Fjármálaráðuneyti

1012/2003

Reglugerð um viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa á Evrópska efnahagssvæðinu og samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup. - Brottfallin

1012/2003

REGLUGERÐ
um viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa á
Evrópska efnahagssvæðinu og samkvæmt samningi
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup.

1. gr.

Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 1. mgr. 56. gr. laga nr. 94/2001 um opinber innkaup, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir:

Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:

Vörukaup
13.422.320 kr.
Þjónusta
20.649.757 kr.
Verkframkvæmdir
516.243.832 kr.

Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:

Vörukaup
20.649.757 kr.
Þjónusta
20.649.757 kr.
Verkframkvæmdir
516.243.832 kr.

Viðmiðunarfjárhæð vegna kynningarauglýsingar á Evrópska efnahagssvæðinu vegna áætlaðra kaupa á einu ári er 77.436.589 kr.


2. gr.

Viðmiðunarfjárhæðir skv. 1. gr. reglugerðar þessarar gilda einnig um útboðsskyldu vegna innkaupa samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup sem Ísland er aðili að.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 8. gr. og 56. gr. laga nr. 94/2001 um opinber innkaup, með síðari breytingum, og tekur þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 513/2001 um viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa á Evrópska efnahagssvæðinu og samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup.


Fjármálaráðuneytinu, 23. desember 2003.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Stefán Jón Friðriksson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica