Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 18. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 28. mars 2023

298/2020

Reglugerð um skráningu og skil aflaupplýsinga.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um skráningu og skil aflaupplýsinga íslenskra skipa jafnt innan sem utan íslensku fiskveiðilögsögunnar.

Öll skip er stunda veiðar í atvinnuskyni eða þörungaslátt skulu skila upplýsingum sem kveðið er á um í reglugerð þessari til vefþjónustu Fiskistofu með búnaði sem uppfyllir kröfur um vefþjónustu og hefur hlotið samþykki Fiskistofu. Fiskistofa veitir tæknilegar upplýsingar um hvernig skal tengjast vefþjónustu.

2. gr.

Upplýsingar sem skráðar eru skv. 3. gr. skulu nýtast í vísindalegum tilgangi fyrir Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, sem eftirlitsgögn fyrir Fiskistofu og Landhelgisgæslu og til annarra verkefna sem varða stjórnun fiskveiða. Hafrannsóknastofnun er heimilt að veita öðrum rannóknaraðilum aðgang að gögnunum sem ekki eru rekjanleg til einstakra skipa til vísindarannsókna er varða stjórn fiskveiða. Að öðru leyti skulu upplýsingarnar vera trúnaðarmál milli allar ofangreindra aðila.

3. gr.

Skipstjórar skulu skrá eins nákvæmlega og unnt er eftirfarandi upplýsingar:

  1. Nafn skips og skipaskrárnúmer.
  2. Veiðarfæri, gerð og stærð.
  3. Staðarákvörðun (breidd, lengd og dýpi).
  4. Afli eftir magni og tegundum.
  5. Veiðidagur.
  6. Löndunarhöfn og löndunardagur.
  7. Sjófugl eftir fjölda og tegundum.
  8. Sjávarspendýr eftir fjölda og tegundum.
  9. Upplýsingar um afla, sem veiddur er en sleppt í samræmi við fyrirmæli laga eða annarra stjórnvaldsfyrirmæla.
  10. Upplýsingar um tíma veiðarfæra í sjó, hvenær þau eru lögð og hvenær þau eru tekin upp.

Upplýsingar um afla sem fæst við veiðar, t.d. í hverju togi, kasti eða lögn, skal skrá svo fljótt sem verða má eftir að frágangi hans lýkur.

Ef fleiri en eitt skip stunda veiðar með sama veiðarfæri í sömu veiðiferð, skal skráð hvaða skip stunda veiðarnar. Aflann skal einungis skrá hjá því skipi sem tekur aflann um borð.

Ef afla er dælt úr veiðarfæri skips yfir í lestar annars skips þá skal afli skráður hjá báðum skipum. Skipið sem veiðir aflann skal skrá í reitinn fyrir aflamagn upplýsingar um magn og tegundir þess afla sem það dælir í eigin lestar en í reit fyrir athugasemdir skal skrá upplýsingar um tegundir og magn þess afla sem dælt er yfir í móttökuskipið. Einnig á að skrá þar nafn og alþjóðlegt kallmerki (IRCS) móttökuskips. Skipið sem tekur á móti aflanum skal skrá upplýsingar um magn og tegundir þess afla sem það fær frá veiðiskipinu í reitinn fyrir aflamagn. Í reit fyrir athugasemdir skal skrá nafn og alþjóðlegt kallmerki (IRCS) veiðiskips.

Við slátt á þörungum skal skrá hjá hverju skipi um sig, þ.m.t. pramma, upplýsingar um magn þörunga (blautvigt) sem tekið er innan netlaga hverrar fasteignar (sjávarjarðar). Hlutaðeigandi landeigandi á rétt á aðgangi að upplýsingum úr aflaskráningu um þörungaslátt fyrir sinni landareign.

4. gr.

Skipstjóri skal senda upplýsingar samkvæmt 3. gr. til vefþjónustu Fiskistofu áður en skipi er lagt að bryggju í löndunarhöfn að lokinni veiðiferð.

Einnig er heimilt að skrá og skila aflaupplýsingum á formi sem finna má á vefsíðu Fiskistofu enda komi fram fullnægjandi aflaupplýsingar samkvæmt 3. gr. og skulu upplýsingar liggja fyrir og þeim skilað með rafrænni undirritun sbr. tímamark í 1. mgr., þ.e. áður en veiðiferð lýkur.

Fiskistofa getur, að teknu tilliti til aðstæðna, ákveðið að taka við aflaskráningum undirrituðum á pappír.

Heimilt er að taka þjónustugjald vegna kostnaðar sem fellur til hjá Fiskistofu vegna úrvinnslu aflaskráninga samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.

5. gr.

Ef upp kemur bilun í hugbúnaði eða vefþjónustu Fiskistofu í veiðiferð skal skipstjóri tilkynna Fiskistofu um bilunina svo fljótt sem auðið er. Jafnframt skal skipstjóri skrá eins nákvæmlega og unnt er áætlaðan afla á blað og undirrita áður en skipi er lagt að bryggju að lokinni veiðiferð.

Senda skal Fiskistofu aflaupplýsingar innan 2 klukkustunda frá komu skips til löndunarhafnar, á formi sem finna má á vefsíðu Fiskistofu.

6. gr.

Skylt er að veita eftirlitsmönnum Fiskistofu og starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands aðgang að aflaupplýsingum.

7. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum, skv. lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengi um nytjastofna sjávar.

8. gr.

Reglugerð þessi er sett, skv. lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 746/2016, um afladagbækur.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.