Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

344/2022

Reglugerð um minjasvæði og minjaráð.

1. gr.

Íslandi er skipt í átta minjasvæði: Reykjavík og nágrenni, Reykjanes, Vesturland, Vestfirði, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland og Suðurland. Minjasvæðin skiptast nánar sem hér segir:

  1. Minjasvæði Reykjavíkur og nágrennis: Kjósarhreppur, Kópavogsbær, Mosfellsbær, Reykjavíkurborg og Seltjarnarnesbær.
  2. Minjasvæði Reykjaness: Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Suðurnesjabær, Sveitarfélagið Vogar, Garðabær og Hafnarfjarðarkaupstaður.
  3. Minjasvæði Vesturlands: Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur, Snæfellsbær og Stykkishólmsbær.
  4. Minjasvæði Vestfjarða: Árneshreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur, Strandabyggð, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð.
  5. Norðurland vestra: Akrahreppur, Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Sveitarfélagið Skagaströnd, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagafjörður.
  6. Minjasvæði Norðurlands eystra: Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Langanesbyggð, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Norðurþing, Skútustaðahreppur, Svalbarðshreppur, Svalbarðsstrandarhreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit.
  7. Minjasvæði Austurlands: Fjarðabyggð, Fljótsdalshreppur, Múlaþing, Sveitarfélagið Hornafjörður og Vopnafjarðarhreppur.
  8. Minjasvæði Suðurlands: Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Skaftárhreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Ölfus og Vestmannaeyjabær.

2. gr.

Minjastofnun Íslands skipar í minjaráð á hverju minjasvæðanna átta til fjögurra ára í senn. Minjavörður svæðisins veitir ráðinu forystu og sitja auk hans fjórir fulltrúar. Samband sveitarfélaga á minjasvæðinu tilnefnir einn aðalfulltrúa og annan til vara. Þar sem tvö eða fleiri sambönd eru innan minjasvæðis skulu þau sammælast um tilnefningu fulltrúa. Safnaráð tilnefnir einn aðalfulltrúa og annan til vara. Þeir skulu valdir úr hópi forstöðumanna menningarminjasafna eða menningarstofnana á svæðinu og Minjastofnun Íslands tilnefnir tvo hagsmunaaðila af minjasvæðinu sem aðalfulltrúa og tvo til vara. Leitast skal við að dreifing fulltrúa í minjaráði spegli víðáttu svæðisins.

3. gr.

Minjaráð er samráðsvettvangur um varðveislu og nýtingu minja á svæðinu í þágu samfélagsins. Það veitir Minjastofnun Íslands stuðning og myndar bakland stofnunarinnar í héraði. Minjaráð skal beita sér fyrir verkefnum á sviði minjavörslu, til eflingar byggðar og atvinnusköpunar á minjasvæðinu. Minjaráð fjallar einnig um varðveislu menningarminja sem heyra til safna og nýtingu þeirra í þágu samfélagsins og tekur þátt í stefnumótun um minjavernd og rannsóknir.

4. gr.

Minjaráð getur boðið gestum á fundi, til samræðu og samráðs eða sérfræðingum til kynninga og fyrirlestrahalds. Fundi minjaráða skal halda eftir því sem nauðsynlegt er talið, þó eigi sjaldnar en tvisvar á ári. Til funda skal boðað með minnst tveggja vikna fyrirvara. Kostnaður vegna funda skal greiddur af Minjastofnun Íslands, þar undir fellur: ferðakostnaður, fundaraðstaða, veitingar, vettvangsferðir og fyrirlestrahald.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 10. gr. laga um menningarminjar, nr. 80/2012, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 7. mars 2022.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.