Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Stofnreglugerð

275/2002

Reglugerð um afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera.

I. KAFLI Gildissvið og skilgreiningar.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um hvers konar afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera til dæmis vegna kennslu, rannsókna, þróunar, framleiðslu og geymslu, svo og um rannsóknastofur og athafnasvæði. Jafnframt gildir reglugerðin um eftirlit með ofangreindri starfsemi. Um aðbúnað á vinnustöðum fer samkvæmt lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglum nr. 764/2001 um verndun starfsmanna gegn hættu á heilsutjóni af völdum líffræðilegra skaðvalda á vinnustöðum.

Reglugerðin gildir ekki um geymslu, ræktun, flutning, eyðingu, förgun eða notkun erfðabreyttra örvera sem hafa verið markaðssettar í samræmi við reglugerð nr. 493/1997 um sleppingu eða dreifingu og markaðssetningu erfðabreyttra lífvera. Reglugerðin gildir ekki heldur um afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera sem vitað er að hvorki eru heilsuspillandi né skaðlegar umhverfinu, uppfylla skilyrði sem fram koma í viðauka 2, A-hluta, og eru á skrá sem er að finna í B- og C-hluta viðauka 2.

2. gr. Markmið.

Markmið þessarar reglugerðar er að vernda náttúru landsins, vistkerfi, plöntur og heilsu manna og dýra gegn skaðlegum og óæskilegum áhrifum erfðabreyttra örvera.
Tryggja skal að framleiðsla og notkun erfðabreyttra örvera fari fram á siðferðilega og samfélagslega ábyrgan hátt í samræmi við grundvallarregluna um sjálfbæra þróun.

3. gr. Skilgreiningar.

Í reglugerð þessari er merking eftirfarandi orða og orðasambanda þessi:
Afmörkuð notkun erfðabreyttra örvera táknar alla þá starfsemi þar sem litningum í örverum er breytt eða þegar erfðabreyttar örverur eru ræktaðar, geymdar, notaðar, fluttar eða þeim fargað, enda sé beitt tálmunum af hvaða toga sem er til að hindra að erfðabreyttar örverur komist í snertingu við fólk, umhverfi eða aðrar lífverur.

Erfðabreyttar örverur eru allar örverur þar sem erfðaefninu hefur verið breytt á annan hátt en gerist í náttúrunni við pörun og/eða náttúrulega endurröðun. Undir þetta falla þær örverur þar sem erfðaefninu hefur verið breytt með þeirri tækni sem greint er frá í A-hluta viðauka 1 með reglugerð þessari. Örverur sem hefur verið breytt með aðferðum sem fram koma í B-hluta viðauka 1 kallast ekki erfðabreyttar örverur.

Notandi ersérhver einstaklingur eða lögpersóna sem ber ábyrgð á starfsemi með afmarkaðri notkun erfðabreyttra örvera.

Slys er sérhvert það tilvik þegar erfðabreyttar örverur sleppa út og geta stefnt heilsu manna, annarra lífvera eða umhverfinu í hættu þegar í stað eða síðar.

Tilkynning er afhending skjala með tilskildum upplýsingum varðandi afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera samkvæmt reglugerð þessari.

Örverur eru allar örverufræðilegar einingar hvort sem um er að ræða frumur eða aðrar einingar sem eru færar um eftirmyndun eða flutning erfðaefnis, þ. á m. veirur, veirungar og dýra- og plöntufrumur í ræktum.

II. KAFLI Áhættumat og flokkun.

4. gr. Áhættumat.

Notandi skal tryggja að allar viðeigandi ráðstafanir séu gerðar til að koma í veg fyrir að afmörkuð notkun erfðabreyttra örvera geti haft í för með sér skaðleg áhrif á heilsu manna og umhverfið. Í því skyni skal notandi meta fyrirfram þá hættu sem hin afmarkaða notkun getur haft í för með sér fyrir heilsu manna, dýra eða plantna og umhverfið. Notandi skal framkvæma áhættumat, sem skal vera í hans vörslu og þar skulu tilgreindar þær upplýsingar sem greint er frá í A- og B-hluta viðauka 3. Áhættumatið skal leiða til endanlegrar flokkunar starfseminnar í einhvern af þeim fjórum flokkum sem greint er frá í 5. gr. í því skyni að ákvarða viðeigandi afmörkunarráðstafanir. Við gerð áhættumats skal sérstaklega hugað að förgun frárennslisvatns og úrgangs og sé þess þörf skulu gerðar öryggisráðstafanir til að tryggja heilsu manna og umhverfið.

Notandi skal halda skrá um áhættumat og skal hún fylgja umsóknum um starfsemi af flokki 2, 3 og 4 og vera aðgengileg fyrir Hollustuvernd ríkisins þegar um er að ræða tilkynningar um starfsemi af flokki 1 sé þess óskað.

5. gr. Flokkun á afmarkaðri notkun erfðabreyttra örvera.

Starfsemi með erfðabreyttar örverur skal flokkast sem hér segir:
Flokkur 1: Starfsemi sem engin eða óveruleg áhætta fylgir, þ.e. starfsemi þar sem afmörkunarráðstafanir af afmörkunarflokki 1 duga til að vernda heilsu manna og umhverfið.

Flokkur 2: Starfsemi sem lítil áhætta fylgir, þ.e. starfsemi þar sem afmörkunarráðstafanir af afmörkunarflokki 2 duga til að vernda heilsu manna og umhverfið.

Flokkur 3: Starfsemi sem nokkur áhætta fylgir, þ.e. starfsemi þar sem afmörkunarráðstafanir af afmörkunarflokki 3 duga til að vernda heilsu manna og umhverfið.

Flokkur 4: Starfsemi sem mikil áhætta fylgir, þ.e. starfsemi þar sem afmörkunarráðstafanir af afmörkunarflokki 4 duga til að vernda heilsu manna og umhverfið.

Leiki vafi á í hvaða flokk fyrirhuguð starfsemi skal flokkast ber að velja hæsta mögulega flokk þar til næg rök liggja fyrir sem réttlæta lægri flokkun.

III. KAFLI Stjórnsýsla og eftirlit.

6. gr. Eftirlitsaðilar og leyfisveitingar.

Hollustuvernd ríkisins fjallar um umsóknir, samþykkir flokkun og veitir leyfi fyrir afmarkaðri notkun erfðabreyttra örvera.

Hollustuvernd ríkisins er heimilt að takmarka þann tíma sem starfsemi er heimil eða binda leyfi öðrum skilyrðum. Þá getur stofnunin í samræmi við ákvæði 4. mgr. 5. gr. laga nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur, takmarkað eða fyrirskipað bann við notkun erfðabreyttra örvera með því að afturkalla leyfi sem hún hefur veitt.

Vinnueftirlit ríkisins hefur eftirlit með aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi starfsmanna við þá starfsemi sem fellur undir reglugerðina, þ.m.t. að farið sé eftir þeim reglum sem settar eru fram í 2. mgr. 12. gr. svo og ákvæðum viðauka 4 eftir því sem við á. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hefur eftirlit með meðferð úrgangs og frárennslis.

7. gr. Framkvæmd eftirlits.

Hollustuvernd ríkisins tilkynnir Vinnueftirliti ríkisins um tilkynningar sem stofnunin samþykkir svo og leyfi sem hún veitir.

Eftirlit með afmarkaðri notkun erfðabreyttra örvera skal fara fram reglulega, og aldrei sjaldnar en árlega þegar um er að ræða starfsemi í flokki 3 og 4 en annað hvert ár þegar um er að ræða starfsemi í flokki 1 og 2. Við eftirlit skal þess einkum gætt að það svæði, sem afmörkuð notkun erfðabreyttra örvera fer fram á, uppfylli öryggiskröfur um útbúnað og annað sem varðar notkunina. Þá skal sá sem er ábyrgur fyrir starfseminni hafa sérfræðiþekkingu á því sviði sem varðar hina afmörkuðu notkun og sjá til þess að henni sé beitt.

Eftirlitsaðili skal ljúka gerð eftirlitsskýrslu og senda hana notanda og Hollustuvernd ríkisins innan 60 daga frá því eftirlit fór fram.

IV. KAFLI Tilkynningar, umsóknir og hvenær hefja má starfsemi.

8. gr. Tilkynningar og umsóknir.

