Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

243/2018

Reglugerð um veitingu málflutningsréttinda fyrir héraðsdómstólum til erlendra lögmanna.

I. KAFLI Lögmenn frá EES eða EFTA.

1. gr.

Ríkisborgari í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES-ríki) eða Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA-ríki), öðru en Íslandi, sem hefur öðlast lögmannsréttindi í heimaríki sínu getur öðlast málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum hér á landi að uppfylltum skilyrðum þeim sem í reglugerð þessari greinir. Með heimaríki er átt við EES-ríki eða EFTA-ríki þar sem lögmaðurinn öðlaðist rétt til að nota eitthvert þeirra starfsheita sem talin eru upp í 2. gr.

2. gr.

Starfsheiti lögmanna skv. 1. gr. sem reglugerð þessi tekur til eru eftirfarandi:

í Austurríki Rechtsanwalt
í Belgíu Avocat/Advocaat/Rechtsanwalt
í Búlgaríu Aдвокат
í Danmörku Advokat
í Eistlandi Vandeadvokaat
í Finnlandi Asianajaja/Advocat
í Frakklandi Avocat
í Grikklandi Dikhgoroq (Dikigoros)
í Hollandi Advocaat
í Írlandi Barrister/Solicitor
á Ítalíu Avvocato
í Króatíu Odvjetnik/Odvjetnica
á Kýpur Δικηγόροç
í Lettlandi Zvērinats advokāts
í Liechtenstein Rechtsanwalt
í Litháen Advokatas
í Luxembourg Avocat
á Möltu Avukat/Prokuratur Legali
í Noregi Advokat
í Portúgal Advogado
í Póllandi Adwokat/Radca prawny
í Rúmeníu Avocat
í Slóveníu Odvetnik/Odvetnica
í Slóvakíu Advokát/Komerčný právnik
á Spáni Abogado/Advocat/Avogado/Abokatu
á Stóra-Bretlandi Advocate/Barrister/Solicitor
í Sviss Avocat/Advokat, Rechtsanwalt, Anwalt, Fürsprecher, Fürsprech/Avvocato
í Svíþjóð Advokat
í Tékklandi Advokát
í Ungverjalandi Ügyvéd
í Þýskalandi Rechtsanwalt

3. gr.

Lögmaður, sem hefur heimild til að nota starfsheiti samkvæmt 2. gr., og óskar eftir við sýslumanninn á Norðurlandi eystra að öðlast málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum hér á landi skal uppfylla skilyrði 1.-3. tl. 1. mgr. 6. gr. laga um lögmenn, hafa þekkingu á meginreglum íslenskra laga og réttarkerfis og hafa nægjanlega kunnáttu og vald á íslenskri tungu til að geta flutt mál fyrir dómi.

Með umsókn hans skv. 1. mgr. skulu fylgja gögn um ríkisborgararétt hans og starfsréttindi og staðfesting, eigi eldri en tveggja mánaða, um að hann sé skráður með lögmannsréttindi hjá lögbæru yfirvaldi í heimaríki sínu. Hann skal einnig leggja fram gögn sem sýna að hann uppfylli skilyrði 1.-3. tl. 1. mgr. 6. gr. laga um lögmenn. Séu skilyrði uppfyllt gefur ráðuneytið út staðfestingu á að honum sé heimilt að þreyta prófraun skv. 4. gr.

4. gr.

Prófnefnd, skv. 1. mgr. 7. gr. laga um lögmenn, skal meta þekkingu og kunnáttu umsækjanda á þeim atriðum sem talin eru í 1. mgr. 3. gr. Skal nefndin prófa þekkingu umsækjanda í helstu greinum bóknáms sem varða lögmannsstörf hér á landi og í siðareglum lögmanna. Prófraunin skal vera bæði munnleg og skrifleg og fara fram á íslensku.

Umsækjandi skal greiða gjald fyrir prófraunina, sem ákveðið er af ráðherra, og greiðist það við útgáfu staðfestingar skv. 3. gr. Gjaldið skal miðað við að það standi undir kostnaði við prófraunina, þar með talin laun prófnefndarmanna.

Meti prófnefnd þekkingu og kunnáttu umsækjanda fullnægjandi má veita honum málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum.

II. KAFLI Lögmenn utan EES eða EFTA.

5. gr.

Óski lögmaður, sem hefur lögmannsréttindií ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins eða EFTA, eftir málflutningsréttindum fyrir héraðsdómstólum á grundvelli lögmannsréttinda sinna metur sýslumaður umsóknina á grundvelli framlagðra gagna. Umsækjandi skal ávallt þreyta prófraun skv. 4. gr.

Leyfisveiting skal ætíð háð því skilyrði að ríki það sem veitti umsækjanda lögmannsréttindi veiti íslenskum lögmanni sambærileg réttindi með samsvarandi hætti.

III. KAFLI Gildistaka.

6. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 4. og 5. mgr. 6. gr. laga um lögmenn, nr. 77/1998, og 8. gr. laga um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til að starfa hér á landi, nr. 26/2010, sbr. tilskipun 2005/36/EB, sem vísað er til í 1. tölul. VII. viðauka við saminginn um Evrópska efnahagssvæðið, og með hliðsjón af tilskipun 77/249/EBE og tilskipun 98/5/EC, sem vísað er til í 2. tl. og 2. tl. a. VII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 900/2004 um veitingu héraðsdómslögmannsréttinda til erlendra lögmanna.

Dómsmálaráðuneytinu, 26. febrúar 2018.

Sigríður Á. Andersen.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.