Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Breytingareglugerð

209/2022

Reglugerð um breytingu á hafnarreglugerð nr. 1040/2018 fyrir hafnir Hafnarsjóðs Skagafjarðar.

1. gr.

8. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Þjónusta við skip er unnin af starfsmönnum Skagafjarðarhafna eða þeim sem falið hefur verið það verkefni samkvæmt samningum, í umboði hafnarstjóra. Skip skulu við komu, brottför og siglingu um hafnarsvæðið hafa opna talstöð á viðskiptabylgju hafnanna.

Skip sem er lengra en 70 metrar (mesta lengd) og skip sem flytja hættulegan varning, skulu taka hafnsögumann um borð við siglingu inn í, út úr eða um Sauðárkrókshöfn.

Sérhvert skip, sem ætlar til Sauðárkróks og nota vill hafnsögumann, skal gera boð um það til hafnarvarðar með minnst 3ja klst. fyrirvara.

Er hafnsögumanni skylt að fara til móts við skipið allt að ½ sjómílu út fyrir ystu mörk hafnarinnar, ef skipstjóri æskir þess.

Hafnsögumaður vísar skipinu leið til hafnar og má eigi yfirgefa það án samþykkis skipstjóra, fyrr en skipið er komið í viðlegu. Heimilt er hafnsögumanni meðan hann hefur ekki lokið starfi sínu að banna hverjum þeim sem ekki á lögmætt erindi að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð, ber skipinu að sjá honum fyrir fæði.

Hafnarstjóra, að fenginni umsögn yfirhafnsögumanns, er heimilt að veita skipstjóra skips, sem skylt er að lúta hafnsögu skv. þessari grein, undanþágu frá því að taka hafnsögumann um borð. Skilyrði undanþágu er mat yfirhafnsögumanns á hæfni skipstjóra til siglinga um hafnarsvæði Sauðárkrókshafnar. Synjun hafnarstjóra á undanþágu getur umsækjandi borið undir hafnarstjórn.

Undanþága frá hafnsögu skuldbindur viðkomandi skipstjóra til að hafa talstöðvarsamband við hafnsögumenn og hlíta í einu og öllu fyrirmælum þeirra, ella má svipta þá undanþágunni fyrirvaralaust.

Hafnarstjóri getur veitt undanþágu frá hafnsöguskyldu ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.

Höfnin veitir, meðal annars eftir atvikum, aðstoð dráttarbáta, sér um bindingu skipa, sölu og afgreiðslu vatns og rafmagns. Hafnsögumaður ákveður notkun báta og mannafla eftir aðstæðum hverju sinni.

Dráttarbátar Skagafjarðahafna eru í þjónustu og á ábyrgð þess skips er þeir aðstoða frá því þeir taka við taug eða fyrirmælum stjórnanda skipsins er aðstoðar nýtur og þar til taug er sleppt eða fyrirmæli gefin um að aðstoð sé lokið.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. gr. hafnalaga nr. 61/2003 og 17. gr. laga nr. 41/2003 um vaktstöð siglinga, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Innviðaráðuneytinu, 3. febrúar 2022.

Sigurður Ingi Jóhannsson
innviðaráðherra.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.