Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

352/2015

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.

1. gr.

Við 7. gr. bætist þrír nýir stafliðir sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 866/2014 frá 8. ágúst 2014 um breytingu á III., V. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í 1a. XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2015, þann 25. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16 frá 19. mars 2015, 2015/EES/16/46, bls. 874-878.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1003/2014 frá 18. september 2014 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í 1a. XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 20/2015, þann 25. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16 frá 19. mars 2015, 2015/EES/16/47, bls. 879-882.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1004/2014 frá 18. september 2014 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í 1a. XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 20/2015, þann 25. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 16 frá 19. mars 2015, 2015/EES/16/48, bls. 883-886.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 866/2014 frá 8. ágúst 2014 um breytingu á III., V. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1003/2014 frá 18. september 2014 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1004/2014 frá 18. september 2014 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 13. apríl 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.