Samgönguráðuneyti

205/2007

Reglugerð um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja. - Brottfallin

1. gr.

Markmið.

Markmiðið með reglugerð þessari er að auka öryggi í flugi með því að kveða á um tæknikröfur til fyrirtækja sem vinna við hönnun og framleiðslu á vörum, hlutum og búnaði, og að þau sanni getu sína og hæfni til að leysa af hendi þær skyldur sem tengjast réttindum þeirra. Jafnframt að réttbær yfirvöld samþykki ráðstafanir þar sem tilgreind eru skilyrði fyrir því að gefa út, viðhalda, breyta, ógilda tímabundið eða afturkalla vottorð sem staðfesta að þessar kröfur hafi verið uppfylltar.

2. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til sameiginlegra tæknikrafna og stjórnsýslumeðferðar fyrir lofthæfi- og umhverfisvottun framleiðsluvara, hluta og búnaðar er varða:

 

a)

útgáfu tegundarvottorða, takmarkaðra tegundarvottorða, viðbótartegundar­vottorða og breytinga á þessum vottorðum,

 

b)

útgáfu lofthæfivottorða, takmarkaðra lofthæfivottorða, flugleyfa og opinberra afhendingarvottorða (viðhaldsvottorða/framleiðsluvottorða),

 

c)

útgáfu samþykkis fyrir hönnun viðgerða,

 

d)

staðfestingu á að farið sé að umhverfisverndarkröfum,

 

e)

útgáfu hljóðstigsvottorða,

 

f)

auðkenni framleiðsluvara, hluta og búnaðar,

 

g)

vottun tiltekinna hluta og búnaðar,

 

h)

vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, og

 

i)

útgáfu lofthæfifyrirmæla.



3. gr.

Viðurlög.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða sektum eða fangelsi allt að 5 árum í samræmi við viðurlagaákvæði XIII. kafla laga nr. 60/1998 um loftferðir.

4. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir fram­kvæmda­stjórnarinnar með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1702/2003 um framkvæmdareglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, merkt fylgi­skjal I, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 16/2005 frá 8. febrúar 2005, sem birtist í 32. viðauka við EES-samninginn 23. júní 2005, bls. 22.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 381/2005 frá 7. mars 2005 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1702/2003 um fram­kvæmdareglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi fram­leiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslu­fyrirtækja, merkt fylgiskjal II, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 122/2005 frá 30. september 2005, sem birtist í 66. viðauka við EES-samninginn 22. desember 2005, bls. 17.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 706/2006 frá 8. maí 2006 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1702/2003 um fram­kvæmdareglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi fram­leiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslu­fyrirtækja, merkt fylgiskjal III, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 132/2006 frá 27. október 2006, sem birtist í 64. viðauka við EES-samninginn 21. desember 2006, bls. 4.

Reglugerðirnar eru birtar sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

5. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr., og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast gildi 15. mars 2007.

Samgönguráðuneytinu, 28. febrúar 2007.

Sturla Böðvarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica