Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Stofnreglugerð

350/2015

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um skilgreiningu, lýsingu og kynningu á tilteknum áfengum drykkjum (II).

1. gr. Gildissvið.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XXVII. kafla II. viðauka samningsins (brenndir drykkir), gilda hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun l við samninginn og öðrum ákvæðum hans.

Innflutningur og markaðssetning á brenndum drykkjum er heimil eftir því sem tilgreint er í XXVII. kafla II. viðauka samningsins.

2. gr. Innleiðing reglugerða.

Eftirfarandi reglugerðir Evrópusambandsins um skilgreiningu, lýsingu, merkingu og vernd landfræðilegra merkingu á brenndum drykkjum skulu gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1065/2013 frá 30. október 2013 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 73/2014, 4. desember 2014, bls. 550), um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 110/2008 um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á brenndum drykkjum.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 97/2014 frá 3. febrúar 2014 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 73/2014, 4. desember 2014, bls. 551), um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 110/2008 um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á brenndum drykkjum.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórninnar (ESB) nr. 98/2014 frá 3. febrúar 2014 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi (ESB) nr. 73/2014, 4. desember 2014, bls. 553), um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 110/2008 um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á brenndum drykkjum.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 426/2014 frá 25. apríl 2014 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi nr. 73/2014, 4. desember 2014, bls. 555), um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 11012008 um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á brenndum drykkjum.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 716/2013 frá 25. júlí 2013 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi nr. 73/2014, 4. desember 2014, bls. 557), um reglur vegna beitingar reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 110/2008 um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á brenndum drykkjum.

3. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 193. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 30. mars 2015.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Erna Hjaltested.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.