Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

300/2014

Reglugerð um þvotta- og hreinsiefni.

1. gr. Gildistaka tiltekinna gerða Evrópubandalagsins.

Eftirfarandi reglugerðir sem vísað er til í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni, sem vísað er til í tölulið 12u, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 144/2005, þann 2. desember 2005. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 38 frá 26. júní 2008, bls. 84-118.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 907/2006 varðandi breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni, sem vísað er til í tölulið 12u, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 15/2007, þann 27. apríl 2007. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 11 frá 19. febrúar 2009, bls. 57-62.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 551/2009 frá 25. júní 2009 um breytingu V. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni (undanþága að því er varðar yfirborðsvirk efni), sem vísað er til í tölulið 12u, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 66/2010, þann 11. júní 2010. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 56 frá 7. október 2010, bls. 234-237.
  4. Reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1336/2008 frá 16. desember 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 648/2004 í því skyni að aðlaga hana að reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna, sem vísað er til í tölulið 12u, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2012, þann 15. júní 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 54 frá 27. september 2012, bls. 554-555.
  5. Reglugerð (ESB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 259/2012 frá 14. mars 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 648/2004 að því er varðar notkun fosfata og annarra fosfórsambanda í tauþvottaefni og uppþvottavélaefni ætlað neytendum, sem vísað er til í tölulið 12u, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 140/2013, þann 15. júlí 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 56 frá 10. október 2013, 2013/EES/56/58 bls. 914-919.

2. gr. Hlutverk Umhverfisstofnunar.

Umhverfisstofnun gegnir hlutverki lögbærs yfirvalds sbr. 5., 8., 9. og 10. gr. og II. viðauka reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni.

3. gr. Merkingar.

Merkingar þvotta- og hreinsiefna, sbr. 11. gr. reglugerðar (EB) nr. 648/2004, skulu vera á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli öðru en finnsku.

4. gr. Eftirlit.

Um eftirlit með reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla efnalaga nr. 61/2013. Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga hafa eftirlit með meðferð, notkun og merkingum efna í starfsleyfisskyldri starfsemi sem heyrir undir þau starfsleyfi sem nefndin gefur út á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, sbr. 1. mgr. 6. gr. efnalaga.

5. gr. Viðurlög.

Um brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar fer samkvæmt XIV. kafla efnalaga.

6. gr. Innleiðing tiltekinna gerða Evrópubandalagsins.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 907/2006 varðandi breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 551/2009 frá 25. júní 2009 um breytingu á V. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 648/2004 um þvotta- og hreinsiefni (undanþága að því er varðar yfirborðsvirk efni).
  4. Reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1336/2008 frá 16. desember 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 648/2004 í því skyni að aðlaga hana að reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.
  5. Reglugerð (ESB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 259/2012 frá 14. mars 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 648/2004 að því er varðar notkun fosfata og annarra fosfórsambanda í tauþvottaefni og uppþvottavélaefni ætluðu neytendum.

7. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. og 11. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 708/2008, um þvotta- og hreinsiefni.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 17. mars 2014.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.