Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

300/2016

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.

1. gr.

Við 7. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1190 frá 20. júlí 2015 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í 1a. XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 267/2015, þann 30. október 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 10. desember 2015, bls. 480-486.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1298 frá 28. júlí 2015 um breytingu á II. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í 1a. XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 268/2015, þann 30. október 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 10. desember 2015, bls. 487-488.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1190 frá 20. júlí 2015 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1298 frá 28. júlí 2015 um breytingu á II. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 22. mars 2016.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.