Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

359/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 845/2014, um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála.

1. gr.

10. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs, jafnt innanlands sem og á Evrópska efnahagssvæðinu, skulu vera sem hér segir:

64.779.000 kr. þegar um er að ræða vöru- og þjónustusamninga,
808.914.000 kr. þegar um er að ræða verksamninga.

Samkvæmt reglugerð þessari skal bjóða út öll innkaup sem eru yfir viðmiðunarfjárhæðum, samkvæmt 1. mgr., í samræmi við þau innkaupaferli sem nánar er kveðið á um í VI. kafla.

Við innkaup undir viðmiðunarfjárhæðum skal kaupandi ávallt gæta hagkvæmni og gera samanburð meðal sem flestra fyrirtækja. Slíkur samanburður skal jafnan gerður bréflega eða með rafrænni aðferð. Við þessi innkaup skal virða jafnræðisreglu 5. gr. svo og ákvæði 25. gr. um tækniforskriftir.

2. gr.

Við 37. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein á eftir 1. mgr. sem orðist svo:

Útboðsauglýsingar skv. 1. mgr. skal auglýsa opinberlega á útboðsvef (utbodsvefur.is) sem er sameiginlegur auglýsingavettvangur fyrir opinber útboð.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1950 frá 10. nóvember 2021 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/81/EB að því er varðar viðmiðunarfjárhæðir vegna vöru-, þjónustu- og verksamninga.

Reglugerðin er sett með heimild í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 262/2020 um breytingu á reglugerð nr. 845/2014, um innkaup stofnana á sviði varnar- og öryggismála.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 9. mars 2022.

F. h. r.

Sigurður H. Helgason.

Hrafn Hlynsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.