Samgönguráðuneyti

246/1990

Hafnarreglugerð fyrir Grindavík. - Brottfallin

HAFNARREGLUGERÐ

fyrir Grindavík.

 

I. KAFLI

Höfnin og stjórn hennar.

1. gr.

Takmörk hafnarinnar.

1.1     Hafnarsvæði Grindavíkurhafnar takmarkast á eftirfarandi hátt: Öll Járngerðarstaðavík með öllum víkum og vogum, ásamt Hópinu, sem takmarkast of Hópsnesi að austan og hugsaðri línu gegnum bæina Krosshús og Hlið að vestan.

1.2     Landsvæði hafnarinnar skiptist í: - Hafnarbakka og bryggjur

          - Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði - Götur

          - Iðnaðar- og baksvæði

          - Dráttarbraut og land tengt henni.

 

2. gr.

Stjórn hafnarinnar.

2.1     Grindavíkurbær er eigandi hafnarinnar. Bæjarstjórn fer með stjórn hafnarmála undir yfirumsjón samgönguráðuneytisins.

2.2     Hafnarstjórn fer með framkvæmd hafnarmála í umboði bæjarstjórnar. Hafnarstjórn skal skipuð fimm mönnum og jafnmörgum til vara, er bæjarstjórn kýs. Kjörtímabil hafnarstjórnar er hið sama og bæjarstjórnar. Auk hinna kjörnu fulltrúa eiga bæjarstjóri og hafnarstjóri sæti í hafnarstjórn með málfrelsi og tillögurétt. Hafnarstjórn kýs sér formann og stýrir hann fundum hennar og boðar til þeirra í samráði við hafnarstjóra.

 

3. gr.

Hlutverk og valdsvið hafnarstjórnar.

3.1     Hafnarstjórn hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnarinnar. Leita skal staðfestingar bæjarstjórnar á fjárhagsáætlun hafnarsjóðs, gjaldskrá fyrir þjónustu, sbr. 13. gr. hafnalaga og lántökum eða öðrum fjárhagsskuldbindingum, sem binda hafnarsjóð lengur en yfirstandandi fjárhagsár.

3.2     Hafnarstjórn gerir tillögur til bæjarstjórnar varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðinu, enda hafi tillögurnar fengið umfjöllun skipulagsnefndar. Byggingamál á hafnarsvæðinu skulu hljóta umfjöllun hafnarstjórnar og bygginganefndar áður en þau eru lögð fyrir bæjarstjórn. Innan hafnar má ekki gera nein hafnarmannvirki eða breyta þeim mannvirkjum sem nú eru og ekki heldur fylla upp eða dýpka út frá landi, nema leyfi hafnarstjórnar eða bæjarstjórnar komi til. Hafnarstjórn hefur eftirlit á hafnarsvæðinu með byggingu mannvirkja, sem undanþegin eru ákvæðum byggingalaga.

3.3     Hafnarstjórn gerir tillögur til bæjarstjórnar um ráðningu hafnarstjóra og annarra fastra starfsmanna hafnarinnar.

3.4     Hafnarstjórn hefur endanlegt ákvörðunarvald um rekstur hafnarinnar, svo sem ráðstöfun á aðstöðu þ.m.t. leiga á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar og veitir leyfi til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæða er hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.

 

4. gr.

Hafnarstjóri.

4.1     Hafnarstjóri er skipaður of bæjarstjórn að fenginni tillögu hafnarstjórnar og fer með daglega stjórn hafnarinnar í umboði hafnarstjórnar. Hafnarstjóri undirbýr má1 sem leggja á fyrir hafnarstjórn og veitir viðtöku erindum til hennar. Hann sér um framkvæmd samþykkta hafnarstjórnar og veitir hafnarstjórn og bæjarstjórn upplýsingar um málefni hafnarinnar. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs og ber í hvívetna að gæta hagsmuna hafnarsjóðs. Í erindisbréfi má setja nánari reglur um starfssvið hafnarstjóra.

