Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Stofnreglugerð

354/1997

Reglugerð um starfsemi þjónustuverkstæða með B-faggildingu

Gildissvið og skilgreiningar.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um starfsemi þjónustuverkstæða sem veita löggildingarskyldum mælitækjum bráðabirgðalöggildingu í umboði Löggildingarstofu. Reglugerð þessi tekur mið af viðkomandi ákvæðum í ÍST EN 45000 staðlaröðinni.

Faggilding á þjónustuverkstæðum er takmörkuð að því leyti að verkstæðin þurfa ekki að fullnægja öllum skilyrðum sem gilda við hefðbundna faggildingu og nefnist hún því B-faggilding.

2. gr.

Í reglugerð þessari hafa eftirfarandi orð merkingu sem hér greinir:

Þjónustuverkstæði: Verkstæði sem hlotið hefur B-faggildingu á sviði bráðabirgðalöggildinga mælitækja og uppfyllir viðkomandi reglugerðir um löggildingar mælitækja.

B-faggilding: Aðferð sem Löggildingarstofa beitir til að veita formlega viðurkenningu á því að þjónustuverkstæði búi yfir nægjanlegri hæfni til að starfa samkvæmt ákvæðum reglugerðar þessarar.

Tæknilegur stjórnandi: Yfirmaður á þjónustuverkstæði sem fullnægir hæfniskröfum viðkomandi reglugerða um löggildingar mælitækja og ber tæknilega ábyrgð á því að prófanir séu framkvæmdar í samræmi við settar reglur og að öllum kröfum um B-faggildingu sé fullnægt.

Prófunarmaður: Starfsmaður þjónustuverkstæðis sem uppfyllir hæfniskröfur viðkomandi reglugerða um löggildingar mælitækja og önnur skilyrði í öðrum reglugerðum um löggildingar.

Reglur um stjórnun.

3. gr.

Þjónustuverkstæði skal hafa skráða kennnitölu og virðisaukaskattsnúmer, ástunda heiðarlega viðskiptahætti og viðhafa fagleg vinnubrögð. Á þjónustuverkstæði skal starfa maður sem er tæknilega ábyrgur fyrir því að löggilding sé gerð samkvæmt ákvæðum þessarar reglugerðar og öðrum þeim reglum sem um starfsemi þessa fjalla. Starfsmaðurinn skal vera fastráðinn, heyra beint undir yfirstjórn verkstæðisins og hafa viðhlítandi starfsréttindi og reynslu.

Þjónustuverkstæði skal hafa skjalfesta lýsingu á þeirri starfsemi sem faggilt er.

Sjálfstæði og ráðvendni.

4. gr.

Við löggildingu mælitækja má prófunarmaður ekki þiggja afkastahvetjandi laun eða hliðstæðar greiðslur né hafa fjárhagslegan ávinning af niðurstöðum löggildinga eða á annan hátt vera háður niðurstöðum þeirra.

Þjónustuverkstæði skal tryggja að utanaðkomandi aðilar hafi engin áhrif á niðurstöður löggildinga.

Gæðakerfi.

5. gr.

Þjónustuverkstæði skal vegna löggildingarstarfsemi sinnar hafa skýra stefnu í gæðamálum og beita virku gæðakerfi sem skjalfest er í gæðahandbók.

Tæknileg hæfni.

Tæknilegur stjórnandi og prófunarmaður.

6. gr.

Tæknilegur stjórnandi og prófunarmaður skulu hafa nægilega tæknikunnáttu í þeim viðgerðum og löggildingum sem þjónustuverkstæðið annast. Hann skal auk þess kunna skil á viðkomandi reglugerðum um bráðbirgðalöggildingar löggildingarskyldra mælitækja. Ennfremur skal hann uppfylla hæfniskröfur í viðkomandi reglugerðum um löggildingar mælitækja.

Þjónustuverkstæðið skal halda skrá yfir þá starfsmenn sem annast prófun á mælitækjum. Í skránni skulu vera upplýsingar um grunnmenntun, þjálfun, tæknilega þekkingu og reynslu sérhvers starfsmanns.

Aðstaða og tækjabúnaður.

7. gr.

Þjónustuverkstæði skal hafa húsnæði og aðstöðu sem hentar til löggildinga mælitækja. Húsnæði skal að öðru leyti uppfylla allar reglur opinberra aðila um heilbrigðis- og öryggismál.

8. gr.

Þjónustuverkstæði skal hafa yfir að ráða tækjum í samræmi við ákvæði í viðkomandi reglugerðum um löggildingar mælitækja.

Þjónustuverkstæði skal ábyrgjast að búnaður sem notaður er við skoðun, fái viðhald og umhirðu samkvæmt skriflegri áætlun þjónustuverkstæðisins.

