Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 19. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. okt. 2015

318/2013

Reglugerð um endurgreiðslu á umtalsverðum kostnaði við læknishjálp, lyf og þjálfun.

1. gr. Endurgreiðslur umtalsverðra útgjalda.

Heimilt er að endurgreiða að hluta útgjöld sjúkratryggðra einstaklinga vegna læknishjálpar, lyfja, sjúkraþjálfunar, iðjuþjálfunar og talþjálfunar enda teljist þau umtalsverð miðað við tekjur sjúkratryggðs eða fjölskyldu hans.

Tryggingastofnun ríkisins annast framkvæmd reglugerðar þessarar.

2. gr. Kostnaður.

Endurgreiðslur taka til eftirfarandi læknis-, lyfja- og þjálfunarkostnaðar sem stofnast hefur hérlendis:

  1. Hluta sjúkratryggðs í kostnaði við læknishjálp, rannsóknir, geisla- og myndgreiningar og beinþéttnimælingar, á opinberum sjúkrastofnunum og hjá læknum sem starfa samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands, sbr. 4.-6. gr., 1., 2. og 4. mgr. 9. gr., 12. gr., 13. gr. og 15. gr. reglugerðar nr. 1182/2013, um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingu.
  2. Hluta sjúkratryggðs í kostnaði við nauðsynleg lyf sem sjúkratryggingar taka þátt í að greiða og afgreidd eru gegn lyfseðli samkvæmt reglugerð nr. 313/2013, um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum, með síðari breytingum.
  3. Lyf vegna barna til 18 ára aldurs, sem afgreidd eru gegn lyfseðli.
  4. Hluta sjúkratryggðs í sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun á opinberum sjúkrastofnunum og hjá sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum og talmeinafræðingum sem starfa samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands, samkvæmt reglugerð nr. 166/2014, um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til og hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði við þjálfun, með síðari breytingum.

Áður en endurgreiðslur eru ákvarðaðar skal draga frá heildarkostnaði uppbætur sem elli- eða örorkulífeyrisþegi nýtur vegna læknishjálpar eða lyfja samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum.

3. gr. Mat á endurgreiðslu og tekjur.

Við mat á því hvort endurgreiða skuli útgjöld vegna læknishjálpar, lyfja og þjálfunar skal leggja til grundvallar kostnað sjúkratryggðs einstaklings eða fjölskyldu hans samkvæmt 2. gr., að teknu tilliti til viðmiðunartekna samkvæmt 5. mgr. 3. gr.

Einhleypingur telst vera sá sem er hvorki í hjúskap né óvígðri sambúð og er einn um heimilisrekstur. Einstaklingar sem eru í hjúskap eða óvígðri sambúð teljast sem fjölskylda.

Viðmiðunartekjur vegna endurgreiðslu eru eftirfarandi:

Viðmiðunartekjur
einhleypings næsta Kostnaður Endurgreiðsla útgjalda
almanaksár á undan 3 mánuðir umfram kostnað
2.100.000 kr. og lægri 0,7% af tekjum 90%
2.100.000-2.800.000 kr. 0,7% af tekjum 75%
2.800.000-4.000.000 kr. 0,7% af tekjum 60%
Viðmiðunartekjur
fjölskyldu næsta Kostnaður Endurgreiðsla útgjalda
almanaksár á undan 3 mánuðir umfram kostnað
3.150.000 kr. og lægri 0,7% af tekjum 90%
3.150.000-4.500.000 kr. 0,7% af tekjum 75%
4.500.000-6.400.000 kr. 0,7% af tekjum 60%

Einhleypingur eða fjölskylda greiðir kostnað sem miðast við 0,7% af tekjum en fær endurgreitt hlutfall af útgjöldum umfram kostnaðinn. Endurgreiðsluhlutfallið lækkar með hækkandi tekjum. Þegar viðmiðunartekjur eru yfir 4.000.000 hjá einhleypingi og 6.400.000 kr. hjá fjölskyldu er ekki lengur um endurgreiðslu að ræða, sbr. þó 4. mgr.

Viðmiðunartekjur eru skattskyldar árstekjur einhleypings eða fjölskyldu næsta almanaksár á undan, nema um börn sé að ræða. Fyrir hvert barn yngra en 18 ára dragast 465.000 kr. frá árstekjum. Heimilt er þó að víkja frá viðmiðunartekjum skv. 3. mgr. ef um verulega lækkun tekna er að ræða, svo sem vegna alvarlegra veikinda eða atvinnumissis.

4. gr. Umsóknir og fylgiskjöl.

Umsóknir um endurgreiðslur skulu berast Tryggingastofnun ríkisins eða umboðum hennar á eyðublaði eða með rafrænum hætti. Með umsókn skulu fylgja kvittanir er staðfesta útgjöld vegna læknishjálpar, lyfja og þjálfunar. Einnig er unnt að sýna fram á útgjöld vegna lyfja með því að framvísa tölvuútskrift frá apótekum.

Endurgreiðslur miðast við útgjöld vegna læknishjálpar, lyfja og þjálfunar þrjá mánuði í senn, þ.e. 1. janúar - 31. mars, 1. apríl - 30. júní, 1. júlí - 30. september og 1. október - 31. desember ár hvert. Endurgreiðslur samkvæmt reglugerð þessari miðast við útgjöld sem stofnað hefur verið til frá 1. október 2015.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 11. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 4. maí 2013. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 355/2005 um endurgreiðslu á umtalsverðum útgjöldum sjúkratryggðra vegna læknishjálpar, lyfja og þjálfunar, með síðari breytingum.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.