Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

318/2001

Reglugerð um veitingu sérfræðileyfa í sjúkraþjálfun. - Brottfallin

318/2001

REGLUGERÐ
um veitingu sérfræðileyfa í sjúkraþjálfun.

1. gr.

Rétt til að kalla sig sérfræðing í sjúkraþjálfun og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn, er til þess hefur fengið leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.


2. gr.

Umsókn um sérfræðileyfi ásamt gögnum sem staðfesta menntun og starfsreynslu skal senda til heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis.


3. gr.

Áður en sérfræðileyfi í sjúkraþjálfun er veitt skal leita umsagnar þriggja manna sérfræðinefndar sem ráðherra skipar. Í nefndinni skal vera einn fulltrúi tilnefndur af Félagi íslenskra sjúkraþjálfara, einn fulltrúi námsbrautar í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands og einn tilnefndur af landlækni.


4. gr.

Til þess að sjúkraþjálfari geti átt rétt á að öðlast sérfræðileyfi í sjúkraþjálfun, skal hann fullnægja eftirtöldum kröfum:

1. Hann skal hafa hlotið starfsleyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra til að starfa sem sjúkraþjálfari hér á landi, sbr. 1. gr. laga nr. 58/1976, um sjúkraþjálfun.
2. Hann skal hafa lokið meistaraprófi eða doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla eða hafa sambærilega menntun.
3. Hann skal hafa starfað við sjúkraþjálfun minnst tvö ár eftir sérnám við þá sérgrein, sem hann sækir um sérfræðileyfi í.


5. gr.
Sérfræðileyfi má veita í klínískum sérgreinum og klínískum sérsviðum sjúkraþjálfunar. Skilyrt er að nám umsækjanda hafi að stærstum hluta verið innan þeirrar sérgreinar eða þess sérsviðs sem sótt er um sérfræðileyfi í.


6. gr.
Sérfræðingur skal endurnýja sérfræðileyfi sitt á tíu ára fresti og staðfesta að hann starfi og hafi viðhaldið menntun sinni í þeirri sérgrein eða á því sérsviði sem hann hefur sérfræðileyfi á.


7. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett skv. 12. gr. laga um sjúkraþjálfun, nr. 58/1976 og öðlast þegar gildi. Reglugerð þessa skal endurskoða innan fimm ára frá gildistöku.


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 9. apríl 2001.

Ingibjörg Pálmadóttir.
Davíð Á. Gunnarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica