Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

335/1997

Hafnarreglugerð fyrir Dalabyggð.

HAFNARREGLUGERÐ

fyrir Dalabyggð.

I. KAFLI. Hafnirnar og stjórn þeirra.

1. gr. Takmörk Skarðsstöðvarhafnar.

1.1 Hafnarsvæði Skarðsstöðvarhafnar á sjó, markast af línu sem dregin er frá punkti, sem er á línu sem dregin er frá bryggjuenda skemmstu leið til Örfyriseyjar 80 m frá bryggjunni. Annars vegar hornrétt 150 m í austur og þaðan af línu dreginni hornrétt til lands. Hins vegar hornrétt 150 m í vestur og þaðan af línu dreginni hornrétt til lands.

Hafnarsvæðið á landi er land Dalabyggðar keypt úr landi Skarðs samkv. kaupsamningi dags. 19. apríl, 1996 og þinglýstum 18. maí, 1996.

1.2 Landsvæði hafnarinnar skiptist í:

Bryggjur, sjóvarnargarða, legusvæði og óskipulagt land.

2. gr. Takmörk Búðardalshafnar.

2.1 Hafnarsvæði Búðardalshafnar markast af línu, sem dregin er frá punkti A, sem er á miðlínu Miðbrautar 150 framan við núverandi bryggjuhaus. Þaðan 200 m norður og þaðan í lóðarmörk Búðarbrautar 10 og 12. Frá punkti A 350 m til suðurs og þaðan í lóðarmörk Ægisbrautar 5 og 7. Að ofanverðu ráða Búðarbraut og Ægisbraut, en undan eru skildar lóðirnar Búðarbraut 1 og Ægisbraut 2-4.

2.2 Landsvæði hafnarinnar skiptist í:

Bryggjur, afgreiðslusvæði, götur, iðnaðar- og baksvæði.

3. gr. Stjórn hafnanna.

3.1 Dalabyggð er eigandi hafnanna. Hreppsnefnd fer með stjórn hafnarmála undir yfirumsjón samgönguráðuneytisins.

3.2 Hafnarstjórn fer með framkvæmd hafnarmála í umboði hreppsnefndar. Hafnarstjórn skal skipuð þrem fulltrúum og jafnmörgum til vara er hreppsnefnd kýs. Kjörtímabil hafnarstjórnar er hið sama og hreppsnefndar.

3.3 Auk hinna kjörnu fulltrúa eiga sveitarstjóri og hafnarstjóri sæti í hafnarstjórn með málfrelsi og tillögurétt.

3.4 Hreppsnefnd kýs formann nefndarinnar og stýrir hann fundum hennar og boðar til þeirra í samráði við hafnarstjóra.

4. gr. Hlutverk og valdsvið hafnarstjórnar.

4.1 Hafnarstjórn gerir fjárhagsáætlun fyrir hafnarsjóð, þar sem fram kemur viðhald hinna ýmsu hafnarmannvirkja svo og nýbyggingar. Hafnarstjórn skal leggja fjárhagsáætlun fyrir hreppsnefnd til staðfestingar. Hafnarstjórn gerir tillögu til hreppsnefndar um ráðningu hafnarstjóra og annarra fastra starfsmanna hafnanna.

4.2 Hafnarstjórn hefur endanlegt ákvörðunarvald um:

Rekstur hafnanna, svo sem ráðstöfun á aðstöðu, þ.m.t. leiga á húsnæði í eigu hafnanna og landi þeirra, sem leigt er til skamms tíma.

Leyfisveitingar til starfsemi á hafnarsvæðunum og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæða er hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.

4.3 Hafnarstjórn gerir tillögur til hreppsnefndar varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðunum. Byggingamál á hafnarsvæðunum skulu hljóta umfjöllun hafnarstjórnar og bygginganefndar áður en þau eru lögð fyrir hreppsnefnd. Innan hafnar má ekki heldur gera nein hafnarmannvirki, né breyta þeim mannvirkjum sem nú eru og ekki heldur fylla upp, né dýpka út frá landi, nema leyfi hafnarstjórnar og/eða hreppsnefndar komi til. Hafnarstjórn hefur eftirlit á hafnarsvæðunum, með byggingu mannvirkja, sem undanþegin eru ákvæðum byggingarlaga nr. 54/1978.

5. gr. Hlutverk hafnarstjóra.

5.1 Hafnarstjóri sem skipaður er af hreppsnefnd að fenginni tillögu hafnarstjórnar fer með daglega stjórn hafnanna í umboði hafnarstjórnar. Hafnarstjóri undirbýr mál sem leggja á fyrir hafnarstjórn og veitir viðtöku erindum til hennar. Hann sér um framkvæmd samþykkta hafnarstjórnar og veitir hafnarstjórn og hreppsnefnd upplýsingar um málefni hafnanna. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs og ber í hvívetna að gæta hagsmuna hafnarsjóðs. Í erindisbréfi má setja nánari reglur um starfssvið hafnarstjóra.

5.2 Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnarreglugerðar og fara að öðru leyti eftir samþykktum hafnarstjórnar og hreppsnefndar.

5.3 Hafnarstjóri sér um að gætt sé reglu á höfnunum og á landi þeirra. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans eða þeirra sem hann felur slík störf.

6. gr. Aðrir starfsmenn hafnanna.

6.1 Hafnarstjóri ræður vikukaupsmenn og fólk til afleysinga.

6.2 Hafnarstarfsmenn, sem hafa umsjón með eignum hafnanna, gæta reglu og sinna hafnarvörslu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar.

6.3 Starfsmenn hafnanna skulu gæta allrar kurteisi í starfi. Þyki einhverjum sér óréttur gerður af starfsmönnum hafnanna, getur hann kært það til hafnarstjórnar en skipun starfsmannsins ber að hlýða þegar í stað.

II. KAFLI. Umferð skipa.

7. gr. Skilgreining á skipi.

7.1 Skip telst í reglugerð þessari sérhvert fljótandi far, sem nota má sem flutningatæki, dvalarstað, vinnustað, framleiðslustað eða geymslustað.

8. gr. Almennar reglur við komu og brottför.

8.1 Við komu og brottför að degi til skulu skip, önnur en íslensk fiskiskip, hafa þjóðfána við hún.

8.2 Þjónusta við skip svo sem vatnsafgreiðsla og tenging rafmagns er unnin af hafnarvörðum undir stjórn hafnarstjóra. Skip skulu við komu, brottför og siglingu um hafnarsvæðin hafa opna talstöð á viðskiptabylgju Skarðsstöðvarhafnar.

8.3 Sérhvert skip skal boða áætlaða komu sína (ETA) til hafnarvarða með fjarskiptasambandi eða gegnum umboðsmenn með minnst 24 klst. fyrirvara, en fiskiskip í síðasta lagi með 1 klst. fyrirvara. Tilkynna skal brottför með minnst 3ja klst. fyrirvara.

8.4 Skipstjóri skal við komu til hafnar gefa hafnarverði eftirfarandi upplýsingar eftir því sem við á:

Skipsnafn, skipaskrárnúmer, þjóðerni, stærð samkvæmt mælibréfi, djúpristu og síðasta viðkomustað.

Nafn skipstjóra.

Stærð áhafnar og fjölda farþega.

Tegund og magn farms.

Um hættulegan farm, tegund (tækniheiti og IMDG flokkun) og magn.

Um hugsanlega sjúkdóma um borð.

Nafn umboðsmanns.

8.5 Búnaður skipa skal uppfylla kröfu alþjóðasamþykkta, sem íslensk stjórnvöld hafa staðfest svo og sérreglna Siglingastofnunar Íslands. Skipstjórnarmenn skulu sýna hafnastarfsmönnum, ef óskað er, skírteini um fullnægjandi búnað skipa sinna.

9. gr. Umferð um hafnirnar.

9.1 Skip sem kemur til hafnar skal leita upplýsinga hjá hafnarverði eða umboðsmanni um það hvar binda megi skipið við bryggju. Óheimilt er að binda skip annars staðar en þar sem starfsmaður hafnar vísar til.

9.2 Skip mega ekki láta vélar sínar ganga af svo miklu afli að öðrum skipum eða mannvirkjum stafi hætta af straumi frá aðal- eða þverskrúfum.

9.3 Skylt er að gæta allrar varúðar í meðferð elds og ljósa í skipum á höfninni.

9.4 Sérhvert skip, sem ekki er bundið við bryggju eða hafnarbakka, skal hafa uppi fyrirskipuð ljós og dagmerki.

9.5 Skemmti- og smábátar þar með taldir ára- og seglbátar, skulu svo sem frekast er unnt, forðast siglingaleiðir stærri skipa, sem eru á leið til eða frá höfninni. Ennfremur skal sýna sérstaka aðgæslu er skip eru að leggja að og frá viðlegu.

10. gr. Skip í viðlegu.

