Samgönguráðuneyti

118/2000

Reglugerð um gjöld fyrir skoðun, skráningu, mælingu skipa o.fl. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um gjöld fyrir skoðun, skráningu, mælingu skipa o.fl.

1. gr.

Skipagjald.

Eigandi skips skal greiða árlega í ríkissjóð sérstakt gjald, skipagjald, af hverju skipi sem skráð er á aðalskipaskrá. Í skipagjaldi er meðtalinn kostnaður vegna aðalskoðunar skipsins sem framkvæmd er hér á landi.

Skylda til að greiða skipagjald fellur eigi niður þótt eigandi skips hafi ekki látið skoða skip árlegri aðalskoðun, né heldur þótt skip hans hafi ekki verið í notkun um stundarsakir.

Heimilt er að fella niður helming skipagjalds hafi skip ekki verið skoðað né haft haffæri á viðkomandi almanaksári.

Ef skip eru afskráð vegna úreldingar eða sölu úr landi er Siglingastofnun Íslands heimilt að fella hluta skipagjalda afskráningarárs niður að því tilskildu að aðalskoðun hafi ekki farið fram á því ári.

Fari aðalskoðun fram erlendis að beiðni eiganda ber honum að greiða auk skipagjalds skv. 1. mgr. fargjöld og dagpeninga skoðunarmanns.

Skipagjaldið skal vera sem hér segir:

 

Skip flokkuð hjá Siglingastofnun Íslands:

Kr.

Fyrir skip allt að 8 m að skráningarlengd

11.400

Fyrir skip 8 m á lengd til 15 m mestu lengd

20.500

Fyrir skip 15 m að lengd til 24 m skráningarlengd

45.800

Fyrir skip 24 m að lengd til 45 m skráningarlengd

90.900

Fyrir skip 45 m að lengd til 60 m skráningarlengd

150.000

Fyrir skip yfir 60 m að skráningarlengd

198.600

Fyrir skip flokkuð hjá viðurkenndu flokkunarfélagi greiðist 60% af ofangreindum gjaldstofni.

Fyrir flotbryggjur og önnur mannvirki á skipaskrá, sem ekki eru háð árlegu eftirliti, greiðist árlegt gjald kr. 17.300.

Fyrir skoðun flotkvía greiðist samkvæmt reikningi.

Ef óskað er eftir að skoðun sé framkvæmd utan dagvinnutíma skal greiða fyrir vinnuna skv. útseldum taxta viðkomandi starfsmanns.

2. gr.

Aukaskoðun.

Fyrir aukaskoðun skal greiða skv. reikningi Siglingastofnunar Íslands.

3. gr.

Nýsmíði.

3.1. Skip með mestu lengd allt að 15 metrum.

3.1.1. Fyrir samþykkt á sérsmíðuðum bátum og fyrsta báti í raðsmíði greiðist sem hér segir:

 

Lengd skips

 

< 6m

6-8 m

8-15 m

Verkefni

kr.

kr.

kr.

Samþykkt teikninga

12.300

25.400

37.550

Eftirlit með smíði bols

6.200

12.400

20.050

Skoðun á búnaði

4.600

10.800

15.450

Hleðslu- og stöðugleikaprófun

4.600

9.600

12.450

Reynslusigling

3.150

9.150

10.750

Skráning og mæling sjá 7. gr.

3.1.2. Fyrir samþykkt á raðsmíðuðum bátum og bátum sem eru að einhverju leyti smíðaðir undir eftirliti flokkunarfélags greiðist sem hér segir:

 

Lengd skips

 

< 6m

6-8 m

8-15 m

Verkefni

kr.

kr.

kr.

Samþykkt teikninga

-

7.600

11.300

Eftirlit með smíði bols

-

3.700

6.050

Skoðun á búnaði

-

10.750

15.450

Skráning og mæling sjá 7. gr.

Fyrir þilfarsbáta bætast kr. 11.800 við framangreinda niðurstöðu, fyrir prófun á stöðugleika.

Lengdir báta sem tilgreindir eru í framangreindum töflum eru mældar á milli stafna í borðstokkshæð þegar um er að ræða 6 metra lengdina, en mestu lengd á bol samkvæmt mælingareglum við mælingu á 8 og 15 metrum.

3.1.3. Fyrir samþykkt á gömlum bátum skal fara að sem við samþykkt á nýsmíði eftir því sem á við hverju sinni.

Fari skoðun fram erlendis greiðist ferðakostnaður að auki.

3.2. Skip sem eru 15 metrar að mestu lengd og lengri:

3.2.1. Fyrir yfirferð á teikningum og eftirlit með nýsmíði þilfarsskipa innanlands, þ.m.t. lokaúttekt og útgáfa skipsskjala, skal greiða til Siglingastofnunar Íslands eftirfarandi gjöld:

Fyrir þilfarsskip styttri en 24 m að skráningarlengd 0,30% af lokaverði skips.

Fyrir þilfarsskip 24 m að skráningarlengd og lengri 0,26% af lokaverði skips.

Lokaverð er það verð sem lagt er til grundvallar við endurgreiðslu á tollum og aðflutningsgjöldum, þar með talinn fjármagnskostnaður verksala (vextir og verðbætur.) Fyrir skip smíðuð erlendis, skal miðað við það verð sem kemur fram á aðflutningsskýrslu skipsins að meðtöldum aðflutningsgjöldum og öðrum kostnaði við innflutninginn.

3.2.2. Fyrir nýsmíði þilfarsskipa erlendis skal greiða til Siglingastofnunar Íslands skv. 3.2.1. þessa töluliðs að viðbættum fargjöldum og dagpeningum skoðunarmanna.

3.2.3. Fyrir skip sem smíðuð eru skv. reglum og undir eftirliti viðurkennds flokkunarfélags skal greiða 60% af gjaldi skv. lið 3.2.1 auk fargjalda og dagpeninga skoðunarmanna sé skipið smíðað erlendis.

3.2.4. Eftirlitsgjöld skv. 2. tölulið þessarar greinar skal greiða á byggingartímanum skv. sérstökum greiðslusamningi við Siglingastofnun Íslands. Lokagreiðsla fer fram við afhendingu skipsskjala. Siglingastofnun er heimilt að semja um að taka gjald fyrir eftirlit með nýsmíði skv. reikningi og töxtum stofnunarinnar fyrir viðkomandi starfsmenn. Í því tilfelli innheimtist að auki útlagður kostnaður og önnur gjöld skv. reglugerð þessari s.s. vegna útgáfu skipsskjala.

3.2.5. Fyrir skoðun á notuðum skipum sem fyrirhugað er að flytja til landsins skal greiða vinnu og útlagðan kostnað skv. reikningi og töxtum stofnunarinnar fyrir viðkomandi starfsmenn auk annarra gjalda s.s. fyrir mælingu og útgáfu skipsskjala eftir því er við á.

4. gr.

Eftirlit með viðgerðum.

4.1. Fyrir eftirlit með viðgerðum skal greiða skv. reikningi Siglingastofnunar Íslands eða sérstökum greiðslusamningi ef hagkvæmt þykir.

4.2. Fari viðgerð fram erlendis er heimilt að innheimta fyrirfram hjá eiganda skips upphæð sem svarar til fargjalda og áætlaðra dagpeninga skoðunarmanna, enda sé ekki gerður greiðslusamningur.

5. gr.

Hleðslumerki.

Fyrir hleðslumerkjaútreikninga og útgáfu skírteina ásamt hleðslumerkjaskoðun, sem ekki fellur undir nýsmíði, skal greiða:

 

Kr.

Skip til og með 500 BT

11.800

Skip 501 BT til og með 1000 BT

15.700

Skip 1001 BT til og með 2000 BT

19.600

Skip 2001 BT til og með 5000 BT

23.550

Skip stærri en 5000 BT greiðast eftir reikningi Siglingastofnunar Íslands. Fyrir útgáfu hleðslumerkjaskírteinis sem gefið er út skv. hleðslumerkjaútreikningum frá erlendum stjórnvöldum eða viðurkenndu flokkunarfélagi skal greiða kr. 3.950.

Fyrir árlega áritun hleðslumerkjaskírteinis skal greiða kr. 1.310 fari umrædd skoðun fram um leið og búnaðarskoðun.

Fyrir endurnýjun á skírteini sem glatað er, eða fallið úr gildi, skal greiða kr. 1.200 enda sé sérstakrar skoðunar ekki þörf.

6. gr.

Skráning skipa og útgáfa skipsskjala.

Fyrir skráningu skips og útgáfu skipsskjala skal greiða:

 

Kr.

1. Ísl. mælibréf og skráningaskíreini fyrir skip allt að 15 m að mestu lengd

5.400

2. Þjóðernisskírteini

8.800

3. Mælibréf

5.400

4. Staðfest afrit af mælibréfi eða skírteini

1.030

5. Einkaleyfi á skipsnafni

30.500

6. Viðurkenningarskírteini og skilti

800

7. Leyfi til farþegaflutninga með skipum

4.200

Við eigendaskipti og umskráningu skips skulu öll áfallin ógreidd gjöld skv. reglugerð þessari greidd að fullu.

Heimilt er að taka hálft gjald fyrir endurútgáfu íslensks mælibréfs og skráningarskírteinis fyrir skip allt að 15 m að mestu lengd ef um eina breytingu er að ræða er varðar mælinguna og útreikninga er ekki þörf.

7. gr.

Mæling skipa.

Fyrir endurmælingu skips og útgáfu mælibréfs eða yfirlýsingu skal greiða:

1.

Samkvæmt Oslóarsamþykkt:

Kr.

 

Fyrir opna báta

9.550

 

Þilfarsskip allt að 25 brl.

15.550

 

Þilfarsskip 25 brl. til og með 100 brl.

21.650

 

Þilfarsskip 101 brl. til og með 250 brl.

34.400

 

Þilfarsskip 251 brl. til og með 500 brl.

52.600

 

 

Kr.

 

Þilfarsskip 501 brl. til og með 1600 brl.

74.700

 

Þilfarsskip 1601 brl. til og með 5000 brl.