Þjónustuverkstæði skal halda skrá yfir tæki sem notuð eru við löggildingar mælitækja með upplýsingum um kvörðun og viðhald eftir því sem við á. Áður en mælitæki sem notuð eru við löggildingar eru tekin í notkun af verkstæði skulu þau kvörðuð og síðan endurkvörðuð eftir föstu skipulagi.

Þjónustuverkstæði skal setja sér reglur um kvörðun mælitækja sem notuð eru við löggildingar og skal þeim reglum beitt þannig að mælingar sem gerðar eru megi rekja til mæligrunna.

Mælitæki skulu athuguð milli reglubundinna kvarðana samkvæmt skriflegri áætlun þjónustuverkstæðisins.

Þjónustuverkstæði skal taka biluð tæki úr notkun. Áhrif bilunar á fyrri löggildingar skulu athuguð og bætt úr þeim.

Tækjakostur sem notaður er við löggildingar skal vera greinilega merktur.

Tækjakostur skal að öðru leyti uppfylla allar reglur stjórnvalda um heilbrigðis- og öryggismál.

Vinnuskipan.

Verklagsreglur.

9. gr.

Þjónustuverkstæði skal útbúa eigin verklagsreglur um framkvæmd löggildinga og starfa samkvæmt þeim.

Aðeins skal löggilda þau mælitæki sem starfsleyfi þjónustuverkstæðis nær til. Tryggt skal að mælitæki hafi áður hlotið fullnaðar löggildingu.

Prófunarskýrslur.

10. gr.

Þjónustuverkstæði skal skrá niðurstöður í prófunarskýrslu.

Prófunarskýrsla skal geyma upplýsingar um hver prófaði, niðurstöður prófunar, mat á samræmi við gildandi reglugerðir ásamt upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að unnt sé að skilja og túlka niðurstöður. Upplýsingar skulu gefnar villulausar, nákvæmar og skýrar.

Prófunarskýrsla skal einungis undirritað af þeim prófunarmanni sem framkvæmdi prófunina.

Þjónustuverkstæði skal senda afrit af prófunarskýrslu samdægurs til Löggildingarstofu.

Þjónustuverkstæði skal tilgreina faggildingarnúmer sitt á prófunarskýrslu.

Skjalavistun.

11. gr.

Prófunarskýrsla og önnur gögn skulu vistuð á öruggum stað í a.m.k. fjögur ár eftir að löggilding fór fram.

Skýrslur og önnur gögn skulu ávallt vera tiltæk og aðgengileg fyrir Löggildingarstofu.

Kvartanir.

12. gr.

Þjónustuverkstæði skal setja sér skriflegar reglur um hvernig það fer með kvartanir vegna löggildinga. Verkstæðið skal skrá þær kvartanir sem beinast að löggildingarstarfseminni og þær ráðstafanir sem gerðar voru.

Ýmis ákvæði.

13. gr.

Þjónustuverkstæði skal:

  1. Tilgreina á skýran hátt á hvaða sviði það er faggilt.
  2. Tryggja eftir föngum að prófunarskýrslur eða hlutar úr þeim séu ekki notuð á villandi hátt.
  3. Hætta þegar í stað allri vísun til faggildingar ef hún er felld úr gildi eða rennur út.
  4. Tryggja eðlilegt samstarf vegna eftirlits Löggildingarstofu og taka þátt í samráðsstarfsemi og samanburðarprófunum.

14. gr.

Þjónustuverkstæði skal tilkynna faggildingardeild Löggildingarstofu skriflega og án tafar hverja þá breytingu sem getur haft áhrif á heimild verkstæðisins til þess að starfa samkvæmt fyrirmælum um faggildingu.

15. gr.

Faggilding gildir til allt að fimm ára og skal í síðasta lagi að þeim tíma liðnum fara fram mat á þjónustuverkstæði, eins og um fyrsta mat sé að ræða. Löggildingarstofa hefur reglubundið eftirlit á árs fresti.

16. gr.

Ef þjónustuverkstæði uppfyllir ekki almenn skilyrði um faggildingu, framkvæmd löggildingar er ófullnægjandi eða prófunarmaður staðfestir löggildingu ranglega getur Löggildingarstofa þegar í stað krafist úrbóta af hálfu þjónustuverkstæðis, breytt umfangi faggildingar eða afturkallað faggildingu.

Kostnaður sem af slíkri aðgerð hlýst, skal greiddur af þjónustuverkstæðinu.

17. gr.

Kostnað við faggildingu, árlegt eftirlit o.fl. sem tilgreindur er í gjaldskrá Löggildingarstofu skal þjónustuverkstæðið greiða á gjalddaga.

18. gr.

Þjónustuverkstæði skal hafa fullnægjandi ábyrgðartryggingar.

Gildistaka.

19. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. 12. gr. laga nr. 100/1992, um vog, mál og faggildingu, öðlast gildi 1. júlí 1997.

Viðskiptaráðuneytinu, 11. júní 1997.

F. h. r.

Halldór J. Kristjánsson.

Atli Freyr Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.