 2.3.
    2.4 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (SSUÖ) 2022/156 frá 4. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð ráðsins (SSUÖ) 2017/1770 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 2.4.
    2.5 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (SSUÖ) 2022/2179 frá 8. nóvember 2022 um breytingu á reglugerð ráðsins (SSUÖ) 2017/1770 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 2.5.
    2.6 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/720 frá 31. mars 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.6.

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

3. gr. Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

  1. ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins ("EB", "ESB", "Bandalagsins" eða "sameiginlega markaðarins") eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,
  2. ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,
  3. tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,
  4. tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,
  5. tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,
  6. utanríkisráðuneytið er hið lögbæra stjórnvald á Íslandi, vefsetur með frekari upplýsingum er:
    https://www.stjornarradid.is/verkefni/utanrikismal/lagamal/thvingunaradgerdir/

4. gr. Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr. Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr. Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.