Fjármálaráðuneyti

205/1998

Reglugerð um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.

I. KAFLI

Hlutverk.

1. gr.

                Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) er stofnun í eigu íslenska ríkisins og heyrir undir fjármálaráðherra.

2. gr.

                ÁTVR hefur með höndum eftirtalin verkefni:

a.             Innkaup á vínanda og áfengi.

b.             Birgðahald og dreifingu á áfengi til vínbúða.

c.             Sölu á vínanda og áfengi til framleiðenda áfengra drykkja, lækna og lyfsala og annarra sem rétt hafa til lyfjasölu svo og sölu á vínanda sem eldsneyti, til iðnaðar, efnarannsókna, náttúrugripasafna og annarra starfstengdra nota.

d.             Rekstur vínbúða.

e.             Innkaup, innflutning, heildsölu og dreifingu á tóbaki.

f.              Framleiðslu á neftóbaki.

3. gr.

                ÁTVR skal sinna verkefnum sem versluninni eru falin í 2. gr. í samræmi við lög nr. 63/1969, um verslun ríkisins með áfengi og tóbak, með síðari breytingum, áfengislög nr. 82/1969, með síðari breytingum og reglugerð þessa. Starfsemi ÁTVR skal miða við að hún sé sem hagkvæmust og afli tekna, sem nægi til að greiða rekstrarkostnað og skila arði sem telst hæfilegur, m.a. með tilliti til þeirra eigna sem bundnar eru í rekstri hennar.

II. KAFLI

Stjórn.

4. gr.

                Ráðherra skipar þrjá menn í stjórn ÁTVR til tveggja ára í senn og jafnmarga til vara. Ráðherra skipar formann og varaformann stjórnar og ákveður þóknun stjórnarmanna.

5. gr.

                Yfirstjórn ÁTVR er í höndum stjórnar í umboði ráðherra. Stjórnin markar stefnu og samþykkir starfsáætlun og rekstraráætlun hvers árs að fenginni tillögu forstjóra. Hún hefur eftirlit með rekstri. Hún kynnir ráðherra starfsáætlun, rekstraráætlun og skýrslu forstjóra um starfsemi og afkomu ÁTVR.

6. gr.

                Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi með a.m.k. einnar viku fyrirvara. Fundir stjórnar eru lögmætir ef a.m.k. tveir stjórnarmanna eru á fundinum. Ákvarðanir stjórnar skulu færðar til bókar. Forstjóri ÁTVR situr fundi stjórnar með málfrelsi og tillögurétt.

7. gr.

                Rísi ágreiningur á stjórnarfundi um afgreiðslu einstakra mála sem stjórnin fjallar um, getur hver stjórnarmanna eða forstjóri óskað þess að málið verði lagt fyrir ráðherra.

8. gr.

                Ráðherra skipar forstjóra ÁTVR. Forstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri. Hann ræður starfsfólk og ákveður starfssvið þess í samræmi við þarfir verslunarinnar. Hann ber ábyrgð á bókhaldi og fjárreiðum, semur starfsáætlun og rekstraráætlun fyrir hvert ár í samráði við stjórnina og leggur þær fyrir stjórnina til samþykktar. Hann semur árlega skýrslu um starfsemi og afkomu og kynnir stjórninni hana. Hann sér um framkvæmd þeirra mála sem stjórnin felur honum og kemur fram út á við fyrir hönd ÁTVR.

III. KAFLI

Deildaskipting.

9. gr.

                ÁTVR starfar í tveimur deildum, smásöludeild og heildsöludeild. Starfsemi deildanna skal aðskilin rekstrarlega og fjárhagslega.

                Heildsöludeild ÁTVR leigir húsnæði af smásöludeild er skal afmarkað frá húsnæði smásöludeildar. Heildsöludeild kaupir þjónustu af smásöludeild við töku afrita af tölvufærslu og greiðir smásöludeild hlutdeild í launum forstjóra, staðgengils hans og aðalbókara samkvæmt mati Ríkisendurskoðunar.

                Heildsöludeild samnýtir eigi tæki, búnað eða þjónustu með smásöludeild umfram það sem um getur í 2. mgr., nema gegn sérstaklega umsaminni þóknun.

                Reikningshald deildanna skal vera aðgreint og fært í samræmi við meginreglur laga um ársreikninga. Ársreikningar deildanna skulu birtir með ársreikningi ÁTVR. Niðurstöðutölur efnahags- og rekstrarreiknings hvorrar deildar um sig skulu færðar inn í ársreikning ÁTVR og skilað með skilagrein ÁTVR til Ríkisbókhalds. Deildirnar skila hvor um sig virðisaukaskatti sem sjálfstæður skattaðili.

IV. KAFLI

Smásöludeild.

10. gr.

                Smásöludeild ÁTVR hefur með höndum eftirtalin verkefni:

a.             Rekstur vínbúða.

b.             Birgðahald og dreifingu á áfengi til vínbúða.

c.             Innkaup á áfengi í samræmi við reglur um vöruval.

d.             Þjónustu við heildsöludeild, eftir því sem við á, sbr. 4. mgr. 29. gr.

11. gr.

                Smásöludeild skal sinna þeim verkefnum sem henni eru falin með það að markmiði að starfsemi deildarinnar sé sem hagkvæmust. Söluálagningu skal miða við að deildin afli tekna, sem nægi til að greiða rekstrarkostnað hennar og skila arði sem telst hæfilegur, m.a. með tilliti til þeirra eigna sem bundnar eru í rekstri hennar.

Innkaup á áfengi.

12. gr.

                Smásöludeild tekur ákvarðanir um innkaup á áfengi. Ákvarðanirnar skulu byggjast á reglum um vöruval, sbr. 13.-20. gr., og reglum um birgðahald sem stjórn setur.

                Hagkvæmnissjónarmið skulu ráða því af hvaða aðila áfengi er keypt og skal tilboða leitað í innkaup til sölu í kjarna eftir því sem við á.

                Við mat á hagkvæmni innkaupa skal miðað við afhendingarverð inn á geymslusvæði smásöludeildar í Reykjavík. Þó er heimilt að semja sérstaklega um afhendingu áfengis á öðrum stöðum, sé það hagkvæmt að mati ÁTVR og leiði ekki til hækkunar á dreifingarkostnaði smásöludeildar.

Vöruval.

13. gr.

                Stjórn ÁTVR skal setja sérstakar reglur um val á vöru til sölu í vínbúðum. Reglurnar skulu annars vegar miða að því að tryggja vöruúrval með hliðsjón af eftirspurn kaupenda og hins vegar að því að tryggja framleiðendum og birgjum áfengis möguleika á að koma vörum í sölu í vínbúðum. Reglurnar skulu hljóta staðfestingu ráðherra og birtar í Stjórnartíðindum.

14. gr.

                Í vöruvalsreglum ÁTVR skal sölutegundum áfengis, sem ÁTVR hefur á boðstólum, skipt í eftirtalda söluflokka eftir sölumeðferð: kjarna, reynsluflokk, mánaðarflokk, sérflokk og sérpantanir. Áfengi í kjarna og í reynsluflokki skal einnig skipt upp í vöruflokka eftir þeim megineinkennum sem áfengið hefur vegna framleiðsluaðferða eða hráefnis sem notað var við framleiðsluna. Heimilt er að skipta einstökum vöruflokkum frekar upp, t.d. eftir útsöluverði. Einnig er heimilt að kveða á um hámarksstærð og lágmarksstærð umbúða sölutegunda í einstökum vöruflokkum.

15. gr.

                Þær sölutegundir áfengis, sem skráðar eru til almennrar ótímabundinnar sölu í flestum vínbúðum ÁTVR hverju sinni eru í kjarna. Í kjarna skal bæta þeim sölutegundum sem færast upp úr reynsluflokki hverju sinni, sbr. 16. gr. Nái sölutegund í kjarna ekki tilteknu hlutfalli af heildarsölu sölutegunda í sama vöruflokki á tilteknu sölutímabili, skal hún falla úr kjarna og skal þá ekki keypt inn að nýju þegar birgðir hennar þrjóta. Með heildarsölu er átt við samanlagða sölu í þeim vínbúðum sem hafa falar allar tegundir í kjarna, að frátalinni sölu á vöru í mánaðarflokki, sérflokki, sérpöntunum og sölu skv. 2. mgr. 25. gr.

                Ef tvær eða fleiri sölutegundir sömu áfengistegundar eru boðnar til sölu og hvorug eða engin þeirra nær áskildu söluhlutfalli, en samanlögð sala áfengistegundar nær söluhlutfallinu, þá skal sú sölutegund, sem mest hefur selst, haldast áfram í kjarna, en aðrar sölutegundir skulu falla úr kjarna.

                Í vöruvalsreglum ÁTVR skal kveðið á um söluhlutfall skv. 1. og 2. mgr.

16. gr.

                ÁTVR skal á hverjum tíma selja tímabundið og til reynslu sölutegundir, sem ekki hafa áunnið sér rétt til sölu í kjarna. Sölutegundir sem seldar eru með þessum hætti flokkast í reynsluflokk. Í vöruvalsreglum ÁTVR skal kveðið nánar á um sölu áfengis í reynsluflokki, m.a. um sölustaði, sölutímabil, söluhlutfall sem sölutegund í reynsluflokki þarf að ná til að færast í kjarna og val á áfengistegundum til reynslusölu.

17. gr.

                ÁTVR getur haft til sölu í vínbúðum sínum áfengistegundir, sem hvorki eru í kjarna né reynsluflokki, ef þær eru sérstaklega ætlaðar til sölu á ákveðnum árstímum, enda séu þær að innihaldi frábrugðnar öðrum áfengistegundum frá sama áfengisframleiðanda og hefð fyrir sölu þeirra á ákveðnum árstíma. Þær áfengistegundir sem boðnar eru til sölu með þessum hætti skulu flokkast í mánaðarflokk. Þær skulu ekki vera lengur til sölu en í sex vikur samfellt.

18. gr.

                Auk vöru í kjarna, reynsluflokki og mánaðarflokki getur ÁTVR haft á boðstólum í einni eða fleiri vínbúðum sínum áfengistegundir, sem ekki teljast til þessara flokka, en nauðsynlegt þykir að bjóða til sölu til að tryggja viðunandi fjölbreytni í vöruúrvali og þjóna eftirspurn kaupenda. Áfengistegundir seldar með þessum hætti skulu flokkast í sérflokk.

19. gr.

                ÁTVR skal halda uppi pöntunarþjónustu á áfengi, sem ekki er boðið til sölu skv. ákvæðum 15.-18. gr. M.a. skulu áfengisbirgjar eiga þess kost að skrá vörur sínar í pöntunarlista ÁTVR, sem liggja skal frammi í vínbúðum. Með skráningu í pöntunarlista skuldbinda birgjar sig til afgreiðslu á pöntunum til ÁTVR innan tiltekinna tímamarka á föstu verði og taka ábyrgð á seldri vöru.

                Í vöruvalsreglum skal nánar kveðið á um sölu áfengis í pöntunarþjónustu, m.a. um verðlagningu og söluskilmála.

20. gr.

                Vöruvalsreglur skulu endurskoðaðar fyrir 1. mars ár hvert í ljósi fenginnar reynslu og í því skyni að ná fram markmiðum þeim er fram koma í 13. gr. Að lokinni endurskoðun hverju sinni skulu reglurnar staðfestar af ráðherra á ný og birtar í heild.

Birgðahald og dreifing.

21. gr.

                Smásöludeild skal halda birgðir fyrir áfengi eftir því sem nauðsynlegt reynist til að þjónusta vínbúðir. Skal birgðahald hverrar sölutegundar miðað við það sem hagkvæmt er með tilliti til aðfangakostnaðar og geymslukostnaðar, þ.m.t. fjárbindingar í birgðum.

                Smásöludeild annast dreifingu á áfengi frá geymslusvæði ÁTVR til vínbúða.

Vínbúðir.

22. gr.

                Smásöludeild ÁTVR rekur vínbúðir, þar sem áfengi er selt í smásölu.

                Ákvarðanir er varða rekstur á einstökum vínbúðum, t.d. um afgreiðslutíma, mannahald o.fl. skulu teknar með hliðsjón af því, hvað er hagkvæmt á hverjum stað.

23. gr.

                Komi fram tillaga eða ósk um opnun vínbúðar frá sveitarstjórn, skal stjórn ÁTVR gera ráðherra grein fyrir afstöðu sinni og ráðherra síðan taka endanlega ákvörðun í málinu. Stjórn ÁTVR getur einnig átt frumkvæði að tillögugerð til ráðherra um opnun, lokun eða flutning vínbúðar.

