Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Breytingareglugerð

324/2021

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð um stuðningslán, nr. 534/2020.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:

  1. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Lánastofnun getur þó framlengt lánstíma og frestað endurgreiðslum um allt að 12 mánuði.
  2. Í stað orðanna "fjögur" og "tveimur" í 2. mgr. kemur: fimm; og: þremur.
  3. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Breytingar á skilmálum rafræns skuldabréfs skv. 14. gr. laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, vegna framlengingar lánstíma og frestun endurgreiðslna geta verið rafrænar og fer um þær eftir ákvæðum 14. og 15. gr. laganna.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 24. gr. laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 24. mars 2021.

Bjarni Benediktsson.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.