4.2     Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnarreglugerðar og fara að öðru leyti eftir samþykktum hafnarstjórnar og bæjarstjórnar.

4.3     Hafnarstjóri sér um, að gætt sé reglu í höfninni og á landi hennar. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans, eða þeirra sem hann felur slík störf.

 

5. gr.

Aðrir starfsmenn hafnar.

5.1     Hafnarstarfsmenn, sem hafa umsjón með eignum hafnarinnar, gæta reglu og sinna hafnarvörslu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar.

5.2     Starfsmenn hafnarinnar skulu gæta allrar kurteisi í starfi. Þyki einhverjum sér óréttur gerður of starfsmönnum hafnarinnar, getur hann kært það fyrir hafnarstjórn en skipun starfsmannsins ber að hlýða þegar í stað.

 

II. KAFLI

Umferð skipa.

6. gr.

Hugtakið skip.

6.1     Skip telst í reglugerð þessari sérhvert fljótandi far, sem nota má sem flutningatæki, dvalarstað, vinnustað, framleiðslustað eða geymslustað.

 

7. gr.

Koma og brottför.

7.1     Við komu og brottför að degi til skulu skip, önnur en íslensk fiskiskip hafa þjóðfána við hún.

7.2     Þjónusta við skip, svo sem vatnsafgreiðsla og tenging rafmagns, er unnin of hafnarvörðum undir stjórn hafnarstjóra. Skip skulu við komu, brottför og siglingu um hafnarsvæðið hafa opna talstöð á viðskiptabylgju Grindavíkurhafnar.

7.3     Sérhvert skip skal boða áætlaða komu sína (ETA) til hafnarinnar með fjarskiptasambandi eða gegnum umboðsmann með minnst 24 klst. fyrirvara, en fiskiskip í síðasta lagi með 1 klst. fyrirvara. Tilkynna skal brottför með minnst 3ja klst. fyrirvara og allar breytingar á fyrri tilkynningum, strax og ákveðnar eru.

7.4     Skipstjóri skal við komu til hafnar gefa skipaþjónustu eftirfarandi upplýsingar eftir því sem við á:

          - Skipsnafn, skipaskrárnúmer, þjóðerni, stærð samkvæmt mælibréfi, djúpristu og síðasta viðkomustað.

          - Nafn skipstjóra.

          - Stærð áhafnar og fjölda farþega. - Tegund og magn farms.

          - Um hættulegan farm, tegund (tækniheiti og IMDG flokkun) og magn. - Nafn umboðsmanns

7.5     Búnaður skipa skal uppfylla kröfur alþjóðasamþykkta, sem íslensk stjórnvöld hafa staðfest svo og sérreglur Siglingamálastofnunar ríkisins. Skipstjórnarmenn skulu sýna hafnarstarfsmönnum, ef óskað er, skírteini um fullnægjandi búnað skipa sinna.

 

8. gr.

Hafnsaga og önnur þjónusta.

8.1     Skip, sem ætlar til Grindavíkurhafnar og nota vill hafnsögumann skal gera boð um það til hafnsögumanns með minnst 3ja klst. fyrirvara. Skip, sem er 60 metrar eða lengra má ekki fara inn í höfnina án samráðs við hafnarstjóra. Óski skipstjóri viðkomandi skips eftir hafnsögumanni er því ekki heimilt að koma nær innsiglingunni en svo, að ein sjómíla sé í Hópsnes. Vísar hafnsögumaður skipinu leið til hafnar og má eigi yfirgefa það án samþykkis skipstjóra, fyrr en skipið er komið í viðlegu. Heilmilt er hafnsögumanni meðan hann hefur ekki lokið starfi sínu að banna hverjum þeim, sem ekki á lögmætt erindi að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð, ber skipinu að sjá honum fyrir fæði.

8.2     Dráttarbátar hafnarinnar eru í þjónustu og ábyrgð þess skips, er þeir aðstoða, frá því þeir taka við taug, eða fyrirmælum stjórnanda skipsins, er aðstoðar nýtur, og þar til taug er sleppt eða fyrirmæli gefin um að aðstoð sé lokið. Hafnsögumaður skal vera í skipi, er það nýtur aðstoðar dráttarbáts. Hafnsögumaður ákveður notkun báta og mannafla hverju sinni. Hafnarstarfsmenn sjá um bindingu skipa, vatnsafgreiðslu og tengingu rafmagns.

 

9. gr.

Umferð um höfnina.

9.1     Skip, sem ekki hefur hafnsögumann um borð skal leita upplýsinga hjá hafnarstarfsmönnum hvar binda megi skipið við bryggju. Óheimilt er að binda skip annars staðar, en þar sem starfsmenn hafnarinnar vísa til.

9.2     Skip mega ekki láta vélar ganga of svo miklu afli að öðrum skipum eða mannvirkjum stafi hætta of straumi frá aðal- eða þverskrúfum. Sérstaka aðgát skal sýna þegar farið er um svæði, þar sem unnið er að dýpkun, köfun og þess háttar enda skal við slík störf hafa uppi viðeigandi merki.

9.3     Sérhvert skip, sem ekki er bundið við bryggju eða hafnarbakka skal hafa uppi fyrirskipuð ljós og dagmerki.

9.4          Skylt er að gæta allrar varúðar í meðferð elds og ljósa í skipum á höfninni.

9.5          Bannað er að blása í flautur og lúðra, nema umferð gefi tilefni til þess.

9.6     Skemmd- og smábátar, þar með taldir ára- og seglbátar, skulu svo sem frekast er unnt forðast siglingaleiðir stærri skipa, sem eru á leið til eða frá höfninni. Ennfremur skal sýna sérstaka aðgæslu, þegar skip eru að leggja að og frá viðlegu.

 

10. gr.

Skip í viðlegu.

10.1   Skip telst í viðlegu, er það liggur við hafnarbakka, bryggju, þ.m.t. utan á öðru skipi, eða föst legufæri og er í eða bíður eftir afgreiðslu eða þjónustu.

10.2   Skip hljóta viðlegu í sömu röð og þau koma til hafnar. Undantekin eru skip sem hafa fastar viðlegur eða umsamin forgangsafnot hafnarbakka og skemmtiferðaskip.

10.3   Ekki má festa skip við hafnarbakka eða bryggjur nema við festarhringa eða festarstólpa. Festum skal þannig komið fyrir, að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka og skulu festar auðkenndar með veifum eða öðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarstjóra þess ekki nægilega gætt, getur hann krafist að hætt sé úr því tafarlaust.

10.4   Þegar búíð er að leggja skipi við bryggju eða hafnarbakka, má ekki flytja það innan hafnar án leyfis hafnarstjóra, en skylt er skipstjóra að flytja skipið, ef hafnarstjóri skipar svo fyrir. Skip, sem ekki er verið að lesta eða losa, eða eru ekki í rekstri, mega aldrei liggja svo í höfninni, að þau tálmi vinnu við önnur skip og skal skylt að hlýða boðum hafnarinnar um flutning þeirra. Færist hlutaðeigandi undan að færa skipið eða dragist flutningur þess yfir þann tíma, er hafnarstjóri hefur fyrirskipað, er hafnarstjóra heimilt að láta flytja skipið á kostnað og ábyrgð skipseiganda.

10.5   Í hverju skipi skal að jafnaði vera einn maður að minnsta kosti, er tekið getur á móti skipunum starfsmanna hafnarinnar og framkvæmt þær. Skal hann sjá um að óviðkomandi aðilar hafi ekki aðgang að skipinu og ber eigandi fulla ábyrgð á öllu því tjóni, er leiða kann of vanrækslu í þessu efni. Heimilt er hafnarstjóra að fallast á gæslu sérstakra öryggisvarða, enda séu hjá hafnarstarfsmönnum nöfn skipstjórnarmanna, sem kalla má út vegna veðurs eða annarra orsaka.

10.6   Hafnarstarfsmenn ákveða legur fyrir skip 12 brl. og minni við viðeigandi mannvirki eftir því sem rými leyfir. Þegar skip er sjósett eða siglt í höfn, skal eigandi tilkynna það hafnarstarfsmönnum. Skip þessi eru á ábyrgð eigenda, sama hvort þau eru á floti í höfninni eða á landi hennar. Heimilt er að fela félögum smábátaeigenda umsýslu á ákveðnum svæðum undir eftirliti hafnarstjóra samkvæmt nánari reglum.

 

11. gr.

Skip i lægi.

11.1   Skip telst í lægi er það liggur fyrir akkeri eða öðrum legufærum og er ekki í rekstri. 11.2 Skipum, sem leggja skal í lægi, má aðeins leggja á þeim stöðum, er hafnarstjóri leyfir. Skipum skal lagt undir umsjón hafnarstjóra og legufæri ákveðin í samráði við hann. Eftirlit og viðhald legufæra er á ábyrgð skipseiganda. Meðan skip liggur mannlaust í lægi, skal ekki sjaldnar en tvisvar í mánuði farið út í það til þess að líta eftir, hvort legufæri eða annað hafi haggast eða bilað og ef svo reynist skal lagfæra það svo fljótt sem auðið er. Áður en skipstjóri fer of skipinu, skal hann skriflega tilgreina hafnarstjóra siglingafróðan mann, sem búsettur er í Grindavík, sem hafa skal umsjón skipsins á hendi. Beinir hafnarstjóri til hans öllum fyrirskipunum sem skipið varða. Sér hann um að þeim sé fullnægt. Verði dráttur á því skal hafnarstjóri láta fullnægja þeim, en skipseigandi greiði allan kostnað sem of því leiðir.

 

III. KAFLI

Afnot hafnarmannvirkja og landsvæða.

12. gr.

Lestun og losun.

12.1   Afnot hafnarmannvirkja og lands eru öllum heimil að fengnu leyfi hafnaryfirvalda og gegn greiðslu samkvæmt gjaldskrá. Hafnarstjórn ber enga ábyrgð á varningi eða öðrum eignum, sem geymdar eru á hafnarsvæðinu.

12.2   Við lestun og losun skal viðhafa fyllstu gætni til að koma í veg fyrir óeðlilegt slit mannvirkja og búnaðar. Ekki má draga þunga hluti eftir hafnarbökkum, né sturta varningi of bílum án eðlilegs hlífðarlags. Þeir munir eða vörur sem skipað er upp eða láta á í skip, mega ekki liggja á bryggju, hafnarbakka eða annars staðar á landi hafnarinnar en á þeim stöðum, sem ætlaðir eru til geymslu á slíkum varningi. Hafnarstjóri getur flutt vörur og muni, sem geymdir eru í óleyfi, burt á kostnað og ábyrgð eiganda eða umboðsmanns hans.

12.3   Við lestun og losun á vikri, sandi, kolum og öðru þess háttar, er skylt að hafa nægilega sterkar hlífar milli skips og hafnarbakka svo að ekkert falli fyrir borð. Sé þessa ekki gætt, getur hafnarstjóri stöðvað verkið uns bætt hefur verið úr því sem áfátt er.

12.4   Þegar lokið er lestun eða losun skal sá er séð hefur um lestun eða losun, láta ræsta bryggju þá eða hafnarbakka sem notuð hefur verið. Farist það fyrir skal hafnarstjóri sjá um að það sé gert, en afgreiðslumaður skipsins greiði allan kostnað sem of því leiðir.

 

13. gr.

Meðferð eldfims og hættulegs varnings.

13.1   Skip, sem flytja sprengiefni, eldfima vökva, lofttegundir undir þrýstingi (flöskugas) eða efni, sem við vissar aðstæður valda eld- eða sprengihættu, mega ekki koma inn á höfnina, fyrr en leyfi hefur verið vent til þess.

