Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. júní 2021

342/2013

Reglugerð um þróun upplýsinga- og fjarskiptatækni til notkunar fyrir skynvædd samgöngukerfi (ITS).

1. gr. Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að setja rammareglur til stuðnings samræmdri og samfelldri útbreiðslu skynvæddra samgöngukerfa á Íslandi og innan EES með því að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB.

Með setningu reglugerðarinnar er að því stefnt að skynvædd samgöngukerfi byggist á rekstrarsamhæfðum kerfum sem grundvallast á opnum og opinberum stöðlum sem allir þjónustuveitendur og notendur hafa aðgang að án mismununar.

2. gr. Orðskýringar.

  1. Skynvædd samgöngukerfi (ITS): Beiting upplýsinga- og fjarskiptatækni við söfnun gagna og miðlun upplýsinga um umferð og umferðarstýringu.
  2. Rekstrarsamhæfni: Geta kerfa og undirliggjandi viðskiptaferla til að skiptast á gögnum og deila upplýsingum og þekkingu.
  3. Tæknibúnaður fyrir skynvædd samgöngukerfi: Hagnýtt tæki til að beita skynvæddu samgöngukerfi.
  4. Samfelldni í þjónustu: Geta til að tryggja snurðulausa þjónustu á samgöngunetum innan EES.
  5. Forskrift: Bindandi ráðstöfun þar sem mælt er fyrir um ákvæði sem innihalda kröfur, verklagsreglur eða einhverjar aðrar viðeigandi reglur.
  6. Staðall: Staðall eins og hann er skilgreindur í 6. mgr. 1. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 98/34/EB frá 22. júní 1998 sem setur reglur um tilhögun upplýsingaskipta vegna tæknilegra staðla og reglugerða.

3. gr. Setning reglna um forskriftir.

Ráðherra er heimilt að setja nauðsynlegar reglur vegna forskrifta sem settar verða í samræmi við ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB í tengslum við útbreiðslu skynvæddra samgöngukerfa (ITS).

4. gr. Forgangssvið og forgangsaðgerðir.

Við útbreiðslu skynvæddra samgöngukerfa (ITS) skal taka mið af ákvæðum tilskipunar 2010/40/ESB, þ. á m. um forgangssvið og forgangsaðgerðir eins og þær eru skilgreindar í tilskipuninni.

5. gr. Reglur um friðhelgi einkalífs og vernd persónuupplýsinga.

Vinnsla persónuupplýsinga í tengslum við rekstur tæknibúnaðar og þjónustu fyrir skynvædd samgöngukerfi skal fara fram í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

6. gr. Reglur um bótaábyrgð.

Um bótaábyrgð vegna tjóns sem rekja má til galla á tæknibúnaði og þjónustu fyrir skynvædda upplýsingamiðlun og umferðarstýringu fer eftir gildandi lögum um skaðsemisábyrgð.

7. gr. Skýrslugjöf.

Eigi síðar 27. ágúst 2013 skal ráðherra gefa Eftirlitsstofnun EFTA skýrslu um starfsemi og verkefni sem varða forgangssviðin sem um getur í 2. gr. tilskipunarinnar.

Eigi síðar en 31. desember 2013 skal ráðherra veita Eftirlitsstofnun EFTA upplýsingar um aðgerðir á sviði skynvæddra samgöngukerfa sem fyrirhugaðar eru á næstu fimm árum.

Fara skal að leiðbeiningum um skýrslugjöf sem samþykktar verða í samræmi við málsmeðferð samkvæmt 2. mgr. 15. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB.

Í kjölfar fyrstu skýrslunnar skal ráðherra gefa Eftirlitsstofnun EFTA skýrslu á þriggja ára fresti um framvindu varðandi útbreiðslu aðgerðanna sem um getur í 1. mgr.

8. gr. Innleiðing

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn, skulu gilda hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af viðaukanum, 1. bókun um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins.

Með reglugerð þessari eru innleiddar og öðlast gildi hér á landi eftirtaldar gerðir:

  1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB frá 7. júlí 2010 um ramma um útbreiðslu skynvæddra samgöngukerfa á sviði flutninga á vegum og um tengingu þeirra við aðra flutningsmáta, sem vísað er til í XVI. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102/2011, þann 30. september 2011. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 65, 1. desember 2011, bls. 13.
  2. Reglugerð (ESB) nr. 305 frá 2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar samræmda veitingu rekstrarsamhæfðs neyðarnúmers fyrir ökumenn á vegum (e. eCall) innan alls Evrópusambandsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 132 frá 2012, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014, bls. 506.
  3. Reglugerð (ESB) nr. 885 frá 2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar veitingu upplýsingaþjónustu um örugg og áreiðanleg bílastæði fyrir vörubifreiðar og atvinnuökutæki innan alls Evrópusambandsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50 frá 2014 birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014, bls. 1046.
  4. Reglugerð (ESB) nr. 886 frá 2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar gögn og málsmeðferðarreglur svo veita megi, þar sem því verður við komið, almennar lágmarksupplýsingar sem tengjast umferðaröryggi án endurgjalds fyrir notendur, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50 frá 2014 birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 10. apríl 2014, bls. 467.
  5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 962 frá 2015 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar veitingu umferðarupplýsingaþjónustu á rauntíma innan alls Evrópusambandsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317 frá 2015 birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 27 frá 12. maí 2016, bls. 368.
  6. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1926 frá 31. maí 2017 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar veitingu fjölþátta ferðaupplýsingaþjónustu innan alls Evrópusambandsins.

9. gr. Gildistaka

Reglugerðin er sett samkvæmt 45. gr. vegalaga nr. 80/2007, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.