Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

215/2012

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 970/2011 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1082/2003 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1760/2000 að því er varðar lágmarkseftirlit sem fara skal fram í tengslum við kerfið fyrir auðkenningu og skráningu nautgripa.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 112/2011 frá 1. nóvember 2011 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1034/2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1082/2003 að því er varðar eftirlit varðandi kröfurnar fyrir auðkenningu og skráningu nautgripa.

2. gr.

Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 2. febrúar 2012, bls. 392.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 17. gr. laga nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl.

6. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 22. febrúar 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Indriði B. Ármannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica