Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

336/1998

Reglugerð um (29.) breytingu á reglugerð um gerð lyfseðla og ávísun lyfja, afgreiðslu þeirra og merkingu nr. 421/1988. - Brottfallin

Reglugerð

um (29.) breytingu á reglugerð um gerð lyfseðla og ávísun lyfja,

afgreiðslu þeirra og merkingu nr. 421/1988.

1.gr.

            Eftirfarandi breytingar eru gerðar á viðauka 4 við reglugerðina:

Efni.

Hámarksmagn og/eða takmarkanir

Dæmi um lyf og lyfjaform er selja má án lyfseðils.

Áletrun og/eða upplýsingar á fylgiseðli, sem afhenda skal með lyfjum.

Cetirizinum.

Töflur 10 mg. Mest 10 stk. handa einstaklingi.

Histal, töflur

Fylgiseðill samkvæmt ákvörðun lyfjanefndar ríkisins.

Levonorgestrelum Ethinylestradiolum.

Töflur. Í hverri töflu levonorgestrelum 0,25 mg. ethinylestradiolum 50 mikrog. Mest 4 stk. handa einstaklingi.

Tetragynon, töflur

Fylgiseðill samkvæmt ákvörðun lyfjanefndar ríkisins.

2.gr.

            Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 44. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, öðlast gildi 1. júní 1998.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 5. júní 1998.

Ingibjörg Pálmadóttir

Einar Magnússon.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica