Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

231/2021

Reglugerð um (24.) breytingu á reglugerð nr. 560/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 798/2008 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf, þaðan sem leyfður er innflutningur til Bandalagsins og umflutningur um Bandalagið á alifuglum og alifuglaafurðum, og um kröfur vegna heilbrigðisvottana fyrir dýr og dýraafurðir.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 63. og 64. tölul., svohljóð­andi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/130 frá 3. febrúar 2021 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færsluna fyrir Breska konungsríkið í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf þaðan sem leyfður er innflutningur til Sambandsins og umflutningur um Sambandið á tilteknum alifugla­vörum í tengslum við alvarlega fuglainflúensu.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/169 frá 11. febrúar 2021 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færsluna fyrir Breska konungsríkið í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf þaðan sem leyfður er innflutningur til Sambandsins og umflutningur um Sambandið á tilteknum alifugla­vöru í tengslum við alvarlega fuglainflúensu.

 

2. gr.

Ofangreindar framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breyt­ingum.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. febrúar 2021.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica