Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

286/2020

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1139 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2074/2005 að því er varðar opinbert eftirlit með matvælum úr dýraríkinu í tengslum við kröfur sem varða upplýsingar um matvælaferlið og lagarafurðir og tilvísun í viðurkenndar prófunaraðferðir fyrir sjávarlífeitur og prófunaraðferðir fyrir hrámjólk og hitameðhöndlaða kúamjólk.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 284/2019, frá 13. desember 2019, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1139 frá 3. júlí 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2074/2005 að því er varðar opinbert eftirlit með matvælum úr dýraríkinu í tengslum við kröfur sem varðar upplýsingar um matvælaferlið og lagarafurðir og tilvísun í viðurkenndar prófunaraðferðir fyrir sjávarlífeitur og prófunaraðferðir fyrir hrámjólk og hitameðhöndlaða kúamjólk. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5, frá 30. janúar 2020, bls. 120.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. mars 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.