10.1 Skip telst í viðlegu er það liggur við hafnarbakka, bryggju, þ.m.t. utan á öðru skipi, eða föst legufæri og er í eða bíður eftir afgreiðslu eða þjónustu.

10.2 Skip hljóta viðlegu í sömu röð og þau koma til hafnar. Undanskilin eru skip, sem hafa fastar viðlegur eða umsamin forgangsafnot hafnarbakka og skemmtiferðaskip.

10.3 Ekki má festa skip við hafnarbakka eða bryggjur nema við festarhringa eða festarstólpa. Festum skal þannig komið fyrir, að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka og skulu festar auðkenndar með veifum eða öðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarstjóra þess ekki nægilega gætt, getur hann krafist að bætt sé úr því tafarlaust.

10.4 Þegar búið er að leggja skipi við bryggju má ekki flytja það innan hafnar án leyfis hafnarstjóra. Skipstjóri er skyldur til að flytja skipið ef hafnarstjóri skipar svo fyrir. Skip sem ekki er verið að lesta eða losa eða eru ekki í rekstri mega aldrei liggja svo í höfninni, að þau tálmi vinnu við önnur skip og skal skylt að hlýða boðum hafnarinnar um flutning þeirra. Færist hlutaðeigandi undan að færa skipið samkvæmt ákvæðum þessa töluliðar eða dragist flutningur þess fram yfir þann tíma er hafnarstjóri hefur fyrirskipað, er hafnarstjóra heimilt að láta flytja skipið á kostnað og ábyrgð skipseiganda.

10.5 Í sérhverju skipi skal að jafnaði vera að minnsta kosti einn maður sem tekið getur á móti skipunum starfsmanna hafnar og framkvæmt þær. Skal hann sjá um að óviðkomandi aðilar hafi ekki aðgang að skipinu og ber eigandi fulla ábyrgð á öllu því tjóni, er leiða kann af vanrækslu í þessu efni. Heimilt er hafnarstjóra að fallast á gæslu sérstakra öryggisvarða, enda séu hjá hafnarvörðum nöfn skipstjórnarmanna, sem kalla má út vegna veðurs eða annarra orsaka.

10.6 Hafnarverðir ákveða legur fyrir skip 12 brl. og minni við viðeigandi mannvirki eftir því sem rými leyfir. Þegar skip er sjósett eða siglt í höfn, skal eigandi tilkynna það hafnarvörðum. Skip þessi eru á ábyrgð eigenda, sama hvort þau eru á floti í höfninni eða á landi hennar. Heimilt er að fela félögum smábátaeigenda umsýslu á ákveðnum svæðum undir eftirliti hafnarstjóra samkvæmt nánari reglum.

11. gr. Skip í lægi.

11.1 Skip telst í lægi er það liggur fyrir akkeri eða öðrum legufærum og er ekki í rekstri.

11.2 Skipum sem leggja skal í lægi má aðeins leggja á þeim stöðum er hafnarstjóri leyfir. Skipum skal lagt undir umsjá hafnarstjóra og legufæri ákveðin í samráði við hann. Eftirlit og viðhald legufæra er á ábyrgð skipseiganda. Meðan skip liggur mannlaust í lægi, skal ekki sjaldnar en tvisvar í mánuði farið út í það til þess að líta eftir, hvort legufæri eða annað hafi haggast eða bilað og ef svo reynist, skal lagfæra það svo fljótt sem auðið er. Áður en skipstjóri fer af skipinu, skal hann skriflega tilgreina hafnarstjóra siglingafróðan mann, sem búsettur sé í Dalabyggð, sem hafa skal umsjón skipsins á hendi. Beinir hafnarstjóri til hans öllum fyrirskipunum sem skipið varða. Sér hann um að þeim sé fullnægt. Verði dráttur á því, skal hafnarstjóri láta fullnægja þeim, en skipseigandi greiði allan kostnað sem af því leiðir.

III. KAFLI. Afnot hafnarmannvirkja og landsvæða.

12. gr. Lestun og losun, almennt.

12.1 Afnot hafnarmannvirkja og lands er öllum heimil, að fengnu leyfi hafnaryfirvalda og gegn greiðslu samkvæmt gjaldskrá.

12.2 Hafnarstjórn ber enga ábyrgð á varningi eða öðrum eignum, sem geymdar eru á hafnarsvæðunum.

12.3 Við lestun og losun skal viðhafa fyllstu gætni til að koma í veg fyrir óeðlilegt slit mannvirkja og búnaðar. Ekki má draga þunga hluti eftir hafnarbökkum, né sturta varningi af bílum án eðlilegs hlífðarlags.

12.4 Hafnarstjórn getur sett hraða- og þungatakmarkanir á hafnarsvæðinu. Í sérstökum tilfellum er hafnarstjóra þó heimilt að veita undanþágu frá slíku.

12.5 Óheimilt er að geyma tækjabúnað á hafnarsvæðum utan eigin leigusvæðis, án leyfis hafnaryfirvalda.

12.6 Þeir munir og vörur, sem skipað er upp eða láta á í skip, mega ekki liggja á bryggju, hafnarbakka eða annars staðar á landi hafnar en á þeim stöðum, sem ætlaðir eru til geymslu á slíkum varningi. Hafnarstjóri getur flutt vörur og muni, sem geymdir eru í óleyfi burt á kostnað og ábyrgð eiganda eða umboðsmanns hans.

12.7 Við lestun og losun á vikri, sandi, kolum og öðru þess háttar er skylt að hafa nægilega sterkar hlífar milli skips og hafnarbakka, svo að ekkert falli fyrir borð. Sé þessa eigi gætt, getur hafnarstjóri stöðvað verkið, uns bætt hefur verið úr því sem áfátt er.

12.8 Þegar lokið er lestun eða losun skal sá er séð hefur um verkið, láta ræsta bryggju þá eða hafnarbakka, sem notuð hefur verið. Farist það fyrir, skal hafnarstjóri sjá um að það sé gert, en afgreiðslumaður skipsins greiði allan kostnað sem af því leiðir.

13. gr. Meðferð eldfims og hættulegs varnings.

13.1 Skip sem flytja sprengiefni, eldfima vökva, lofttegundir undir þrýstingi (flöskugas) eða efni, sem við vissar aðstæður valda eld- eða sprengihættu, mega ekki leggjast að bryggju, fyrr en leyfi hefur verið veitt til þess. Skipstjóra eða umboðsmanni ber að tilkynna hafnarstjóra og slökkviliðstjóra um farminn 24 klst. fyrir áætlaðan komutíma. Tilkynningarskyldan nær til efna, sem samkvæmt alþjóðareglum (International Maritime Dangerous Goods Code) flokkast í flokka 1, 2, 3, 4, og 5. Í tilkynningu skal greina tækniheiti efna og UN-tölu þeirra skv. IMDG-reglum, magn, pökkun og lestun. Sem dæmi um hættulegan varning má nefna: Púður, dýnamít, geomit, hlaðnar patrónur, bensín, steinolíu, aceton, terpentínu, toluol, kosangas, kalciumkarbit, ammoníumnítrat og natríumklórat.

13.2 Losun á vörum sem um ræðir í þessari grein skal að jafnaði framkvæmd strax og skip leggst að bryggju og á undan losun á öðrum varningi. Við lestun skal slíkur farmur lestaður síðast og skal skip láta strax úr höfn að lestun lokinni. Álíti hafnarstjóri að hætta geti stafað af lestun eða losun eldfimrar vöru getur hann stöðvað verkið uns nauðsynlegar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar.

13.3 Skylt er að hafa öryggisvörð við skip sem er að lesta eða losa eldfimar vörur. Hafnarstjóri getur ákveðið að lestun og losun slíkrar vöru fari fram við sérstaka hafnarbakka, þar sem tryggast er talið. Varningur skal geymdur á svæði, sem hafnarstjóri samþykkir. Setja skal sérstakar reglur um nánari framkvæmd og ákvæði þessarar greinar, sbr. ráðleggingar Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) um öryggi við flutning, meðferð og geymslu á hættulegum efnum á hafnarsvæðinu. Skip, sem flytja eldfim efni, skulu á daginn hafa uppi rautt flagg (merkjatákn B) á framsiglu, en á nóttu rautt ljósker. Í skipum sem flytja eldfim efni, má eigi kveikja ljós eða eld nema undir kötlum skipsins eða eldavél skipsins og á lögboðnum ljóskerjum. Tóbaksreykingar eru bannaðar í þeim skipum og á því svæði þar sem unnið er að fermingu eða affermingu eldfims varnings.

IV. KAFLI. Um hafnargjöld í Dalabyggð.

14. gr. Um hafnargjöld.

14.1 Gjöld til hafnarsjóðs skulu innheimt samkvæmt gjaldskrám er settar skulu í samræmi við ákvæði 13. gr. hafnalaga.

V KAFLI. Ýmis ákvæði.

15. gr. Löggæsla á hafnarsvæðum, umferð og fleira.

