Samgönguráðuneyti

56/1989

Hafnarreglugerð fyrir Ísafjarðarhöfn. - Brottfallin

HAFNARREGLUGERÐ

fyrir Ísafjarðarhöfn.

 

I. KAFLI

Höfnin og stjórn hennar.

1. gr.

Takmörk hafnarinnar.

1.1     Ísafjarðarhöfn takmarkast af línu sem er dregin frá Arnarnestá í Skarfasker. Höfnin skiptist í ytri og innri höfn.

1.2     Innri höfn telst allt hafnarsvæðið innan marka línu úr Norðurtanga þvert yfir Skutulsfjörð og 150 m radíus umhverfis Hnífsdalsbryggju.

1.3     Land Ísafjarðarhafnar markast af eftirfarandi línu: Frá nyrðri enda Bátahafnar í beina línu að gatnamótum Aðalstrætis og Sundstrætis og þaðan eftir syðri brún Sundstrætis til norðurs að sjó við nyrðri enda Mávagarðs. Hnífsdalsbryggja: Takmörk að sunnan Hvíldarsker, að norðan landamerki utan Skeljavíkur og lína milli þessara tveggja 30 metrum neðan við gamla vegarstæðið. Sementsbryggja: Að Skutulsfjarðarbraut og 10 metrar til norðurs og suðurs.

1.4     Höfnin skiptist í: Ásgeirsbakka, Bátahöfn, Sundahöfn, Hnífsdalsbryggju og Sementsbryggju. Gera þarf ráð fyrir Smábátahöfn.

1.5     Landsvæði hafnarinnar skiptist í: Hafnarbakka og bryggjur. Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði. Götur. Iðnaðar- og baksvæði.

1.6     Bæjarstjórn Ísafjarðarkaupstaðar hefur með höndum úthlutun lóða á hafnarsvæði að fenginni tillögu hafnarstjórnar.

 

2. gr.

Stjórn hafnarinnar.

2.1     Ísafjarðarkaupstaður er eigandi hafnarinnar og bæjarstjórn fer með stjórn hafnarmála undir yfirumsjón samgönguráðuneytisins.

2.2     Hafnarstjórn fer með framkvæmd hafnarmála í umboði bæjarstjórnar. Hafnarstjórn skal skipuð 5 fulltrúum, sem bæjarstjórn kýs og jafnmörgum til vara. Minnst tveir aðalfulltrúar í hafnarstjórn skulu vera aðalmenn í bæjarstjórn. Kjörtímabil hafnarstjórnar er hið sama og bæjarstjórnar.

2.3          Bæjarstjórn kýs formann hafnarstjórnar, en hún skiptir að öðru leyti með sér verkum.

2.4          Bæjarstjóri gegnir störfum hafnarstjóra, nema bæjarstjórn ákveði annað.

2.5     Auk hinna kjörnu fulltrúa eiga bæjarstjóri og hafnarvörður sæti í hafnarstjórn með málfrelsi og tillögurétt.

 

3. gr.

Hlutverk og valdsvið hafnarstjórnar.

3.1     Hafnarstjórn er ábyrg fyrir fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnarinnar. Hún ákveður gjaldskrá í samræmi við ákvæði 13. gr. hafnalaga, gerir fjárhagsáætlun fyrir hafnarsjóð, sem bæjarstjórn skal staðfesta. Hafnarstjórn skal leita staðfestingar bæjarstjórnar á lántökum og öðrum fjárskuldbindingum til langs tíma.

3.2     Hafnarstjórn gerir tillögu um: Ráðningu fastra starfsmanna, sbr. 5. gr.  Rekstur hafnarinnar, svo sem ráðstöfun á aðstöðu þ.m.t. leiga á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar. Leyfisveitingar til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefur vald til að banna eða takmarka not hafnarsvæða fyrir starfsemi, er hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.

3.3     Byggingamál og skipulagsmál hafnarinnar, þ.á.m. innkaup og verksamningar, skulu hljóta umfjöllun í hafnarstjórn áður en þau eru lögð fyrir bæjarstjórn. Hafnarstjórn hefur með höndum eftirlit með byggingu mannvirkja á hafnarsvæðinu, sem eru undanþegin ákvæðum byggingarlaga nr. 54/1978.

 

4. gr.

Hlutverk hafnarstjóra.

4.1     Hafnarstjóri fer með daglega stjórn hafnarinnar í umboði hafnarstjórnar. Hafnarstjóri undirbýr má1 sem leggja á fyrir hafnarstjórn í samráði við formann hafnarstjórnar og veitir viðtöku erindum til hennar. Hafnarstjóri sér um framkvæmd samþykkta hafnarstjórnar og veitir henni og bæjarstjórn upplýsingar um málefni hafnarinnar. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs.

4.2     Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnarreglugerðar og fara að öðru leyti eftir samþykktum hafnarstjórnar og bæjarstjórnar.

4.3     Hafnarstjóri sér um, að gætt sé reglu á höfninni og á landi hennar. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans, eða þeirra sem harm felur slík störf.

 

5. gr.

Hlutverk hafnarvarðar.

5.1     Hafnarstjórn gerir tillögu um ráðningu hafnarvarðar og annarra fastra starfsmanna hafnarinnar svo margra sem þurfa þykir. Vikukaupsmenn og fólk til afleysinga ræður hafnarstjóri.

5.2     Hafnarstarfsmenn, sem hafa umsjón með eignum hafnarinnar, gæta reglu og sinna skipaþjónustu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar.

5.3     Starfsmenn hafnarinnar skulu gæta allrar kurteisi í starfi. Þyki einhverjum sér óréttur gerður af starfsmönnum hafnarinnar, getur kann kært það fyrir hafnarstjórn en skipun starfsmannsins ber að hlýða þegar í stað.

 

II. KAFLI

Umferð skipa.

 

6. gr.

Skilgreining á skipi.

6.1     Skip telst í reglugerð þessari sérhvert fljótandi far, sem nota má sem flutningatæki, dvalarstað, vinnustað, framleiðslustað eða geymslustað.

 

7. gr.

Almennar reglur við komu og brottför.

7.1     Við komu og brottför skulu farskip hafa þjóðfána við hún.

7.2     Þjónusta við skip er unnin af hafnarverði í umboði hafnarstjóra. Skip skulu við komu og brottför og siglingu um hafnarsvæðið hafa opna talstöð á viðskiptabylgju hafnarinnar.

7.3     Sérhvert farskip skal boða áætlaða komu sína (ETA) til hafnarinnar með fjarskiptasambandi eða gegnum umboðsmann með minnst 24 klst. fyrirvara. Tilkynna skal brottför með minnst 3ja klst. fyrirvara.

7.4     Skipstjóri skal við komu til hafnar gefa hafnarverði eftirfarandi upplýsingar: Skipsnafn, heimahöfn, stærð samkvæmt mælibréfi, djúpristu og síðasta viðkomustað. Nafn skipstjóra. Stærð áhafnar og fjölda farþega. Tegund og magn farms. Um hættulegan flutning, tegund og magn. Um hugsanlega sjúkdóma um borð. Nafn umboðsmanns. Reglur þessar gilda ekki um herskip, varðskip, rannsóknarskip og fiskiskip né um áætlunarskip nema eftir því sem við á.

7.5     Búnaður skipa skal uppfylla kröfur alþjóðasamþykkta, sem íslensk stjórnvöld hafa staðfest svo og sérreglur Siglingamálastofnunar ríkisins. Skipstjórnarmenn skulu sýna hafnarstarfsmönnum, ef óskað er, skírteini um fullnægjandi búnað skipa sinna.

 

8. gr.

Hafnsaga og önnur þjónusta við skip.

8.1     Sérhvert skip, sem ætlar til Ísafjarðarhafnar og nota skal hafnsögumann, skal gera boð um það til hafnsögumanns með minnst 3ja klst. fyrirvara. Vísar þá hafnsögumaður skipinu leið til hafnar og má eigi yfirgefa það án samþykkis skipstjóra, fyrr en skipið er lagst við festar á höfninni. Heimilt er hafnsögumanni, meðan hann hefur ekki lokið starfi sínu, að banna hverjum þeim, sem ekki á lögmætt erindi, að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð, ber skipinu að sjá honum fyrir fæði.

8.2     Ekkert íslenskt fiskiskip, sem er stærra en 500 brúttórúmlestir og ekkert íslenskt farmskip og ekkert erlent skip má fara inn í innri höfnina eða út úr henni án leiðsögumanns, sem hafnarvörður lætur skipinu í té. Hafnarvörður getur veitt undanþágu frá ákvæði þessu.

 

9. gr.

Umferð um höfnina.

9.1     Skip, sem ekki hefur hafnsögumann um borð, skal með talstöðvarsambandi við hafnarvörð fá upplýsingar um hvar binda megi skipið, áður en haldið er inn á innri höfn. Óheimilt er að binda skip annarsstaðar en þar sem starfsmenn hafnarinnar vísa til.

9.2     Á innri höfninni má ekki sigla skipum hraðar en svarar 4 sjómílum á klst., en þó ekki hraðar en aðstæður og góð sjómennska leyfa. Sérstaka aðgát skal sýna þegar farið er um svæði, þar sem unnið er að dýpkun, köfun og þess háttar enda skal við slík störf hafa uppi viðeigandi merki.

9.3     Skip mega ekki láta vélar ganga of svo miklu afli að öðrum skipum eða hafnarmannvirkjum stafi hætta af því.

9.4          Bannað er að blása í flautur og lúðra á innri höfninni, nema umferð gefi tilefni til þess.

9.5          Skylt er að gæta allrar varúðar í meðferð elds og ljósa í skipum á höfninni.

9.6     Sérhvert skip, sem ekki er bundið við bryggju eða hafnarbakka, skal hafa uppi fyrirskipuð ljós og dagmerki.

9.7     Skemmti- og smábátar, þar með taldir ára- og seglbátar, skulu svo sem frekast er unnt forðast siglingaleiðir stærri skipa, sem eru á leið til eða frá höfninni. Ennfremur skal sýna sérstaka aðgæslu, er skip njóta aðstoðar dráttarbáta eða eru að leggja að og frá viðlegu.

9.8     Ekkert skip má liggja við dufl eða akkeri á innri höfninni, nema með leyfi hafnarvarðar.

 

10. gr.

Skip í viðlegu.

10.1   Skip telst í viðlegu, er það liggur við hafnarbakka, bryggju eða föst legufæri og er í eða bíður eftir afgreiðslu eða þjónustu.

10.2   Skip hljóta viðlegu í sömu röð og þau koma til hafnar. Undantekin eru skip, sem hafa fastar viðlegur eða umsamin forgangsafnot af hafnarbakka og skemmtiferðaskip.

10.3   Ekki má festa skipum við hafnarbakka eða bryggju, nema við festarhringa eða festarstólpa. Festum skal þannig komið fyrir að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka og skulu festar auðkenndar með veifum eða öðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarverði þessa ekki nægilega gætt, getur kann krafist, að hætt sé úr því tafarlaust. Skylt er að hafa hlífar milli skips og hafnarbakka eða bryggju ef hafnarvörður krefst þess. Ekki má krækja hökum í bryggjur eða hafnarbakka. Ekki mega skip hleypa vatni á bryggju eða hafnarbakka, hvorki við þvott á þilfari né heldur, er þau hleypa burt vatni eða á annan hátt, heldur skulu þau girða svo fyrir með hlífum, að vatnið fari beint í höfnina en komist eigi á bryggjuna eða hafnarbakkann.

10.4   Þegar búið er að leggja skipi við hafnarbakka, má ekki flytja það innan hafnar án leyfis hafnarvarðar, en skyldur er skipstjóri að flytja skipið, ef hafnarvörður skipar svo fyrir. Skip, sem ekki er verið að lesta eða losa, eða ekki eru í rekstri, mega aldrei liggja svo í höfninni, að þau tálmi vinnu við önnur skip og skal skylt að hlýða boðum hafnarinnar um flutning þeirra. Liggi skip á innri höfninni án þess að nokkuð sé unnið við það, getur hafnarvörður krafist þess, að það sé tekið burt. Færist hlutaðeigandi undan að færa skipið samkvæmt ákvæðum þessa töluliðs eða dragist flutningur þess yfir þann tíma, er hafnarvörður hefur fyrirskipað, er hafnarverði heimilt að láta flytja skipið á kostnað og ábyrgð skipseiganda.

10.1   Í sérhverju skipi skal jafnan vera einn maður að minnsta kosti, er tekið geti á móti skipunum starfsmanna hafnarinnar og framkvæmt þær. Skal harm sjá um að óviðkomandi aðilar hafi ekki aðgang að skipinu og ber eigandi fulla ábyrgð á öllu því tjóni, er leiða kann of vanrækslu í þessu efni. Heimilt er hafnarverði að fallast á gæslu sérstakra öryggisvarða, enda séu hjá skipaþjónustu nafn skipstjórnarmanna, sem kalla má út vegna veðurs eða annarra orsaka.

10.6   Hafnarvörður ákveður legur fyrir skip 12 brl. og minni við viðeigandi mannvirki eftir því sem rými leyfir. Þegar skip er sjósett eða siga í höfn, skal eigandi tilkynna það hafnarverði. Skip þessi eru á ábyrgð eigenda, sama hvort þau eru á floti í höfninni eða á landi hennar. Heimilt er að fela félögum smábátaeigenda umsýslu á ákveðnum svæðum undir eftirliti hafnarvarðar samkvæmt nánari reglum.

 

11. gr.

Skip í lægi.

11.1       Skip telst í lægi er það liggur fyrir akkeri eða öðrum legufærum og er ekki í rekstri.

11.2       Skipum, sem leggja skal í lægi, má aðeins leggja á þeim stöðum, er hafnarvörður leyfir. Skipum skal lagt undir umsjá hafnarvarðar og legufæri ákveðin í samráði við harm. Eftirlit og viðhald legufæra er á ábyrgð skipseiganda. Meðan skip liggur mannlaust í lægi, skal ekki sjaldnar en tvisvar í mánuði farið út í það til að líta eftir, hvort legufæri eða annað hafi haggast eða bilað, og ef svo reynist, skal lagfæra það svo fljótt sem auðið er. Áður en skipstjóri fer af skipinu, skal hann skriflega tilgreina hafnarverði siglingafróðan mann, sem búsettur sé á Ísafirði sem hafa skal umsjón skipsins á hendi. Beinir hafnarvörður til hans öllum fyrirskipunum sem skipið varðar. Sér kann um að þeim sé fullnægt. Verði dráttur á því skal hafnarvörður láta fullnægja þeim en skipseigandi greiði allan kostnað sem of því leiðir.

 

III. KAFLI

Afnot hafnarvirkja og landsvæða.

 

12. gr.

Lestun og losun, almennt.

12.1   Afnot hafnarvirkja og lands eru öllum heimil að fengnu leyfi hafnaryfirvalda og gegn greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá.

12.2   Hafnarstjórn ber enga ábyrgð á varningi eða öðrum eignum, sem geymdar eru á hafnarsvæðinu.

12.3   Við lestun og losun skal viðhafa fyllstu gætni til að koma í veg fyrir óeðlilegt slit mannvirkja og búnaðar. Ekki má draga þunga hluti eftir hafnarbökkum, né sturta varningi of bílum án eðlilegs hlífðarlags.

12.4   Hafnarvörður skal færa skrá yfir lyftu- og flutningatæki og annan tækjabúnað, sem notaður er við höfnina. Eigendur slíkra tækja skulu sækja um leyfi til notkunar þeirra á hafnarsvæðinu hjá hafnarverði, m.a. sökum þungatakmarkana á hafnarsvæðinu.

12.5   Óheimilt er að geyma tækjabúnað á hafnarsvæðinu án leyfis hafnaryfirvalda.

12.6   Þeir munir eða vörur sem skipað er upp eða láta á í skip, mega ekki liggja á bryggju, hafnarbakka eða annars staðar á landi hafnarinnar en á þeim stöðum, sem ætlaðir eru til geymslu, nema með sérstöku leyfi hafnarvarðar. Hafnarvörður getur flutt vörur og muni, sem geymdir eru í óleyfi, burt á kostnað og ábyrgð eiganda eða umboðsmanns hans.

12.7   Við lestun og losun á vikri, sandi, kolum og öðru þess háttar, er skylt að hafa nægilega sterkar hlífar milli skips og hafnarbakka svo að ekkert falli fyrir borð. Sé þessa eigi gætt, getur hafnarvörður stöðvað verkið uns hætt hefur verið úr því sem áfátt er.

12.8   Þegar lokið er lestun eða losun skal sá er séð hefur um lestun eða losun, láta ræsta bryggju þá eða hafnarbakka sem notuð hefur verið. Farist það fyrir skal hafnarvörður sjá um að það sé gert, en afgreiðslumaður skipsins greiði allan kostnað sem of því leiðir.

 

13. gr.

Meðferð eldfims og hættulegs varnings.

13.1   Skip sem flytja sprengiefni, eldfima vökva, lofttegundir undir þrýstingi (flöskugas) eða efni sem við vissar aðstæður valda eld- eða sprengihættu mega ekki koma inn á innri höfnina fyrr en leyfi hefur verið vent til þess. Skipstjóra eða umboðsmanni ber að tilkynna hafnarverði og slökkviliðsstjóra um farminn 24 klst. fyrir áætlaðan komutíma. Tilkynningarskyldan nær til efna sem samkvæmt International Maritime Dangerous Goods Code flokkast í flokka 1, 2, 3, 4, og 5. Í tilkynningu skal greina nafn á varningi, magn, pökkun og lestun. Sem dæmi um hættulegan varning má nefna: púður, dýnamít, geomit, hlaðnar patrónur, bensín, steinolíu, aceton, terpentínu, toluol, kosangas, kalciumkarbit, ammoniumnitrat, natríumklórat.

13.2   Losun á vörum sem um ræðir í þessari grein skal að jafnaði framkvæmd strax og skip hefur lagst að bryggju og á undan losun á öðrum varningi. Við lestun skal slíkur farmur lestaður síðast og skal skip láta úr höfn strax að lestun lokinni. Álíti hafnarvörður að hætta geti stafað of lestun eða losun eldfimrar vöru getur kann stöðvað verkið uns nauðsynlegar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar. Hlíta skal í einu og öllu ákvæðum brunamálasamþykktar fyrir Ísafjörð.

13.3   Skylt er að hafa öryggisvörð við skip sem er að lesta eða losa eldfimar vörur. Hafnarvörður getur ákveðið að lestun eða losun slíkrar vöru fari fram við sérstaka hafnarbakka þar sem tryggast er talið. Varningur skal geymdur á svæði sem hafnarvörður eða viðkomandi eftirlitsstofnun samþykkir. Setja skal sérstakar reglur um nánari framkvæmd og ákvæði þessarar greinar, sbr. IMO-Recommendation on save transport handling storage of dangerous substances in-port areas. Skip sem flytja eldfim efni skulu á daginn hafa uppi rautt flagg (merkjatákn B) á framsiglu en á nóttunni rautt ljósker. Í skipum sem flytja eldfim efni, má eigi kveikja eld eða ljós nema undir kötlum skipsins eða í eldavél skipsins og á lögboðnum ljóskerjum. Tóbaksreykingar eru bannaðar í þeim skipum og á því svæði, þar sem unnið er að fermingu eða affermingu eldfims varnings.

 

IV. KAFLI

Um hafnargjöld í Ísafjarðarhöfn.

 

14. gr.

Um hafnargjöld.

14.1   Gjöld til hafnarsjóðs skulu innheimt samkvæmt gjaldskrám er settar skulu í samræmi við ákvæði 13. gr. hafnalaga.

V. KAFLI

Ýmis ákvæði.

 

15. gr.

Löggæsla á hafnarsvæðinu, umferð og fleira.

15.1   Lögreglan á Ísafirði hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðinu.

15.2   Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga, er bannað að dvelja á landi hafnarinnar ef þeir með því tálma lestun og losun eða önnur störf sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers konar ökutækja um bryggjur, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði. Hafnarstjórn getur sett hraða- og þungatakmarkanir á hafnarsvæðinu. Fólk sem fer um hafnarsvæðið er þar á eigin áhættu og ábyrgð. Sund er bannað á hafnarsvæðinu án leyfis nema á sérstökum baðsvæðum.

15.3.  Bannað er að skjóta of byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða á henni. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðinu án leyfis.

15.4   Sand- eða malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðinu án leyfis. Fiskveiðar á hafnarsvæðinu mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu.

15.5   Hafnarverði skal þegar tilkynnt um allt það sem bjargað er í höfninni en harm gefur lögreglunni skýrslu um það.

 

16. gr.

Skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

16.1   Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar sem það að áliti hafnarvarðar tálmar greiðri notkun hafnarinnar skal færa það burt svo fljótt sem auðið er. Verði dráttur á því má hafnarvörður láta færa skipið burt á kostnað eigandans og er honum heimilt að láta selja skipið til lúkningar kostnaðinum ef nauðsyn krefur. Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis.

16.2   Ef skip, bátar, flutningatæki á landi eða annar búnaður er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og veldur óþrifnaði og hættu þá skal hafnarvörður fyrirskipa úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt má fjarlægja viðkomandi hlut á kostnað eiganda án nokkurrar skaðabótaskyldu.

 

17. gr.

Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

17.1   Engum úrgangi eða rusli má kasta í höfnina.

17.2   Bannaður er hvers konar hvalskurður í og við höfnina. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt inn í höfnina hvaltegundir, skipsflök eða neitt það, sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflunum eða óþægindum í höfninni nema leyfi hafnarvarðar komi til. Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíur, lýsi, olíusora eða annað sem mengun veldur. Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lagaákvæðum á hverjum tíma.

 

18. gr.

Beiðni um skilyrði fyrir þjónustu.

18.1   Allir þeir sem æskja afgreiðslu fyrir skip, láns á tækjum eða aðstoð á einn eða annan hátt hjá höfninni skulu snúa sér beint til skrifstofu hafnarinnar með beiðni þar að lútandi. Heimilt er hafnarverði að neita þeim aðilum um aðstoð eða afgreiðslu sem eru í vanskilum með gjöld til hafnarinnar.

 

19.gr.

Hverjum gefa skal fyrirmæli.

19.l    Hverja þá skipun sem samkvæmt reglugerð þessari má gefa skipi, skal gefa skipstjóra en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi og eigi heldur umboðsmaður hans, samkvæmt gr. 10.5. Ef stýrimaður er fjarverandi má gefa einhverjum öðrum of skipshöfninni skipunina og er það jafngilt sem skipstjóri hefði fengið skipunina sjálfur.

 

20. gr.

Um skaðabótaskyldu.

20.1   Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar eða áhöldum fer eftir almennum reglum. Ef samningum verður ekki við komið um skaðabætur, má ákveða þær af tveim óviðhöllum dómkvöddum mönnum. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats en gera skal það áður en 1 mánuður er liðinn frá því að matsgerð er lokið. Yfirmat skal framkvæmt of þremur óvilhöllum dómkvöddum mönnum. Kostnaðinn við yfirmat greiðir sá sem krafðist yfirmats ef það gengur honum ekki í vil.

20.2   Nú veldur skip skemmdum í höfninni eða skipstjóri verður brotlegur við ákvæði reglugerðar þessarar og er þá óheimilt að flytja skipið úr höfninni áður en málið er útkljáð nema fullnægjandi trygging sé sett fyrir greiðslu að dómi hafnarstjóra.

20.3   Hvers konar bótakröfum fylgir lögtaksréttur.

 

21. gr.

Brot, sektarákvæði og meðferð mála.

21.1   Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt almennum lögum. Sektirnar renna í hafnarsjóð Ísafjarðar. Til tryggingar sektum og vangoldnum gjöldum má leita kyrrsetningar sbr. 39. gr. hafnalaga.

21.2   Með má1 út of brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála. Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt hafnalögum nr. 69, 28. maí 1984, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Ísafjarðarkaupstað nr. 150/1975 og hafnarreglugerð fyrir Hnífsdalskauptún nr. 151/1952.

 

Samgönguráðuneytið, 8. febrúar 1989.

 

Steingrímur J. Sigfússon.

Helgi Jóhannesson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica