Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

209/2016

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 624/2004 um fæðubótarefni.

1. gr.

Eftirfarandi breyting er gerð á viðauka 2 við reglugerðina:

Í hluta A, Vítamín, bætist eftirfarandi lína við undir fyrirsögninni "10. FÓLAT":

- (6S)-5-metýltetrahýdrófólínsýra, glúkósamínsalt

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/414 frá 12. mars 2015 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/46/EB að því er varðar (6S)-5-metýltetrahýdrófólínsýru, glúkósamínsalt sem er notað við framleiðslu fæðubótarefna. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 2. mars 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.