15.1 Lögreglan í Búðardal hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðum.

15.2 Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga, er bannað að dvelja á landi hafnanna, ef þeir með því tálma lestun og losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hverskonar ökutækja um bryggju, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði. Fólk sem fer um hafnarsvæðið er þar á eigin áhættu og ábyrgð.

15.3 Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða á henni. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðunum án leyfis.

15.4 Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðunum án leyfis. Fiskveiðar á hafnarsvæðum mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir og er heimilt að fjarlægja slík veiðarfæri bótalaust.

15.5 Hafnarstjóra skal tilkynnt um allt það sem bjargað er í höfnunum, en hann gefur lögreglu skýrslu um það.

16. gr. Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

16.1 Ef skip lendir á grynningum eða sekkur, þar sem það að áliti hafnarstjóra tálmar greiðri notkun hafnanna, skal færa það í burtu svo fljótt sem auðið er. Verði dráttur á því, má hafnarstjóri láta færa skipið burt á kostnað eigandans og er honum heimilt að láta selja skipið til lúkningar kostnaðinum, ef nauðsyn krefur. Skipsflök má ekki drags á land á hafnarsvæði án leyfis.

16.2 Ef skip, bátar, bryggjur, flutningatæki á landi eða annar búnaður er í hirðuleysi á hafnarsvæði og/eða veldur óþrifnaði eða hættu, þá skal hafnarstjóri fyrirskipa úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt, má fjarlægja viðkomandi hlut á kostnað eiganda án nokkurrar skaðabótaskyldu.

17. gr. Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

17.1 Engum úrgangi eða rusli má kasta í hafnirnar.

17.2 Bannaður er hverskonar hvalskurður í eða við hafnirnar. Eigi má drags, reka eða flytja á annan hátt inn í hafnirnar hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflunum eða óþægindum í höfnunum, nema leyfi hafnarstjóra komi til.

17.3 Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í hafnirnar olíur, lýsi, olíusora eða annað sem veldur mengun. Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gent ráðstafanir svo olía renni ekki í sjóinn af þilfari, verði óhapp m.a. með því að loka afrennslisleiðum frá þilfari.

17.4 Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skips, sem ekki hafa að mati hafnarstarfsmanna gengið forsvaranlega frá þessum atriðum.

17.5 Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lagaákvæðum á hverjum tíma.

18. gr. Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

18.1 Allir þeir sem æskja afgreiðslu fyrir skip, láns á tækjum eða aðstoðar á einn eða annan hátt hjá höfnunum, skulu snúa sér beint til skrifstofu hafnanna með beiðni þar að lútandi. Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða afgreiðslu, sem eru í vanskilum með gjöld hafnanna.

19. gr. Hverjum gefa skal fyrirmæli.

19.1 Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skal gefa skipstjóra, en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi og eigi heldur umboðsmaður hans, samkvæmt gr. 9.5. Ef stýrimaður er fjarverandi, má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipunina og er það jafngilt sem skipstjóri hefði fengið skipunina sjálfur.

20. gr. Um skaðabótaskyldu.

20.1 Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfnum, mannvirkjum þeirra eða áhöldum fer eftir almennum reglum. Ef samningum um skaðabætur verður ekki við komið, má ákveða þær af tveim dómskvöddum mönnum. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, en gera skal það áður en einn mánuður er liðinn frá því að matsgerð er lokið. Yfirmat skal framkvæmt af þrem dómkvöddum mönnum. Kostnaðinn við yfirmat greiðir sá sem krafðist yfirmats, ef það gengur honum ekki í vil.

20.2 Nú veldur skip skemmdum í höfn eða skipstjóri verður brotlegur við ákvæði reglugerðar þessarar og er þá óheimilt að flytja skipið úr höfn áður en málið er útkljáð, nema fullnægjandi trygging sé sett fyrir greiðslu að dómi hafnarstjóra. Bótakröfum hafnarsjóðs fylgir lögtaksréttur, sbr. 38. gr. hafnalaga.

21. gr. Brot, sektarákvæði og meðferð mála.

21.1 Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt almennum lögum. Sektirnar renna í hafnarsjóð Dalabyggðar. Til tryggingar sektum og vangoldnum gjöldum má leita kyrrsetningar, sbr. 39. gr. hafnalaga.

21.2 Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála. Reglugerð þessi, sem sekt er samkvæmt hafnalögum nr. 23, 29. mars 1994, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Búðardal nr. 463 frá 23. September 1991.

Samgönguráðuneytinu, 16. maí 1997.

Halldór Blöndal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.