Smásöluálagning og smásöluverð.

24. gr.

                Verð á einstökum sölutegundum áfengis skal vera hið sama í öllum vínbúðum ÁTVR.

25. gr.

                Verð á áfengi frá vínbúð skal ákveðið þannig að við afhendingarverð frá birgjum skal bætt kostnaði við birgðahald. Við þannig ákveðið kostnaðarverð skal bætt álagningu, sem ákveðin er með tilliti til kostnaðar smásöludeildar og þess að hún skili arði eins og kveðið er á um í 11. gr. Álagningarhlutfallið skal vera hið sama innan hvers álagningarflokks, sbr. 26. gr.

                Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er ÁTVR heimilt að lækka tímabundið smásöluverð vöru sem felld hefur verið úr kjarna, sbr. 15. gr.

26. gr.

                Við ákvörðun álagningarhlutfalla skv. 1. mgr. 25. gr. skal áfengi skipt upp í þrjá álagningarflokka, öl, léttvín og aðra áfenga drykki. Hverjum álagningarflokki má skipta upp í undirflokka eftir sölumagni, veltuhraða og eðli vöru. Skal álagning reiknuð fyrir hvern undirflokk um sig og vera hin sama fyrir allar sölutegundir innan hans.

27. gr.

                Við sölu á áfengi sem undanþegið er áfengisgjaldi eða ber lækkað áfengisgjald skv. 7. gr. laga nr. 96/1995, um gjald af áfengi, sbr. 13.-16. gr. reglugerðar nr. 477/1995, um áfengisgjald, skal álagning ÁTVR vera hin sama í krónum talin og við sölu á gjaldskyldu áfengi.

V. KAFLI

Heildsöludeild.

28. gr.

                Heildsöludeild hefur með höndum eftirtalin verkefni:

a.             Innkaup, innflutning, heildsölu og dreifingu á tóbaki.

b.             Framleiðslu á neftóbaki.

c.             Sölu á vínanda og áfengi til framleiðenda áfengra drykkja, lækna og lyfsala og annarra sem rétt hafa til lyfjasölu svo og sölu á vínanda sem eldsneyti, til iðnaðar, efnarannsókna, náttúrugripasafna og annarra starfstengdra nota.

d.             Sölu á áfengi til þeirra sem hafa áfengisheildsöluleyfi eða leyfi til vínveitinga.

29. gr.

                Heildsöludeild skal sinna þeim verkefnum sem henni eru falin með það að markmiði að starfsemi deildarinnar sé sem hagkvæmust.

                Verð á tóbaki sem heildsöludeild selur skal ákveðið með reglum sem fjármálaráðuneytið setur. Verð á neftóbaki sem heildsöludeild framleiðir og selur skal ákveðið með sama hætti.

                Verð á áfengi og vínanda sem heildsöludeild selur, sbr. c- og d- liðir 28. gr., skal ákvarðað í samræmi við verðlagningarreglur smásöludeildarinnar.

                Smásöludeild skal þjónusta heildsöludeild hvað einstök framkvæmdaatriði varðar, eftir því sem hagkvæmt er talið, s.s. innkaup, birgðahald, dreifingu og afhendingu vöru.

VI. KAFLI

Ýmis ákvæði.

30. gr.

                Stjórnarmenn, forstjóri og allir starfsmenn ÁTVR eru bundnir þagnarskyldu um öll þau atriði er þeir fá vitneskju um í starfi og leynt skulu fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.

31. gr.

                Reikningsár ÁTVR er almanaksárið. Um bókhald, gerð ársreiknings og endurskoðun gilda lög nr. 145/1994, um bókhald, og eftir því sem við geta átt lög nr. 52/1966, um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga, og lög nr. 12/1986, um ríkisendurskoðun. Ráðherra staðfestir ársreikning að lokinni endurskoðun.

32. gr.

                Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum nr. 63/1969, með síðari breytingum, öðlast gildi 15. maí 1998. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 607/1995, um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, með síðari breytingum.

Fjármálaráðuneytinu, 3. apríl 1998.

Friðrik Sophusson.

Bergþór Magnússon.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica