Umhverfisráðuneyti

365/2012

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2008 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni („REACH“). - Brottfallin

1. gr.

Við 8. gr. bætast fjórir nýir stafliðir; h-, i-, j- og k-liður, sem orðast svo:

h)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 143/2011 frá 17. febrúar 2011 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 116/2011, 21. október 2011. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12 frá 1. mars 2012, 2012/EES/12/24, bls. 207-211.

i)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 207/2011 frá 2. mars 2011 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), er snertir XVII. viðauka við hana (pentabrómafleiða af dífenýleter og perflúoroktansúlfónöt (PFOS)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 116/2011, 21. október 2011. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12 frá 1. mars 2012, 2012/EES/12/25, bls. 212-213.

j)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 252/2011 frá 15. mars 2011 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)). Reglugerðin er birt í fylgiskjali við reglugerð þessa.

k)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 253/2011 frá 15. mars 2011 um breytingu á XIII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir, að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)) sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 130/2011, 2. desember 2011. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12 frá 1. mars 2012, 2012/EES/12/36, bls. 297-302.



2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 4. gr. laga nr. 45/2008, um efni og efnablöndur og öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 11. apríl 2012.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica