Landbúnaðarráðuneyti

675/1996

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 469/1996 um greiðslu verðmiðlunargjalda af kindakjöti. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 469/1996

um greiðslu verðmiðlunargjalda af kindakjöti.

 

1. gr.

                Við ákvæði til bráðabirgða bætist ný málsgrein er verði svohljóðandi:

                Á árinu 1996 skal greiða jöfnun flutningskostnaðar skv. 2. tl. 4. gr. fyrir hvern einfaldan km kr. 1,60 í stað kr. 1,15 að meðaltali á hverja 100 km, sem flutt er umfram 100 km vegalengd.

 

2. gr.

                Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 27. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

 

Landbúnaðarráðuneytinu, 24. desember 1996.

 

F. h. r.

Guðmundur Sigþórsson.

Jón Höskuldsson.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica