Landbúnaðarráðuneyti

477/1996

Reglugerð um innheimtu og ráðstöfun á verðskerðingargjöldum af kindakjöti. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um innheimtu og ráðstöfun á verðskerðingargjöldum af kindakjöti.

 

1. gr.

                Innheimta skal verðskerðingargjöld af öllu kindakjöti sem til fellur í sláturhúsum umfram útflutningsskyldu, þó ekki af heimteknu kjöti, sbr. a-lið 2. gr. reglugerðar nr. 422/1996.

a)             Innheimta skal 8% af verði kindakjöts til framleiðanda, eins og það er skráð í verðlagsgrundvelli sauðfjárafurða.

b)            Innheimta skal verðskerðingargjald af afurðarstöðvum, sem nemur 5% af slátur- og heildsölukostnaði kindakjöts, eins og hann er reiknaður af verðtöku Framleiðsluráðs landbúnaðarins, sem ráðherra staðfestir.

 

2. gr.

                Afurðastöðvum er skylt að standa Framleiðsluráði landbúnaðarins skil á skýrslum um alla slátrun sauðfjár og ráðstöfun kjötsins hvort sem er til innleggs, heimtöku eða annars. Framleiðsluráð reiknar verðskerðingargjöldin samkvæmt skýrslum afurðastöðvanna. Afurðastöð skal innheimta þau gjöld sem hverjum framleiðanda er skylt að greiða.

 

3. gr.

                Verðskerðingargjöldin greiðast af afurðastöðvum. Gjalddagi verðskerðingargjalds samkvæmt a-lið 1. gr. skal vera 25. hvers mánaðar vegna næstliðins framleiðslumánaðar, fyrst 25. nóvember 1996 vegna framleiðslu í september og október. Verðskerðingargjald skv. b-lið 1. gr. greiðist með þremur jöfnum greiðslum, 25. nóvember, 25. febrúar og 25. maí ár hvert. Séu gjöldin ekki greidd innan mánaðar frá gjalddaga skal innheimta dráttarvexti af því sem gjaldfallið er. Dráttarvextir skulu reiknast hinir sömu og hjá innlánsstofnunum samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Íslands á hverjum tíma.

 

4. gr.

                Ef gögn um viðskipti með gjaldskyldar afurðir þykja að mati Framleiðsluráðs ófullnægjandi eða gjaldskyldur aðili skilar ekki skýrslum skv. 2. gr. skal Framleiðsluráð skora á viðkomandi aðila að bæta úr því innan ákveðins tíma og láta í té skriflegar skýringar og gögn. Fái Framleiðsluráð fullnægjandi skýringar og gögn innan tiltekins tíma skal gjaldið ákvarðað og innheimt í samræmi við þau.

                Berist svar við áskorun skv. 1. mgr. ekki innan tiltekins tíma eða ef skýringar eða gögn eru ófullnægjandi, er Framleiðsluráði heimilt að áætla gjaldið og innheimta það skv. þeirri áætlun. Senda skal skriflega tilkynningu til greiðanda gjaldsins um áætlunina. Telji greiðandi áætlunina ranga, getur hann innan 20 daga frá og með póstsendingardegi tilkynningar um áætlun gjaldsins krafist þess skriflega að Framleiðsluráð taki áætlunina til endurskoðunar. Skal sú krafa rökstudd með söluskrám eða öðrum nauðsynlegum gögnum. Framleiðsluráð skal innan eins mánaðar frá lokum þessa frests gera greiðanda skriflega grein fyrir afgreiðslu á kröfu hans. Heimilt er greiðanda að skjóta lokaafgreiðslu Framleiðsluráðs til landbúnaðarráðherra og skal skrifleg og rökstudd beiðni þar um hafa borist ráðherra innan 30 daga frá póstlagningu lokaafgreiðslu.

                Beiðni um endurskoðun á áætlun gjaldsins eða deila um gjaldskyldu frestar ekki eindaga né leysir undan neinum viðurlögum, sem lögð eru við vangreiðslu þeirra. Ef gjaldið er lækkað samkvæmt afgreiðslu Framleiðsluráðs eða úrskurði ráðherra skal endurgreiðsla þegar fara fram.

 

5. gr.

                Skylt er Framleiðsluráði að halda innheimtum verðskerðingargjöldum sérgreindum og skal gjöldunum varið til markaðsaðgerða fyrir kindakjöt, bæði hér á landi og erlendis. Framleiðsluráð skal fyrir 1. september ár hvert gera áætlun um tekjur af innheimtu verðskerðingargjalds á almanaksárinu og ráðstöfun þess. Hvers konar ráðstöfun á tekjum af verðskerðingargjaldi skal vera háð samþykki landbúnaðarráðherra.

 

6. gr.

                Reglugerð þessi er samkvæmt heimild í 20. og 21. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum og öðlast þegar gildi.

 

Landbúnaðarráðuneytinu, 3. september 1996.

 

Guðmundur Bjarnason.

Jón Höskuldsson.

 

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica