Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Stofnreglugerð

349/2013

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 996/2012 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, í kjölfar slyssins í Fukushima-kjarnorkuverinu og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 284/2012.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla, I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 1. maí 2010, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 996/2012 frá 26. október 2012 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, í kjölfar slyssins í Fukushima-kjarnorkuverinu og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 284/2012.

2. gr.

Ofangreind reglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Allur kostnaður við opinbert eftirlit, þ.m.t. sýnataka, greining sýna, geymsla, förgun og allar aðrar ráðstafanir sem gripið er til skal greiddur af innflutnings- og dreifingaraðilum eftir því sem við á.

4. gr.

Innflutnings- eða dreifingaraðilar sem flytja inn eða dreifa vörum sem reglugerð þessi tekur til, skulu senda Matvælastofnun tilkynningu og gögn um fyrirhugaðan innflutning ásamt upplýsingum um áætlaðan komutíma.

5. gr.

Matvælastofnun hefur eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt samkvæmt 6. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli og 3. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

6. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 27. gr. b og 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 520/2012.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. apríl 2013.

F. h. r.

Halldór Runólfsson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.