REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 548, 17. október 1995, um þorskfisknet.
1. gr.
2. mgr. 2. gr. orðist svo: Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. þessarar greinar er heimilt að leggja þorskfisknet með 5 1/2 þumlunga riðli (139,7 mm) fyrir Suður- og Vesturlandi. Að austan markast svæðið af línu, sem dregin er réttvísandi suður frá Stokksnesi. Að vestan markast svæðið af 65°10'N.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 81, 31. maí 1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 13. júní 1997. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 435, 7. ágúst 1996, um breytingu á reglugerð nr. 548, 17. október 1995, um þorskfisknet.
Sjávarútvegsráðuneytinu, 5. júní 1997.
Þorsteinn Pálsson.
Árni Kolbeinsson.