99.000

Þilfarsskip 5001 brl. og stærri greiðist eftir reikningi Siglingastofnunar Íslands.

2.

Samkvæmt íslenskum mælingarreglum og Lundúnasamþykkt frá 1969:

Kr.

 

Flokkur

I.

Fyrir skipa allt að 15 m mestu lengd

9.550

 

Flokkur

II. A

Skip 15,01 m mestu lengd - 24,00 m skráningarlengd

 

 

 

 

Mæling í slipp (engin línu- eða bandateikning).

 

 

 

 

Vinna eftir mælingum og teikningum, útg. skírteinis

44.500

 

 

II. B

Eftirlitsmæling um borð.

 

 

 

 

Vinna við útreikning eftir línu eða bandateikningum

 

 

 

 

og öðrum teikningum

31.200

 

Flokkur

III. A

Skip 24,01 m - 45,00 m skráningarlengd

 

 

 

 

Mæling í slipp (engin línu- eða bandateikning).

 

 

 

 

Vinna eftir mælingum og teikningum, útgáfa mælisbréfs

80.900

 

 

III. B

Eftirlitsmæling um borð

 

 

 

 

Vinna við útreikning eftir línuteikningu eða bandateikningu

 

 

 

 

og öðrum stálteikningum og útgáfu mælisbréf

54.000

 

Flokkur

IV. A

Skip 45,01 m - 60,00 m skráningarlengd

 

 

 

 

Mæling í slipp (engin línu- eða bandateikning)

 

 

 

 

Vinna eftir mælingum og teikningum og útgáfa mælisbréfs

112.400

 

 

IV. B

Eftirlitsmæling um borð.

 

 

 

 

Vinna við útreikning eftir línu- eða bandateikningu og

 

 

 

 

öðrum stálteikningum og útg. mælibréfs

80.900

 

Flokkur

V.

Skip 60,01 m skráningarlengd og lengri.

 

 

 

 

Greiðsla samkvæmt reikningi.

 

2.1. Fyrir endurskoðun á mæliskýrslum gerðum af öðrum aðila en Siglingastofnun Íslands samkvæmt Lundúnasamþykkt um mælingu skipa frá 1969 greiðist:

 

Kr.

Fyrir skip til og með 45 m skráningarlengd

18.550

Fyrir skip yfir 45 m skráningarlengd

30.900

3. Að auki skal greiða kostnað á ferðalögum innanlands og erlendis vegna mælinga skv. reikningi Siglingastofnunar Íslands.

8. gr.

Útgáfa vottorða.

Vottorð um útstrikun skipa af aðalskipaskrá

Kr. 1.320.

9. gr.

Önnur þjónusta.

Fyrir aðra þjónustu Siglingastofnunar Íslands skal greitt skv. reikningi stofnunarinnar.

Siglingastofnun Íslands framkvæmir skoðun á fjarskiptabúnaði smábáta a.m.k. einu sinni á hverju almanaksári. Til smábáta teljast opnir vélbátar 6 metra og lengri og fiskiskip með þilfari allt að 15 metrum að mestu lengd, enda hafi þessi skip eingöngu VHF talstöðvar, en ekki millibylgju- og/eða stuttbylgjustöðvar um borð og sigli á hafsvæði STK og A1, sbr. 2. gr. reglugerðar um fjarskiptabúnað og fjarskipti íslenskra skipa nr. 53/2000.

Gjöld fyrir skoðun skv. 2. gr. hjá bátum með VHF rásir eingöngu skulu vera á ári kr. 1.420.

10. gr.

Þjónusta utan skrifstofutíma.

Gjöld samkvæmt reglugerð þessari miðast við að störf hinna fastráðnu starfsmanna Siglingastofnunar Íslands séu unnin á venjulegum skrifstofutíma.

Sé óskað eftir þjónustu utan þess tíma skal að auki greiða fyrir vinnu viðkomandi starfsmanns samkvæmt útseldum taxta stofnunarinnar.

11. gr.

Innheimta.

Utan Reykjavíkur skulu gjöld samkvæmt 1. gr. innheimt af sýslumönnum.

Í Reykjavík skulu gjöldin innheimt af tollstjóra.

Gjöldin eru miðuð við skráningu 1. janúar og er gjalddagi og eindagi sá sami hinn 1. apríl sama árs.

Gjöld skv. öðrum greinum reglugerðarinnar skulu innheimt af Siglingastofnun Íslands eftir reikningum sem hún gefur út.

Innheimtumenn skulu skila gjöldum, sem þeir innheimta skv. reglugerð þessari í ríkissjóð.

12. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 28. gr. laga um eftirlit með skipum, nr. 35/1993, sbr. 4. gr. laga nr. 62/1993, sbr. 20. gr. laga um skráningu skipa nr. 115, 31. desember 1985, með síðari breytingum, og 15. gr. laga um skipamælingar nr. 50, 12. maí 1970, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um gjöld fyrir skoðun, skráningu og mælingu skipa o.fl. nr. 61 frá 26. janúar 1999.

Samgönguráðuneytinu, 7. febrúar 2000.

Sturla Böðvarsson.

Jón Birgir Jónsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica