Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

297/2014

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.

1. gr.

5. gr. orðist svo:

Um eftirlit með reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla efnalaga nr. 61/2013. Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga hafa eftirlit með meðferð, notkun og merkingum efna í starfsleyfisskyldri starfsemi sem heyrir undir þau starfsleyfi sem nefndin gefur út á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, sbr. 1. mgr. 6. gr. efnalaga.

2. gr.

7. gr. ásamt fyrirsögn orðist svo:

Gildistaka tiltekinna gerða Evrópubandalagsins.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins sem vísað er til í XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

  1. Reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins frá 30. nóvember 2009 nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2013, þann 5. apríl 2013 öðlast gildi hér á landi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 28. mars 2013, bls. 524-674.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 344/2013 frá 4. apríl 2013 um breytingu á viðaukum II, III, V og VI við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 195/2013, þann 8. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 64 frá 14. nóvember 2013, bls. 271-329.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 483/2013 frá 24. maí 2013 um breytingu á viðauka III við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 195/2013, þann 8. nóvember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 64 frá 14. nóvember 2013, bls. 330-332.

3. gr. Innleiðing tiltekinna gerða Evrópubandalagsins.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 344/2013 um breytingu á viðaukum II, III, V og VI við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 483/2013 um breytingu á viðauka III við reglugerð (EB) Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1223/2009 um snyrtivörur.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 14. mars 2014.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.