Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

310/2016

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um skilgreiningu, lýsingu og kynningu á tilteknum áfengum drykkjum (III).

1. gr. Gildissvið.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XXVII. kafla II. viðauka samningsins (brenndir drykkir), gilda hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans.

Innflutningur og markaðssetning á brenndum drykkjum er heimil eftir því sem tilgreint er í XXVII. kafla II. viðauka samningsins.

2. gr. Innleiðing reglugerða.

Eftirfarandi reglugerðir Evrópusambandsins um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á áfengum drykkjum skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 251/2014, frá 26. febrúar 2014 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 5/2016, 28. janúar 2016, bls. 739), um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á kryddblönduðum vínafurðum og niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1601/91, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 306/2015, frá 11. desember 2015, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/210, frá 10. febrúar 2015 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 18/2016, 31. mars 2016, bls. 212), um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 110/2008 um skilgreiningu, lýsingu, kynningu, merkingu og vernd landfræðilegra merkinga á brenndum drykkjum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 22/2016, frá 5. febrúar 2016, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun.

3. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 193. gr. tollalaga nr. 88/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 31. mars 2016.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Steinar Örn Steinarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.