Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 18. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 5. mars 2024

380/2013

Reglugerð um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að auka öryggi í flugi með því að kveða á um tæknikröfur til fyrirtækja sem vinna við hönnun og framleiðslu á vörum, hlutum og búnaði, og að þau sanni getu sína og hæfni til að leysa af hendi þær skyldur sem tengjast réttindum þeirra. Jafnframt að réttbær yfirvöld samþykki ráðstafanir þar sem tilgreind eru skilyrði fyrir því að gefa út, viðhalda, breyta, ógilda tímabundið eða afturkalla vottorð sem staðfesta að þessar kröfur hafi verið uppfylltar.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til sameiginlegra tæknikrafna og stjórnsýslumeðferðar fyrir lofthæfi- og umhverfisvottun framleiðsluvara, hluta og búnaðar er varða:

  1. útgáfu tegundarvottorða, takmarkaðra tegundarvottorða, viðbótartegundarvottorða og breytinga á þessum vottorðum,
  2. útgáfu lofthæfivottorða, takmarkaðra lofthæfivottorða, flugleyfa og opinberra afhendingarvottorða (viðhaldsvottorða/framleiðsluvottorða),
  3. útgáfu samþykkis fyrir hönnun viðgerða,
  4. staðfestingu á að farið sé að umhverfisverndarkröfum,
  5. útgáfu hljóðstigsvottorða,
  6. auðkenni framleiðsluvara, hluta og búnaðar,
  7. vottun tiltekinna hluta og búnaðar,
  8. vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja og
  9. útgáfu lofthæfifyrirmæla.

3. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 748/2012 frá 3. ágúst 2012 um framkvæmdarreglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, skv. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 223/2012 frá 7. desember 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20, 28. mars 2013, bls. 173.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 7/2013 frá 8. janúar 2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 um framkvæmdarreglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 128/2013 frá 14. júní 2013. Reglugerðin er jafnframt birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37, 27. júní 2013, bls. 180.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 69/2014 frá 27. janúar 2014, sem breytir reglugerð (ESB) nr. 748/2012 um framkvæmdareglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 193/2014 frá 25. september 2014 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 193/2014 frá 25. september 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64 frá 30. október 2014, bls 344.
  4. Reglugerð (ESB) 2015/1039 frá 30. júní 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar flugprófanir, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 277 frá 30. október 2015. Reglugerðin er birt á bls. 534 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 74 frá 10. desember 2015.
  5. Reglugerð (ESB) 2016/5 frá 5. janúar 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar framkvæmd grunnkrafna um umhverfisvernd, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 56 frá 18. mars 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27 frá 12. maí 2016, bls. 723.
  6. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/2226 frá 23. desember 2020 um tiltekna þætti flugöryggis að því er varðar lok aðlögunartímabilsins sem kveðið er á um í samningnum um útgöngu Sameinaða konungsríkisins Stóra-Bretlands og Norður-Írlands úr Evrópusambandinu og Kjarnorkubandalagi Evrópu, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 243/2020 frá 30. desember 2020.
  7. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/699 frá 21. desember 2020 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar leiðbeiningar varðandi áframhaldandi lofthæfi, um framleiðslu á hlutum sem nota á meðan á viðhaldi stendur og um að taka tillit til þátta í eldri loftförum meðan á vottun stendur, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 257/2021 frá 11. nóvember 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71 frá 11. nóvember 2021, bls. 254.
  8. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/897 frá 12. mars 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar að fella inn í I. viðauka áhættumiðaða sannprófun á því að tilskildar kröfur hafi verið uppfylltar og framkvæma kröfur um umhverfisvernd, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 308-335.
  9. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/570 frá 28. janúar 2020 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar samræmingu á reglum um áframhaldandi lofthæfi loftfara og annarra framleiðsluvara, hluta og búnaðar til flugs við reglugerð (ESB) nr. 1321/2014, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 376-381.
  10. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1088 frá 7. apríl 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar uppfærslu tilvísana í kröfur um umhverfisvernd, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 127 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 403-406.
  11. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/201 frá 10. desember 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar stjórnunarkerfi og tilkynningarkerfi um atvik, sem hönnunar- og framleiðslufyrirtæki eiga að koma á fót, sem og um verklagsreglur sem Flugöryggisstofnunin skal beita og um leiðréttingu þeirrar reglugerðar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 129/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 1041-1074.
  12. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/203 frá 14. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar stjórnunarkerfi og tilkynningarkerfi um atvik, sem lögbær yfirvöld eiga að koma á fót, og um leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar útgáfu lofthæfistaðfestingarvottorða, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 130 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 418-431.
  13. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1253 frá 19. júlí 2022 um leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar undanþágur frá tilteknum kröfum sem innleiddar voru með framseldri reglugerð (ESB) 2022/201, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 131 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 1075-1076.
  14. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1358 frá 2. júní 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar framkvæmd hóflegri krafna fyrir loftför sem notuð eru í sport- og tómstundaflugi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 132 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 45 frá 15. júní 2023, bls. 156-247.
  15. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1361 frá 28. júlí 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar vottunar-, eftirlits- og framfylgdarverkefni lögbærra yfirvalda við framkvæmd reglnanna varðandi fyrirtæki sem vinna við hönnun og framleiðslu loftfara sem notuð eru í sport- og tómstundaflugi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 133/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 432-449.

4. gr. Viðurlög.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða sektum eða fangelsi allt að 5 árum í samræmi við viðurlagaákvæði XIII. kafla laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr. og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samhliða fellur úr gildi reglugerð nr. 205/2007 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, með síðari breytingum.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.