Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Stofnreglugerð

220/2013

Reglugerð um ráðstafanir til að takmarka áhrif tiltekinna sjúkdóma í lagareldisdýrum og villtum lagardýrum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í 1. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af 1. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 61/2011, frá 2. júlí 2011, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar frá 15. apríl 2010 um samþykki á landráðstöfunum til að takmarka áhrif tiltekinna sjúkdóma í lagareldisdýrum og villtum lagardýrum í samræmi við 43. gr. tilskipunar ráðsins 2006/88/EB (2010/221/ESB). Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14, frá 7. mars 2013, bls. 672.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 192/2012, frá 1. nóvember 2012, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar frá 8. desember 2011 um breytingu á ákvörðun 2010/221/ESB að því er varðar landráðstafanir til að koma í veg fyrir að tilteknir lagardýrasjúkdómar berist til hluta Írlands, Finnlands og Svíþjóðar (2011/825/ESB). Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14, frá 7. mars 2013, bls. 700.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli, lög nr. 55/1998 um sjávarafurðir, lög nr. 71/2008 um fiskeldi, lög nr. 54/1990 um innflutning dýra, lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lög nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum, nema annað sé ákveðið samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.

3. gr.

Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995 um matvæli, laga nr. 55/1998 um sjávarafurðir, laga nr. 71/2008 um fiskeldi, laga nr. 54/1990 um innflutning dýra, laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og laga nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 55/1998 um sjávarafurðir, lögum nr. 71/2008 um fiskeldi, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. mars 2013.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.