Tilkynningar og umsóknir um leyfi til afmarkaðrar notkunar erfðabreyttra örvera skulu sendar Hollustuvernd ríkisins og skulu upplýsingar sem fylgja tilkynningum eða umsóknum vera í samræmi við viðauka 5. Með umsóknum skal fylgja útdráttur úr áhættumati, en Hollustuvernd ríkisins er heimilt að fara fram á að umsækjandi leggi fram ítarlega greinargerð telji stofnunin hættu á að erfðabreyttar örverur sleppi út í umhverfið.

Umsækjanda er skylt að upplýsa stofnunina um allt það sem máli skiptir varðandi umfjöllun um umsóknina og láta í té allar upplýsingar sem hann kann að komast yfir á meðan umsóknin er til umfjöllunar.

Hollustuvernd ríkisins getur óskað eftir frekari upplýsingum telji hún það nauðsynlegt til að meta hugsanlega áhættu af starfseminni.

Hollustuvernd ríkisins skal tilkynna umsækjanda skriflega um viðtöku umsóknar. Greiða skal sérstakt gjald vegna meðferðar tilkynninga/umsókna samkvæmt gjaldskrá Hollustuverndar ríkisins og skal greiðsla innt af hendi við afhendingu umsóknar. Þá er Hollustuvernd ríkisins heimilt að krefja umsækjanda um endurgreiðslu alls kostnaðar sem fellur til vegna sérstakra rannsókna eða úttekta vegna umsóknarinnar, enda hafi verið haft samráð við umsækjanda um fyrirhugaðar rannsóknir eða úttektir og umsækjanda gefinn kostur á að draga umsókn sína til baka áður en til slíks kostnaðar er stofnað.

9. gr. Notkun aðstöðu eða búnaðar í fyrsta sinn.

Þegar taka skal rannsóknastofu eða athafnasvæði í notkun í fyrsta sinn vegna afmarkaðrar starfsemi með erfðabreyttar örverur skal senda Hollustuvernd ríkisins umsókn þess efnis þar sem fram koma a.m.k. þær upplýsingar sem krafist er í viðauka 5, A-hluta. Hollustuvernd ríkisins hefur samráð við Vinnueftirlit ríkisins.

Þegar sótt er í fyrsta sinn um leyfi til starfsemi af flokki 2 skulu fylgja umsókninni þær upplýsingar sem krafist er samkvæmt viðauka 5, B-hluta.

Þegar sótt er í fyrsta sinn um leyfi til starfsemi af flokki 3 eða 4 skulu fylgja umsókninni upplýsingar í samræmi við viðauka 5, C-hluta.

10. gr. Hvenær hefja má starfsemi.

Heimilt er að hefja starfsemi í flokki 1 eftir að tilkynning hefur verið send Hollustuvernd ríkisins og hafi leyfi verið veitt.

Notandi skal halda skrá yfir áhættumat og skal hún aðgengileg fyrir Hollustuvernd ríkisins sé þess óskað.

Hafi áður verið sótt um leyfi til starfsemi af flokki 2, 3 eða 4 á rannsóknastofu eða athafnasvæði og settum skilyrði fyrir leyfisveitingu verið fullnægt má hefja starfsemi af flokki 2 eftir að tilkynning þess efnis hefur verið send Hollustuvernd ríkisins. Umsækjandi getur þó farið fram á að stofnunin veiti formlegt leyfi til starfseminnar og skal umsóknin afgreidd innan 45 daga frá því að stofnuninni barst umsóknin. Sé um að ræða fyrstu umsókn um leyfi til starfsemi af flokki 2 á rannsóknastofu eða athafnasvæði má hefja starfsemi 45 dögum eftir að umsókn var send Hollustuvernd ríkisins hafi stofnunin ekki gert athugasemdir. Heimilt er að hefja starfsemi fyrr með samþykki stofnunarinnar.

Óheimilt er að hefja starfsemi af flokki 3 eða 4 án skriflegs samþykkis Hollustuverndar ríkisins. Stofnuninni ber að svara umsóknum um starfsemi af flokki 3og 4innan 90 daga frá því hún veitti umsókninni viðtöku sé um fyrstu umsókn að ræða og innan 45 daga hafi áður verið veitt leyfi til skyldrar starfsemi á viðkomandi rannsóknastofu eða athafnasvæði.

Frestir skv. 2. og 3. mgr. gilda ekki um þann tíma sem það tekur Hollustuvernd ríkisins að afla upplýsinga sem skylt er að geta í umsókninni en hafa ekki komið fram. Hið sama gildir um þann tíma sem tekur að leita samráðs við samtök eða almenning um alla þætti hinnar fyrirhuguðu afmörkuðu notkunar þegar slíkt er talið eiga við, sbr. 18. gr. Stofnunin skal tilkynna umsækjanda skriflega um framlengdan frest.

11. gr. Meðferð umsókna.

Hollustuvernd ríkisins skal ganga úr skugga um að umsóknir samræmist kröfum reglugerðar þessarar, að upplýsingarnar séu nákvæmar og ítarlegar, að flokkun sé rétt og þar sem við á, að losun úrgangsefna, öryggi og ráðstöfunum um viðbrögð í neyðartilfellum sé í engu ábótavant. Sérhver umsókn um afmarkaða starfsemi af flokki 3 og 4 skal fá þá umfjöllun sem hæfir eðli hinnar fyrirhuguðu starfsemi og skal Hollustuvernd ríkisins leita álits sérfræðistofnana á því sviði sem við á í hverju tilviki.

Beri nauðsyn til að mati Hollustuverndar ríkisins er stofnuninni heimilt að krefja umsækjanda um frekari upplýsingar eða breyta aðstæðum eða flokkun. Í slíkum tilfellum getur stofnunin farið fram á að fyrirhugaðri starfsemi verði frestað eða starfsemi sem þegar er hafin verði stöðvuð þar til nýjar upplýsingar hafa verið metnar eða aðstæðum breytt. Einnig getur stofnunin sett starfseminni tímamörk eða sett sérstök skilyrði um eftirlit.

Leita skal umsagnar ráðgjafanefndar, sem skipuð er í samræmi við 6. gr. laga nr. 18/1996, áður er leyfi er veitt fyrir starfsemi í flokki 2, 3 og 4.

V. KAFLI Öryggisráðstafanir.

12. gr. Öryggisráðstafanir.

Notandi skal beita almennum meginreglum og viðeigandi afmörkunarráðstöfunum og öðrum varúðarreglum, sem lýst er í viðaukum 3 og 4 og samsvara viðkomandi flokki afmarkaðrar notkunar, til þess að ná fram hámarksöryggi og til að halda mengun á rannsóknastofu eða athafnasvæði af völdum erfðabreyttra örvera í lágmarki.

Afmörkun má einnig ná fram með góðu verklagi, þjálfun, útbúnaði til afmörkunar og/eða erfðafræðilegum aðferðum. Við alla afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera skal viðhafa viðteknar starfsvenjur og varúðarráðstafanir sem almennt gilda um vinnu með örverur. Eftirfarandi reglur skulu gilda um öryggi og hollustu á vinnustöðum:

  1. Halda skal mengun af völdum eðlis-, efna- og líffræðilegra mengunarvalda í umhverfi eins lítilli og mögulegt er;
  2. nota skal mengunarvarnarbúnað þar sem mengunin á upptök sín og leggja að auki til hlífðarfatnað og hlífðarbúnað þegar þess gerist þörf;
  3. framkvæma skal viðeigandi prófanir og viðhald á varnarbúnaði og tækjum;
  4. kanna skal eftir þörfum hvort erfðabreyttar örverur finnast utan þess afmarkaða svæðis þar sem afmörkuð notkun erfðabreyttra örvera fer fram;
  5. sjá skal til þess að starfsfólk fái viðeigandi þjálfun;
  6. stofna skal öryggisnefndir og undirnefndir um líffræðileg efni ef þörf krefur;
  7. setja skal og framfylgja reglum sem gilda um öryggi á vinnustöðum á hverjum stað;
  8. setja skal upp skilti sem vara við hættu af líffræðilegum toga þar sem við á;
  9. sjá skal starfsfólki fyrir fullnægjandi þvottaaðstöðu;
  10. halda skal fullnægjandi vinnudagbækur;
  11. á rannsóknastofu skal bannað að neyta matar, drykkjar og tóbaks, snyrta sig og geyma matvæli;
  12. bannað skal að pípettera með munninum;
  13. hengja skal upp vinnulýsingu, eftir því sem við á, til að tryggja öryggi starfsfólks;
  14. setja skal upp sótthreinsibúnað og lýsingar á sérstökum sótthreinsiaðferðum sem farið skal eftir þegar erfðabreyttar örverur hellast niður fyrir slysni;
  15. örugg geymsluaðstaða fyrir óhrein áhöld og menguð efni þar sem við á skal vera til staðar.

13. gr. Endurskoðun afmörkunarráðstafana.

Notandi skal koma upp innra eftirliti með starfseminni og endurskoða reglulega þær ráðstafanir sem gerðar eru til að hún fari fram í afmörkuðu rými. Í því skyni skal hafa til hliðsjónar nýjungar á sviði vísinda og tækni. Sama gildir um eftirlit með úrgangi, geymslu, meðferð og losun.

14. gr. Vinnudagbækur.

Notandi skal færa sérstaka vinnudagbók. Hollustuvernd ríkisins getur ákveðið hvaða upplýsingar skulu skráðar í vinnudagbókina og skal hún vera tiltæk stofnuninni og öðrum eftirlitsaðilum sé þess óskað.

15. gr. Neyðaráætlun.

Áður en starfsemi hefst skal notandi semja neyðaráætlun fyrir afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera vegna misbrests á afmörkunarráðstöfunum sem gæti haft alvarlega hættu í för með sér fyrir fólk utan athafnasvæðisins og/eða umhverfið, nema slík neyðaráætlun hafi þegar verið samin samkvæmt lögum eða reglugerðum. Neyðaráætlunin skal vera skrifleg, hún skal kynnt hlutaðeigandi aðilum og þar skal koma fram hvers eðlis hættan er.

Hollustuvernd ríkisins skal tryggja að þeir aðilar og yfirvöld sem kunna að verða fyrir áhrifum af slysi fái upplýsingar með í samræmi við reglugerð þessa og óumbeðið um neyðaráætlun og viðeigandi öryggisráðstafanir.

Upplýsingarnar skulu veittar ítrekað og endurskoðaðar með reglulegu millibili. Þær skulu jafnframt vera aðgengilegar almenningi hjá stofnuninni.

16. gr. Slys.

Verði slys vegna afmarkaðrar notkunar erfðabreyttra örvera ber notanda að tilkynna það án tafar til Hollustuverndar ríkisins og annarra, sem eftirlit kann að verða falið, þ.m.t. Vinnueftirlit ríkisins. Auk þess skal notandi veita eftirtaldar upplýsingar um:

  1. tildrög slyssins;
  2. tegund og magn erfðabreyttra örvera sem sloppið hafa út;
  3. allar nauðsynlegar upplýsingar til að meta áhrif slyssins á heilsu almennings og á umhverfið;
  4. neyðarráðstafanir sem gerðar hafa verið.

Þegar Hollustuvernd ríkisins hefur fengið upplýsingar sem krafist er skv. 1. mgr. ber henni að tryggja að gerðar séu neyðarráðstafanir og ráðstafanir til lengri eða skemmri tíma og að öllum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu, sem gætu orðið fyrir áhrifum af völdum slyssins, verði gert viðvart. Auk þess ber stofnuninni að hafa samráð við önnur ríki á Evrópska efnahagssvæðinu sem líklegt er að verði fyrir áhrifum ef slys ber að höndum, um fyrirhugaða framkvæmd neyðaráætlana og tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA jafnskjótt og auðið er um slys sem fellur undir þessa reglugerð og greina frá tildrögum þess, auðkennum, magni erfðabreyttra örvera, gagnráðstöfunum sem gerðar hafa verið og hvernig þær hafa reynst. Þá ber stofnuninni að gera úttekt á slysinu og tillögur um hvernig draga megi úr áhrifum þess og varast slík slys í framtíðinni.

17. gr. Breyttar aðstæður.

Komi fram nýjar upplýsingar eða önnur atriði sem máli skipta eða breyta afmarkaðri notkun á einhvern þann hátt sem getur verulega aukið áhættuna sem henni fylgir, skal notandi tilkynna það án tafar til Hollustuverndar ríkisins. Stofnunin skal tilkynna notanda skriflega eins fljótt og kostur er hvort afturkalla verði áður útgefið leyfi eða hvort hann skuli breyta umsókn/tilkynningu í samræmi við kröfur stofnunarinnar. Sama á við ef breytt er flokkun þeirra erfðabreyttu örvera sem eru í notkun.

Komist Hollustuvernd ríkisins síðar yfir upplýsingar sem gætu haft veruleg áhrif á áhættuna sem fylgir hinni afmörkuðu notkun, er henni heimilt að krefjast þess að notandi breyti aðstæðum við hina afmörkuðu notkun, fresti henni eða hætti.

VI. KAFLI Almenn ákvæði.

18. gr. Samráð við samtök eða almenning.

Hollustuvernd ríkisins er heimilt að mæla fyrir um að samráð skuli haft við samtök eða almenning um einhverja þætti hinnar fyrirhuguðu afmörkuðu notkunar erfðabreyttra örvera, t.d. með því að efna til opins áheyrnarfundar eða gera upplýsingar aðgengilegar á annan hátt.

19. gr. Trúnaður.

Að höfðu samráði við umsækjanda ákveður Hollustuvernd ríkisins hvaða upplýsingar skuli teljast trúnaðarmál og ber stofnuninni að tilkynna honum um ákvörðunina. Skal þess sérstaklega gætt að Vinnueftirlit ríkisins og aðrir þeir sem fara með eftirlit hafi aðgang að gögnum sem nauðsynleg eru vegna eftirlitsins. Óheimilt er að fara með eftirfarandi upplýsingar sem trúnaðarmál:

  1. almenna eiginleika erfðabreyttu örveranna, nafn og heimilisfang notanda, tilgang hinnar afmörkuðu starfsemi og hvar hún fer fram;
  2. flokk afmarkaðrar notkunar og afmörkunarráðstafanir sem viðhafðar eru;
  3. mat á fyrirsjáanlegum áhrifum, einkum þeim sem kynnu að vera skaðleg heilsu manna og umhverfinu.

Hollustuvernd ríkisins er óheimilt að ljóstra upp við þriðja aðila atriðum sem leynt skulu fara skv. reglugerð þessari. Dragi umsækjandi umsókn sína til baka af einhverjum ástæðum, ber Hollustuvernd ríkisins að virða trúnað við þann sem upplýsingarnar veitti.

20. gr. Skaðabótaskylda.

Notandi ber ábyrgð á afmarkaðri notkun erfðabreyttra örvera samkvæmt reglugerð þessari og er skaðabótaskyldur vegna tjóns sem af hlýst berist þær út í umhverfið, án tillits til þess hvort tjón verði rakið til saknæms hátternis eða ekki.

21. gr. Kæruréttur umsækjenda.

Umsækjandi, notandi eða aðrir sem telja á rétt sinn hallað vegna ákvörðunar Hollustuverndar ríkisins samkvæmt reglugerð þessari geta kært hana til umhverfisráðherra innan þriggja mánaða frá því ákvörðunin var tilkynnt.

22. gr. Viðurlög og þvingunarúrræði.

Um þvingunarúrræði og aðgerðir til að knýja á um framkvæmd ráðstafana sem eftirlitsaðilar hafa ákveðið á grundvelli reglugerðar þessarar fer skv. 28. gr. laga nr. 18/1996, um erfðabreyttar örverur.

Brot gegn reglugerðinni varða viðurlögum skv. 29. gr. laga nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur.

23. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 18/1996 um erfðabreyttar örverur, 5. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 og að höfðu samráði við félagsmálaráðuneytið hvað þátt Vinnueftirlits ríkisins varðar, sbr. lög nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Einnig var höfð hliðsjón af ákvæðum 24. tl. og 24. tl. a XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, (tilskipun 90/219/EBE, tilskipun 98/81/EB og ákvörðun 204/2001/EB).

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 25. mars 2002.

Siv Friðleifsdóttir.

Magnús Jóhannesson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.