13.2   Skipstjóra eða umboðsmanni ber að tilkynna hafnarstjóra og slökkviliðsstjóra um farminn 24 klst. fyrir áætlaðan komutíma. Tilkynningarskyldan nær til efna sem samkvæmt alþjóðareglum (International Maritime Dangerous Goods Code) flokkast í flokka 1, 2, 3, 4, og 5. Í tilkynningu skal greina tækniheiti efna og UN-tölu þeirra skv. IMDG-reglum, magn, pökkun og lestun. Sem dæmi um hættulegan varning má nefna: púður, dýnamít, geomit, hlaðnar patrónur, bensín, steinolíu, aceton, terpentínu, toluol, kosangas, kalciumkarbit, ammoniumnitrat, natríumklórat.

13.3   Losun á vörum sem um ræðir í þessari grein skal að jafnaði framkvæmd strax og skip hefur lagst að bryggju og á undan losun á öðrum varningi. Við lestun skal slíkur farmur lestaður síðast og skal skip láta úr höfn strax að lestun lokinni.

13.4   Álíti hafnarstjóri að hætta geti stafað of lestun eða losun eldfimrar vöru getur kann stöðvað verkið uns nauðsynlegar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar. Hlíta skal í einu og öllu ákvæðum brunamálasamþykktar.

13.5   Skylt er að hafa öryggisvörð við skip sem lesta eða losa eldfimar vörur. Hafnarstjóri getur ákveðið að lestun eða losun slíkrar vöru fari fram við sérstaka hafnarbakka, þar sem tryggast er talið. Varningur skal geymdur á svæði sem hafnarstjóri samþykkir. Setja skal sérstakar reglur um nánari framkvæmd og ákvæði þessarar greinar, sbr. ráðleggingar Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) um öryggi við flutning, meðferð og geymslu á hættulegum efnum á hafnarsvæðum.

13.6   Skip, sem flytja eldfim efni, skulu á daginn hafa uppi rautt flagg (merkjatákn B) á framsiglu en á nóttunni rautt ljósker. Í skipum sem flytja eldfim efni, má eigi kveikja eld eða ljós nema undir kötlum skipsins eða í eldavél skipsins og á lögboðnum ljóskerjum. Tóbaksreykingar eru bannaðar í þeim skipum og á því svæði, þar sem unnið er að fermingu eða affermingu eldfims varnings.

 

IV. KAFLI

Hafnargjöld.

14. gr.

14.1     Gjöld til hafnarsjóðs skulu innheimt samkvæmt:

a)      Gjaldskrá er samgönguráðuneytið setur samkvæmt 1. mgr. 13. gr. hafnalaga.

b)      Þjónustugjaldskrá er hafnarstjórn setur og staðfest er of sveitarstjórn.

 

V. KAFLI

Ýmis ákvæði.

15. gr.

Löggæsla á hafnarsvæði, umferð og fleira.

15.1   Lögregla hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðum. Hafnarstjórn getur sett hraða- og þungatakmarkanir á hafnarsvæðinu. Í sérstökum tilfellum er hafnarstjóra þó heimilt að veita undanþágu frá slíku.

15.2   Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga, er bannað að dvelja á landi hafnarinnar ef þeir með því tálma lestun og losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers konar ökutækja um bryggjur, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði. Fólk sem fer um hafnarsvæðið, er þar á eigin áhættu og ábyrgð. Bannað er að iðka sund, vera á sjóskíðum, seglbrettum eða þess háttar á hafnarsvæðinu án leyfis, nema á þar til afmörkuðum svæðum. Köfun er bönnuð á hafnarsvæðinu án leyfis.

15.3   Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðinu án leyfis. Fiskveiðar á hafnarsvæðinu mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir og er heimilt að fjarlægja slík veiðarfæri bótalaust.

15.4   Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða á henni. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðinu án leyfis.

15.5       Óheimilt er að geyma tækjabúnað á hafnarsvæðinu utan eigin leigusvæða án leyfis.

15.6       Hafnarstjóra skal þegar tilkynnt um allt það, sem bjargað er í höfninni en hann gefur lögreglunni skýrslu um það.

 

16. gr.

Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

16.1   Ef skip lendir á grynningum eða sekkur, þar sem það, að áliti hafnarstjóra tálmar greiðri notkun hafnarinnar skal færa það burt svo fljótt sem auðið er. Verði dráttur á því má hafnarstjóri láta færa skipið Burt á kostnað eigandans og er honum heimilt að láta selja skipið til lúkningar kostnaði ef nauðsyn krefur. Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis.

16.2   Ef skip, bátar, bryggjur, flutningatæki á landi eða annar búnaður er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og/eða veldur óþrifnaði eða hættu þá skal hafnarstjóri fyrirskipa úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt má fjarlægja viðkomandi hluti á kostnað eiganda án nokkurrar skaðabótaskyldu.

 

17. gr.

Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

17.1   Ekki má kasta í höfnina úrgangi, rusl, kjölfestu, sorpi, dauðum fiski, fiskúrgangi, vírum, umbúðum eða öðru þess háttar.

17.2   Bannaður er hvers konar hvalskurður í og við höfnina. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt inn í höfnina hvali, skipsflök eða neitt það, sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum í höfninni nema leyfi hafnarstjóra komi til.

17.3   Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíur, lýsi, olíusora eða annað sem veldur mengun. Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti, skulu áður hafa gert ráðstafanir svo olía renni ekki í sjóinn of þilfari, verði óhapp, m. a. með því að loka afrennslisleiðum frá þilfari.

17.4   Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa, sem ekki hafa að mati hafnarstarfsmanna gengið forsvaranlega frá þessum atriðum.

17.5   Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lagaákvæðum á hverjum tíma.

 

18. gr.

Beiðni um og skilyrði fyrirþjónustu.

18.1   Allir þeir, sem æskja afgreiðslu fyrir skip, láns á tækjum eða aðstoðar á einn eða annan hátt hjá höfninni skulu snúa sér beint til skrifstofu hafnarinnar með beiðni þar að lútandi. Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða afgreiðslu, sem eru í vanskilum með gjöld til hafnarinnar.

 

19. gr.

Hverjum skal gefa fyrirmæli.

19.1   Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skal gefa skipstjóra, en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi og eigi heldur umboðsmaður hans, samkvæmt gr. 9.5. Ef stýrimaður er fjarverandi má gefa einhverjum öðrum of skipshöfninni skipunina og er það jafngilt sem skipstjóri hefði fengið skipunina sjálfur.

 

20. gr.

Um skaðabótaskyldu.

20.1   Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar eða áhöldum fer eftir almennum reglum. Ef samningum verður ekki við komið um skaðabætur, má ákveða þær of tveimur óvilhöllum dómkvöddum mönnum. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, en gera skal það áður en 1 mánuður er liðinn frá því að matsgerð er lokið. Yfirmat skal framkvæmt of þremur óvilhöllum dómkvöddum mönnum. Kostnaðinn við yfirmat greiðir sá sem krafðist yfirmats, ef það gengur honum ekki í vil.

20.2   Nú veldur skip skemmdum í höfninni eða skipstjóri verður brotlegur við ákvæði reglugerðar þessarar og er þá óheimilt að flytja skipið úr höfninni áður en málið er útkljáð, nema fullnægjandi trygging sé sett fyrir greiðslu að dómi hafnarstjóra. Bótakröfum hafnarsjóðs fylgir lögtaksréttur samkvæmt hafnalögum.

 

21. gr.

Brot o. fl.

21.1   Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum og skulu sektir renna í viðkomandi hafnarsjóð. Til tryggingar sektum og vangoldnum gjöldum má leita kyrrsetningar. Með má1 út of brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála.

21.2   Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt hafnalögum nr. 69, 28. maí 1984, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtast til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Grindavíkurhöfn nr. 181/1975.

 

Samgönguráðuneytið, 30. maí 1990.

 

Steingrímur J. Sigfússon.

Helgi Jóhannesson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica