Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

374/2010

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 279/2007 um breytingar í viðauka II með tilskipun 2005/36/EB um viðurkenningu á menntun og hæfi í samræmi við ákvæði 11. gr. c (ii).

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 95/2009 frá 25. september 2009, gildir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB), nr. 279/2009 frá 6. apríl 2009, um breytingar í viðauka II með tilskipun 2005/36/EB um viðurkenningu á menntun og hæfi í samræmi við ákvæði 11. gr. c (ii).

2. gr.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 21, 17. árg., bls. 71.

3. gr.

Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 279/2009 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 9. gr. laga nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 27. apríl 2010.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.