Fara beint í efnið

Prentað þann 2. maí 2024

Breytingareglugerð

286/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 360/2022, um útboðsvef, viðmiðunarfjárhæðir og innkaup samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) vegna opinberra innkaupa.

1. gr.

3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup skulu vera sem hér segir:

Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:

Vörusamningar 20.866.000 kr.
Þjónustusamningar 20.866.000 kr.
Verksamningar 808.084.000 kr.

Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:

Vörusamningar 32.247.000 kr.
Þjónustusamningar 32.247.000 kr.
Verksamningar 808.084.000 kr.

2. gr.

4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Viðmiðunarfjárhæð vegna innkaupa á opinberum þjónustusamningum um félagsþjónustu og aðra sértæka þjónustu samkvæmt VIII. kafla laga um opinber innkaup, sem gerðir eru af opinberum aðilum, er 109.437.000 kr.

3. gr.

5. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Viðmiðunarfjárhæðir vegna kostnaðarþátttöku opinberra aðila, sbr. 14. gr. laga um opinber innkaup, skulu vera 808.084.000 kr. vegna verksamninga og 32.247.000 kr. vegna þjónustusamninga.

4. gr.

6. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Þegar innkaupum á fyrirhuguðu verki eða þjónustu er skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga skal miða við samanlagt virði allra samninganna. Sama á við þegar innkaupum á vöru af svipaðri tegund er skipt upp í fleiri sjálfstæða samninga. Sé samanlagt virði allra samninganna yfir viðmiðunarfjárhæðum skal líta svo á að verðgildi hvers og eins samnings sé einnig yfir viðmiðunarmörkum.

Þrátt fyrir að heildarvirði samninga sem greinir í 1. mgr. sé yfir viðmiðunarfjárhæðum er heimilt að gera einstaka samninga án útboðs fyrir allt að 20% af samanlagðri heildarfjárhæð allra samningshluta ef áætlað verðmæti viðkomandi samningshluta, án virðisaukaskatts, er lægra en 11.673.000 kr. vegna vöru eða þjónustu og 145.916.000 kr. vegna verks.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2495 frá 16. nóvember 2023 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/24/ESB að því er varðar viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra vöru-, þjónustu- og verksamninga og hönnunarsamkeppna.

Reglugerðin er sett með heimild í 23. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 og öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 15. febrúar 2024.

F. h. r.

Jón Gunnar Vilhelmsson.

Þorsteinn Júlíus Árnason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.