Sjávarútvegsráðuneyti

498/1998

Reglugerð um verndun smáfisks við tog- og dragnótaveiðar fyrir Suðausturlandi. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um verndun smáfisks við tog- og dragnótaveiðar fyrir Suðausturlandi.

1. gr.

            Allar veiðar með fiskivörpu og dragnót eru bannaðar á svæði fyrir Suðausturlandi, sem markast af línu, sem dregin er um eftirgreinda punkta:

1.

64°23,90'N - 14°28,00'V

19.

63°23,60'N - 16°10,00'V

2.

64°33,00'N - 13°23,00'V

20.

63°23,40'N - 16°16,60'V

3.

64°33,00'N - 12°40,00'V

21.

63°21,80'N - 16°33,70'V

4.

64°25,00'N - 12°34,00'V

22.

63°21,40'N - 16°56,00'V

5.

64°16,00'N - 12°46,80'V

23.

63°18,70'N - 16°59,70'V

6.

64°08,00'N - 13°02,55'V

24.

63°16,80'N - 17°10,60'V

7.

64°05,76'N - 13°14,40'V

25.

63°15,00'N - 17°25,30'V

8.

63°54,00'N - 14°11,00'V

26.

63°14,50'N - 17°44,20'V

9.

63°50,30'N - 14°07,80'V

27.

63°12,70'N - 17°55,00'V

10.

63°48,00'N - 14°07,20'V

28.

63°11,90'N - 18°04,90'V

11.

63°36,60'N - 14°36,30'V

29.

63°12,80'N - 18°13,10'V

12.

63°41,10'N - 14°38,20'V

30.

63°13,35'N - 18°30,00'V

13.

63°43,50'N - 14°42,40'V

31.

63°16,00'N - 18°54,00'V

14.

63°36,30'N - 14°52,40'V

32.

63°20,00'N - 19°20,00'V

15.

63°31,50'N - 15°21,70'V

33.

63°21,60'N - 19°39,50'V

16.

63°33,80'N - 15°26,30'V

34.

63°16,00'N - 20°02,50'V

17.

63°30,90'N - 15°40,80'V

35.

63°16,00'N - 20°22,00'V

18.

63°29,10'N - 15°41,30'V

og þaðan réttvísandi 016° til lands.

 

Að norðan markast svæðið af fjörumarki.

2. gr.

            Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. eru eftirgreindar veiðar heimilar á svæðinu:

A.     Veiðar með fiskivörpu, enda sé varpan búin smáfiskaskilju í samræmi við ákvæði viðauka við reglugerð nr. 486, 4. ágúst 1998, um gerð og útbúnað smáfiskaskilju.

B.     Til 31. desember 1998 eru veiðar með fiskivörpu heimilar þeim togbátum sem taka vörpuna inn á síðunni, enda séu vörpur þeirra búnar leggglugga.

C.     Dragnótaveiðar, þeim bátum sem tilskilin leyfi hafa, enda sé dragnótin búin leggglugga.

3. gr.

            Heimildir til veiða með fiskivörpu á framangreindu svæði takmarkast af ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

4. gr.

            Legggluggi, samkvæmt 2. gr., er netstykki, sem skorið er á legg og komið fyrir á efra byrði pokans (belgsins) þannig:

1.      Lengd gluggans skal minnst vera 4 metrar.

2.      Aftari jaðar gluggans skal vera mest 5 metrum frá pokaenda.

 

3.      Þegar glugginn er saumaður við upptöku pokans (belgsins) skal taka tvær upptökur á móti einum legg. Lengdarhliðar gluggans skulu festar slétt við neðra byrði í leisi pokans (belgsins).

4.         Möskvastærð í glugganetinu skal ekki vera minni en möskvastærð riðilsins í pokanum. Séu veiðar stundaðar með leggglugga skal lágmarksmöskvastærð gluggastykkisins og þar fyrir aftan vera 135 mm.

5. gr.

            Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

6. gr.

            Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 1. september 1998 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma er felld úr gildi reglugerð nr. 6, 9. janúar 1998, um verndun smáfisks við tog- og dragnótaveiðar fyrir Suðausturlandi með síðari breytingum.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 12. ágúst 1998.

Þorsteinn Pálsson.

Árni Kolbeinsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica