Samgönguráðuneyti

197/1974

Hafnarreglugerð fyrir Kópavogshöfn. - Brottfallin

I. KAFLI

TAKMÖRK HAFNARINNAR

 

1. gr.

Kópavogshöfn takmarkast landmegin af strandlengju lögsagnarumdæmisins. Sjávarmegin ræður mörkum:

Að norðan, vestan og sunnan lína frá mörkum Reykjavikur og Kópavogs í Fossvogi og umhverfis Kársnes að mörkum í Kópavogi. Þessi lina skal fylgja mörkum við lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, Bessastaðahrepps og Garðahrepps.

 

II. KAFLI

STJÓRN HAFNARINNAR

 

2. gr.

Bæjarstjórn Kópavogs hefur á hendi stjórn hafnarmálanna, undir yfirumsjón þess ráðuneytis, sem fer með hafnamál.

 

3. gr.

Framkvæmd hafnarmála og eftirlit með höfninni, skal fela hafnarstjórn. Hafnarstjórn skal skipuð 5 fulltrúum og 5 varafulltrúum, er bæjarstjórn kýs, 2 úr hópi bæjarfulltrúa og 3 utan bæjarstjórnar. Fulltrúa þessa skal kjósa leynilega með hlutfallskosningu, fulltrúa úr hópi bæjarfulltrúanna sér og fulltrúa utan bæjarstjórnar sér.

Kjörtímabil hafnarstjórnar er hið sama og bæjarráðs Kópavogs. Það er borgaraleg skylda að taka við kosningu í hafnarstjórn. Auk hinna kjörnu fulltrúa mætir hafnarstjóri á fundum hafnarstjórnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt.

Hafnarstjórn sér um viðhald og umbætur á höfninni, stýrir öllum framkvæmdum, er þar að lúta, og annast fjárhald hafnarinnar fyrir hönd bæjarstjórnar. Bæjarstjóri er hafnarstjóri, nema öðruvísi sé ákveðið af bæjarstjórn.

 

4. gr.

Daglegar framkvæmdir og eftirlit annast hafnarstjóri, undir umsjón hafnarstjórnar, fasta starfsmenn aðra ræður hafnarstjóri samkvæmt reglum bæjarins, svo marga, sem þurfa þykir.

 

III. KAFLI

ALMENN REGLA

 

5. gr.

Hafnarstjóri sér um, að gætt sé reglu á höfninni og landi hennar. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans eða þeirra, sem hann setur til að gæta reglu. Þyki einhverjum sér óréttur ger af starfsmönnum hafnarinnar, getur hann kært það fyrir hafnarstjóra, en skipun starfsmannsins ber að hlýða þegar í stað.

Starfsmenn hafnarinnar skulu gæti allrar kurteisi í starfi sínu.

 

6. gr.

Þeim, sent ekkert lögmætt erindi eiga, er bannað að dvelja á landi hafnarinnar, ef þeir með því tálma fermingu eða affermingu eða önnur störf, sem þar eru unnin.

Banna má ónauðsynlegan akstur hvers konar ökutækja um bryggjur og hafnarbakka.

 

7. gr.

Skylt er að gæta allrar vartíðar í meðferð elds og ljósa í skipum í höfninni. Í skipum, sem flytji eldfim efni, má eigi kveikja eld eða ljós nema undir kötlum skipsins og í eldavél skipsins og á lögboðnum ljóskerum. Tóbaksreykingar eru bannaðar í þeim skipum og á því svæði, þar seta unnið er að fermingu eða affermingu.

Bannað er að sjóða tjöru, bik, fernisolíu og annað, sem eldhætta getur stafað af, í skipum í höfninni, svo og landi hafnarinnar, nema með leyfi hafnarstjóra. Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða á henni. Þá er og skipum bannað að blása í flautur eða lúðra á höfninni, nema umferð gefi tilefni til þess.

 

8. gr.

Ekki má kasta í höfnina kjölfestu, ösku, dauðum fiski, matarleifum, fiskúrgangi, vírum, vöruleifum, umbúðum eða öðru þess háttar. Skal það flutt þangað, sem hafnarstjóri vísar til.

Ekki má láta renna í höfnina olíur eða vatn mengað olíum.

Þegar olía er látin í skip eða tekin tír því, skal þess gætt, að ekki renni neitt í höfnina, á bryggjur eða skipsþilfar.

 

IV. KAFLI

HAFNSAGA, LEGA SKIPS Á HÖFNINNI OG AFGREIHSLA ÞEIRRA

 

9. gr.

Skip telst í reglugerð þessari sérhvert fljótandi far.

 

10. gr.

Sérhvert skip, sem ætlar til Kópavogs og nota vill hafnsögumann, skal gera boð um það til skrifstofu hafnarinnar. Er hafnsögumanni skylt að fara til móts við skipið allt að 1 sjómílu undan Gróttutöngum, ef skipstjóri æskir þess. Vísar þá hafnsögumaður skipinu leið til hafnar og má eigi yfirgefa það án samþykkis skipstjóra, fyrr en skipið er lagst við festar á höfninni. Heimilt er hafnsögumanni, meðan hinn hefur ekki lokið starfi sínu að hanna hverjum þeim, sem ekki á lögmætt erindi, að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð, ber skipinu að sjá honum fyrir fæði.

 

11. gr.

Ef sjúkdómur er á skipinu eða ástæða þykir til að ætla, að sótthætta geti stafað af því, ber hafnsögumanni að sjá um, að fylgt sé reglum þeim, sem settar eru í lögum um varnir gegn því, að næmir sjúkdómar berist til Íslands.

 

12. gr.

Þegar skip, sent ekki hefur hafnsögumann um borð, kemur í höfnina, skal skipstjóri eða umboðsmaður skipsins tafarlaust snúa sér til hafnarskrifstofunnar, sem segir honum, hvar skipið megi liggja.

Ekkert íslenskt skip, sem er stærra en l00 brúttólestir, og ekkert erlent skip má fara inn í höfnina eða út tír henni, án leiðsögumanns, sem hafnarstjóri lætur skipinu í té. Hafnarstjóri getur vent undanþágu frá ákvæði þessu.

Skip, sem koma inn í höfnina án leiðsögumanns, skulu binda landfestar þar, sem starfsmenn hafnarinnar hafa vísað til.

Skip, sem ekki er verið að ferma eða afferma, eða ekkert er unnið við, mega aldrei liggja svo í höfninni, að þau tálmi vinnu við önnur skip, og skal skylt að hlýða boðum starfsmanna hafnarinnar um það, hvert þau skuli flutt. Liggi skip á höfninni, án þess að nokkuð sé unnið við það, getur hafnarstjóri krafist þess, að það sé tekið burtu. Ef ekki er orðið við þessu, hefur hafnarstjóri heimild til þess að láta leggja skipinu við legufæri eða taka það á land og ber skipseiganda að greiða allan kostnað þar að lútandi.

 

13. gr.

Þegar búið er að leggja skipi við festar, má ekki flytja það þaðan aftur án leyfis hafnarstjóra, en skyldur er skipstjóri að flytja skipið, ef hafnarstjóri skipar svo fyrir.

Færist hlutaðeigandi undan að færa skipið eða dragist flutningur þess yfir þann tíma, er hafnarstjóri hefur til tekið og fyrirskipað, er hafnarstjóra heimilt að láta flytja skipið á kostnað og ábyrgð hlutaðeiganda.

Brottfarartíma skips skal skipstjóri tilkynna skrifstofu hafnarinnar með að minnsta kosti 3 klukkustunda fyrirvara.

 

14. gr.

Ef nauðsyn ber til að skipum, sem fermd eru eða affermd við bryggju eða hafn­arbakka, sé lagt hverju við hliðina á öðru, er heimilt að flytja farm þeirra skipa, er utar liggja, yfir þilfar hinna á bjálkabrúm. Svo er og skipshöfn og farþegum þeirra skipa sem utan liggja, heimil nauðsynleg umferð um þilför skipa, er nær liggja.

15. gr.

Sérhverju skipi (að þeim undanskildum, sem hafa leyfi hafnarstjóra til að liggja mannlaus á höfninni) skal jafnan vera einn maður, að minnsta kosti, er tekið geti á móti skipunum starfsmanna hafnarinnar og framkvæmt þær, hvort heldur á að færa skipið eða gera eitthvað annað samkvæmt reglugerð þessari.

 

16. gr.

Ekkert skip má liggja við dufl eða akkeri á höfninni, nema með sérstöku leyfi hafnarstjóra. Eigi má heldur teppa umferð með taugum, strengjum eða köðlum, nema hafnarstjóri telji nauðsynlegt. Sérhvert skip, sem ekki er bundið við bryggju eða hafnarbakka, skal hafa uppi fyrirskipuð ljós og dagmerki.

 

17. gr.

Skip, sem koma inn í höfnina, skulu hafa að minnsta kosti eitt akkeri tilbúið í festarauga, og eigi skipað að leggjast við bryggju eða hafnarbakka, skal hliðarbátum, botnvörpuhlerum og þess háttar tækjum sveiflað inn fyrir borðstokkinn, brandar dregnir inn og rám snúið.

 

18. gr.

Eigi má festa skipum við hafnarbakka eða bryggjur, nema við festarhringana eða við festarstólpa, að tilvísun hafnarstjóra. Séu landfestar úr járni, skulu þær klæddar, þar sem þær hvíla á hafnarbakkanum og bryggjunni. Festum skal þannig komið fyrir, að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka og skulu festar auðkenndar með veifum eða öðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarstjóra þess ekki nægilega gætt, getur hann krafist, að hætt sé tír því tafarlaust.

Skylt er að hafa hlífar milli skips og hafnarbakka eða bryggju, ef hafnarstjóri krefst þess.

 

19. gr.

Ekki má krækja hökum í bryggjur eða hafnarbakka. Ekki mega skip hleypa vatni á bryggju eða hafnarbakka, hvorki við þvott á þilfari né heldur, er þau hleypa Burt vatni eða á annan hátt, heldur skulu þau girða svo fyrir með hlífum, eða vatnið fari beint í höfnina, en komist eigi á bryggjuna eða hafnarbakkann.

 

20. gr.

Skip mega ekki láta vélarnar gangs af svo miklu afli, að öðrum skipum eða hafnarmannvirkjum stafi hætta af því.

 

21. gr.

Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar, sent það, að áliti hafnarstjóra, tálmar greiðri notkun hafnarinnar, skal færa það burt svo fljótt, sem auðið er. Verði dráttur á því, má hafnarstjóri láta færa skipið Burt á kostnað eigandans, og er honum heimilt að láta selja skipið til lúkningar kostnaðinum, ef nauðsyn krefur.

 

22. gr.

Áður en kjölfesta er flutt í skip eða úr skipi, skal hafnarstjóra Bert viðvart, Ákveður hann, hvar það skuli fara fram.

Við uppskipun og útskipun á kjölfestu, sandi, kolum og öðru þess háttar, er skylt að hafa nægilega sterkar hlífar milli skipsins og hafnarbakkans, bryggjunnar eða bátanna, svo að ekkert falli fyrir borð. Sé þessa eigi gætt, getur hafnarstjóri stöðvað verkið, uns bætt hefur verið úr því, sem áfátt er.

Ekki má sálda kol á bryggju eða hafnarbakka. Skipstjóri skal sjá um, að kjöl­festa sú, sem flutt hefur verið á land úr skipi hans, sé þegar af stað flutt Burt af löndunarstaðnum þangað, sem hafnarstjóri vísar til.

23. gr.

Þegar lokið er fermingu eða affermingu, skal farmeigandi eða skipseigandi, ef þörf gerist, láta ræsta bryggju þá eða hafnarbakka, sem notuð hafa verið. Farist það fyrir, skal hafnarstjóri sjá um að það sé gert, en farmeigandi eða skipseigandi greiða allan kostnað, sem af því leiðir.

 

V. KAFLI

GEYMSLUSKIP OG SKIP, SEM LAGT ER Í LÆGI

 

24. gr.

Skip, sem ætluð eru til geymslu, mega ekki liggja á höfninni nema með sérstöku leyfi hafnarstjóra. Leyfið skal bundið því skilyrði, að eigandi skipsins 1átí taka skipið upp, ef það sekkur, eða sprengja það sundur, svo að það skemmi ekki höfnina, enda sé hafnarstjóra heimilt að 1áía framkvæma þetta á kostnað eigandans, ef dráttur verður á því af hans hálfu.

Hafnarstjóri ákveður legustað geymsluskipa og hefur umsjón með, þegar skipum er lagt, og skulu legufærin ákveðin í samráði víð hann.

Á skipum þessum séu að minnsta kosti tveir varðmenn, er hafnarstjóri tekur gilds, og skal tendra ljós á skipunum, sýna dagmerki og gera hljóðbendingar eftir þeim reglum, er settar eru í alþjóðasjóferðareglum um skip, sem liggja víð akkeri.      Eftirlit og viðhald legufæra er á ábyrgð skipseiganda.

 

25. gr.

Meðan skip liggur í 1ægí, skal ekki sjaldnar en tvisvar í mánuði farið út i það til þess að líta eftir, hvort legufæri eða annað hafi haggast eða bilað, og ef svo reynist, skal lagfæra það svo fljótt, sem auðið er.

Áður en skipstjóri fer af skipinu, skal hann skriflega tilgreina hafnarstjóra siglingafróðan mann, sem búsettur sé í Kópavogi, sem skal hafa umsjón skipsins á hendi. Beinir hafnarstjóri til hans öllum fyrirskipunum, sem skipið varða. Sér hann um, að þeim sé fullnægt. Verði dráttur á því, skal hafnarstjóri láta fullnægja þeim, en skipseigandi greiði allan kostnað, sem af því leiðir.

 

V I. KAFLI

FERMING OG AFFERMING ELDFIMRAR VÖRU

 

26. gr.

Skip, sem flytja eldfim efni, svo sem steinolíu, bensín, aceton, terpentínu eða önnur slík efni, sprengiefni, svo sem púður, dynamit, geomit eða þess konar efni, mega ekki fara inn í höfnina, fyrr en tilkynnt hefur verið um farm til hafnarstjóra og slökkviliðsstjóra, og hafnarstjóri leyft affermingu undir umsjá slökkviliðsstjóra.

27. gr.

Um útskipun á þeim efnum, sent um getur í 26. gr. gilda sömu varúðarreglur og um affermingu.

 

28. gr.

Álíti hafnarstjóri, að hætta geti stafað af fermingu eða affermingu eldfimrar vöru, er honum heimilt að stöðva verkið, uns gerðar hafa verið nauðsynlegar varúðarráðstafanir.

 

29. gr.

Skip, sem hafa meðferðis þau eldfim efni, sem getið er um í 26. gr., skulu á daginn hafa rautt flagg á framsiglutoppi, en á nóttum rautt ljósker.

 

VII. KAFLI

HAFNARGJÖLD

 

30. gr.

Öll skip skulu greiða hafnargjöld til hafnarsjóðs, er þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar.

Öll gjöld til hafnarinnar greiðast af brúttóstærð skipanna, eins og hún er mest, meðan skipið hefur viðdvöl í höfninni. Undanþegin lesta- og bryggjugjaldi eru herskip, skemmtiferðaskip, íslensk vitaskip og varðskip.

Hálf rúmlest telst sem heil en minni hluta er sleppt.

 

1. Lestagjöld.

 

31. gr.

a.         Öll farmskip, önnur en strandferðaskip, og öll fiskiskip, stærri en eða jafnt og 400 brúttórúmlestir skulu greiða lestargjald, kr. 3.00 á hverja brúttórúmlest.

b.         Strandferðaskip greiða kr. 1.50 á hverja brúttórúmlest.

c.         Fiskiskip undir 400 brúttórúmlestum greiða kr. 3.00 á brúttórúmlest, þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.

                        d.         Heimabátar, minni en 10 brúttórúmlestir, greiða lesta- og bryggjugjald einu sinni á ári, kr. 200.00 af hverri brúttórúmlest. Lágmarksgjald skal vera kr. 1.000.00.

Gjalddagi er 1. apríl, eftir að skipið hefur verið Bert út frá höfninni í 3 mánuði.

 

2. Bryggjugjöld.

 

32. gr.

Öll skip, sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka, skulu greiða kr. 1.50 á brúttórúmlest fyrir hvern sólarhring eða hluta úr sólarhring, sem skipið liggur bundið.

Fiskiskip, 10-399 brúttórúmlestir, greiði,gjald þetta eigi oftar en 10 sinnum á mánuði, en bátar minni en 10 brúttórúmlestir, greiði ekkert bryggjugjald. Heimilt er að taka lestar- og bryggju; gjald af fiskiskipum, minni en 440 brúttó

rúmlestir, sem ársgjald í heimahöfn, kr. 162.00 af hverri brúttórúmlest.

 

3. Hafnasögugjöld.

 

33. gr.

Öll erlend og innlend skip skulu skyld að greiða hafnsögugjald í hvert sinn, sem þau koma til hafnarinnar, hvort sem þau nota hafnsögumann eða ekki, þó skulu innlend fiskiskip, sem minni eru en 400 hrúttórúmlestir að stærð, því aðeins greiða hafnsögugjald, að þau njóti leiðsagnar hafnsögumanns.

 

34. gr.

Hafnsögugjald skal greiða sem hér segir:

 

a. Fyrir leiðsögn til hafnarinnar kr. 800.00 fyrir hvert skip, auk kr. 2.04 fyrir hverja brúttórúmlest.

b. Fyrir leiðsögn frá höfninni kr. 700.00 fyrir hvert skip, auk kr. 1.50 fyrir hverja brúttórúmlest.

c. Fyrir leiðsögn um höfnina kr. 400.00 fyrir hvort skip, auk kr. 1.00 fyrir hverja brúttórúmlest.

4. Vörugjöld.

 

35. gr.

Vörugjöld skal greiða af öllum vörum, sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða tír einu skipi í annað, með þeim undantekningum, sem síðar getur.

 

36. gr.

Ef vörur, sem skv. farmskrá skips eiga að fara til annarra hafna en Kópavog,s og eru látnar i land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald, þegar vörurnar eru fluttar á land.

Undanþegnar þessu gjaldi eru þar vörur, sem látnar eru á land um stundarsakir, vegna skemmda á skipi.

 

37. gr.

Af sjávarafla, sem fluttur er á milli skipa i höfninni, skal greiða hálft vörugjald.

 

38. gr.

Undanþegnar vörugjaldi eru þessar vörur:

a.       Vörur skv. farmskrá skips, sem eiga að fara til annarra hafna á landinu, ef þær eru ekki settar á land.

b.       Kol, olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar, sem fluttar eru úr landi, enn fremur salt og ís, sem fluttur er úr landi á íslensk fiskiskip til eigin afnota.

c.       Bréfapóstur, farþegaflutningur, vörur til hafnarinnar og fyrirtækja bæjarsjóðs, innlend nýmjólk og rjómi.

d.         Vörugjald skal reikna eftir máli eða þyngd með umbúðum. Brot úr gjaldeiningu, sem nemur helmingi eða meira, telst heil eining, en minna broti en hálfri gjaldeiningu sleppt. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds og er skipstjóra skylt að láta hafnarskrifstofunni í té afrit af farmskrá skips síns. Sé engin farmskrá, skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn, sem skip hans hefur fermt eða affermt. Þyki hafnarskrifstofunni ástæða til, getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt, sem hún telur hentugastan. Reynist vörumagnið meira en upp var gefið, greiðir skipið kostn­aðinn. Ef ýmsar vörutegundir eru í vörusendingunni og beri farmskrá ekki með sér greinilega sundurliðun i tegundir, skal reikna vörugjald eftir þeirri tegund, sem hæst gjald her að greiða af.

 

39. gr.

Vörur skal flokka til vörugjalda eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og greiða gjald eins og þar segir. Ef vafi leikur á, í hvaða flokki skuli telja vörur, skal hafnarstjóri úrskurða, en úrskurði hans má áfrýja til hafnarstjórnar.

 

Vörugjaldskrá.

Brottfluttar og aðfluttar vörur:

 

40. gr.

1. fl.: Gjald kr. 70.00/tonn:

a.       Vara flutt í lausu máli í miklu magni, meira en 100 tonn í farmi. t. d. bensín, brennsluolíur, kol, korn, salt, vikur.

b.       Þungavarningur, sekkjavörur, óunnið járn og stál til iðnaðar eða mannvirkjagerðar, hráefni til iðnaðar, útgerðarvörur, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir og iðnaðarvörur til útflutnings.

 

2. fl.:  Gjald kr. 150.00/tonn:

Iðnaðar- og byggingavörur, unnar og hálfunnar, pökkuð, og niðursoðin mat­væli, ávextir, vefnaðarvörur, fatnaður.

 

3. fl.:  Gjald kr. 400.00/tonn:

a.       Vélar og tæki hvers konar og varahlutir til þeirra þ. m. t. heimilisvélar, land­búnaðar- og vinnuvélar, loft- og rafknúin tæki, skrifstofutæki, bifreiðar, bif­hjól, reiðhjól, hjólbarðar, húsgögn, hljóðfæri, bátar, flugvélar, hreyflar, mælitæki.

b.       Útvarps- og sjónvarpstæki, úr, klukkur, myndavélar, sjónaukar, glysvarningur alls konar, vín, tóbak, ilmvötn, fegrunarvörur. Af flutningi vinnuvéla innanlands skal veita 50% afslátt. Af vorum undir staflið h. sé gjald kr. 800.00 á tonn, þegar um er að ræða flutning frá útlöndum.

 

4. fl.:  Gjald kr. 40.00 rúmmeter: Timbur og annað eftir rúmmáli.

 

5. fl.:  Gjald 1%:

Sjávarafli, lagður á land á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans. Kaupanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um keyptan afla mánaðarlega, t. d, afrit af aflaskýrslu til Fiskifélags Íslands. Aflagjald fellur í gjalddaga um leið og afla er landað.


Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs, þótt hann vanræki innheimtu þess. Standa ber skil á greiðslu afla­gjaldsins eigi sjaldnar en mánaðarlega.

Lágmarksgjald af öllum flokkum er kr. 2(1.00.

 

5. Ýmis gjöld til hafnarinnar.

41. gr.

Fyrir geymslu á vörum í húsum og á lóðum hafnarinnar um stundarsakir, skal greiða leigugjald, sem hafnarstjóri ákveður.

 

42. gr.

Fyrir lóðir og land hafnarinnar, geymsluhús og verbúðir, sem leigt er einstökum mönnum eða félögum um lengri tíma, skal greiða leigugjald, sem ákveðið verður með samningi.

 

43. gr.

Fyrir notkun á áhöldum og tækjum hafnarinnar skal greiða gjald, sem hafnarstjóri ákveður í hvert skipti.

 

VIIF. KAFI,I

INNHEIMTA OG GREIÐSLA HAFNARGJALDA

44. gr.

Hafnarstjóri sér um innheimtu aura hafnargjalda og skal greiða gjöldin í skrif­stofu hafnarinnar.

 

45. gr.

Skipstjóri og eigandi skips berg ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra, sem greiða ber til hafnarinnar vegna skipsins. Er skylt að afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess, og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skipinu, uns gjöldin eru greidd.

Að svo miklu leyti, sem í reglugerð þessari eru ekki ákveðnir fastir gjalddagar á gjöldunum, skal greiða þau áður en skip fer burt úr höfninni, og enginn skipstjóri getur vænst þess, að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá tollstjóra, nema hann sanni, með vottorði frá hafnarstjóra, að hann hafi greitt öll sín gjöld til hafnarinnar.

 

46. gr.

Vörugjald og leigugjald fyrir lóðir og geymsluhús hafnarinnar skv. 41. gr. greiðir móttakandi af vörum, sem koma til hafnarinnar, og sendandi af vörum, sem fluttar eru úr höfninni. Ef margir eiga vörur með sama skipi, skal afgreiðslumaður skips­ins standa hafnarsjóði skil á greiðslunni. Ef skip hefur ekki farm sinn skráðan, ber skipstjóri ábyrgð á greiðslu vörugjaldsins.

Ef vörur eru fluttar tír einu skipi í annað, greiðir sá vörugjald, sem affermir. Vörugjald af vorum, sem koma til hafnarinnar, fellur í gjalddaga, þegar skipið, sem vörurnar flytur, er komið í höfnina, og vörugjald af vörum, sem fluttar eru úr höfninni, fellur í gjalddaga, þegar vörurnar eru komnar á skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afgreiða vörurnar, uns gjaldið er greitt. Hafnarsjóður hefur og haldsrétt í vörum, til tryggingar gjaldinu.

 

47. gr.

Leigu af lóðum og húsum hafnarinnar skv. 42. gr., svo og gjald fyrir að nota áhöld og tæki hafnarinnar, skv. 43. gr. greiðir samningsaðili.

 

48. gr.

Öll gjöld skv. þessari reglugerð má taka lögtaki, og hafa þau forgangsrétt sem önnur opinber gjöld, sbr. 12. gr. IV. kafla hafnalaga. Auk þess eru skipagjöldin tryggð með lögveði í skipinu og gengur það veð í 2 ár fyrir samningsveðskuldum.

Skipagjöld teljast í reglugerð þessari öll þau gjöld, sem skipi ber að greiða til hafnarinnar, svo sem lestagjald, bryggjugjald, hafnsögugjald, gjald fyrir dráttar­báta og aðra aðstoð, sem framkvæmd er af hafnarinnar hálfu.

 

IX. KAFLI

ÝMIS ÁKVÆÐI

 

49. gr.

Þeir munir eða vörur, sem skipað er upp eða 1átið í skip, mega ekki liggja á bryggju eða hafnarbakka og eigi annars staðar á landi hafnarinnar, en á þeim stöðum, sem ætlaðir eru til geymslu, nema með sérstöku leyfi hafnarstjóra. Skal flytja burt muni og vörur jafnskjótt sem hafnarstjóri krefst þess. Sé það eigi Bert, lætur hafnarstjóri gera það á kostnað og ábyrgð eiganda eða umboðsmanns hans.

 

50. gr.

Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar eða áhöldum, fer eftir almennum reglum.

Ef samningum verður ekki við komið um skaðabætur, skulu þær ákveðnar af 2 óvilhöllum, dómkvöddum mönnum. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, en gera skal það áður en 1 mánuður sé liðinn frá því, er matsgerð er lokið. Yfirmat skal framkvæmt af 3 óvilhöllum, dómkvöddum mönnum. Kostnaðinn við yfirmat greiðir sá, sem krafðist yfirmats, ef það gengur honum ekki í vil. Að öðrum kosti greiðir hinn aðilinn kostnaðinn.

 

51. gr.

Nú veldur skip skemmdum í höfninni eða skipstjóri verður brotlegur við ákvæði reglugerðar þessarar, og er þá óheimilt að flytja skipið íár höfninni, áður en málið er útkljáð, nema fullnægjandi trygging sé sett fyrir greiðslu að dómi hafnarstjóra.

 

52. gr.

Hafnarstjóra skal þegar tilkynnt um allt, það, sem bjargað er í höfninni, en hann gefur aftur lögreglunni skýrslu um það.

 

53. gr.

Hverja þá skipun, sem skv. reglugerð þessari má gefa, skal gefa stýrimanni, ef skipstjóri er ekki á skipi og eigi heldur umboðsmaður hans, skv. 15. gr. Ef stýrimaður er fjarvarandi, má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipunina, og er það ,jafngilt sem skipstjóri hefði fengið skipunina sjálfur.

 

54. gr.

Allir þeir, sem æskja afgreiðslu fyrir skip, 1án á tækjum eða aðstoðar á einn eða annan hátt hjá höfninni, skulu snúa sér beint til skrifstofu hafnarinnar með beiðni þar að lútandi.

Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða afgreiðslu, sem eru í vanskilum með gjöld til hafnarinnar.

 

55. gr.

Innan hafnargarða má ekki sigla skipum hraðar en sem svarar 5 mílum á klst., nema sérstaklega standi á.

 

56. gr.

Brot á reglugerð þessari varða sektum, allt að 100 000.00 krónum. Sektirnar renna í hafnarsjóð Kópavogs.

Með mál af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

 

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt hafnalögum nr. 45 24. apríl 1973, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Samgönguráðuneytið, 21. júní 1974.

 

Magnús T. Ólafsson.

Kristinn Gunnarsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica