Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

299/2021

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 817/2012, um sóttvarnaráðstafanir.

1. gr.

6. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Uppfylli einstaklingur ekki skilyrði faglegra fyrirmæla landlæknis skal hann greiða 7.000 kr. fyrir sýnatöku á vegum heilsugæslu vegna greiningar á SARS-CoV-2 veirunni, hvort sem hann er sjúkratryggður eða ósjúkratryggður. Gjaldið myndar ekki afsláttarstofn skv. 4. gr. reglugerðar um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, sbr. jafnframt 29. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar. Ekki skal taka gjald fyrir útgáfu rafræns vottorðs. Um upphæð gjalds fyrir vottorð sem útgefið er af heilbrigðisstarfsmanni á heilsugæslustöð fer eftir reglugerð nr. 1350/2020, um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, eða reglugerð nr. 1455/2020, um heilbrigðisþjónustu við þá sem ekki eru sjúkratryggðir á Íslandi og greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu, eftir því sem við á. Heimilt er að taka komugjald ef leitað er á heilsugæslustöð vegna útgáfu vottorðs eða ef sýnataka fer fram á heilsugæslustöð utan reglulegra sýnatökustöðva.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er á grundvelli 12., 13., 17. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, og 1. tölul. 1. mgr. og 5. mgr. 29. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 11. mars 2020.

Svandís Svavarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.