Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 9. des. 2021

202/2007

Reglugerð um flokkun loftfara og lofthæfivottorða.

1. gr. Markmið.

Markmið þessarar reglugerð er að tengja saman fyrirliggjandi reglugerðir um lofthæfi og veita yfirsýn yfir flokka loftfara og lofthæfivottorða sem gefin eru út af Flugmálastjórn Íslands.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til loftfara sem skráð eru á Íslandi.

3. gr. Orðskýringar.

Eftirfarandi orð skulu hafa eftirfarandi merkingu í reglugerð þessari:

EASA-reglugerðin: Reglugerð nr. 812/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um sameiginlegar reglur um almenningsflug og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu, EASA, sem innleiðir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu og niðurfellingu tilskipunar ráðsins nr. 91/670/EBE, reglugerð (EB) nr. 1592/2002 og tilskipun 2004/36/EB.

4. gr. Flokkun loftfara.

Loftför eru flokkuð með eftirfarandi hætti:

  1. Loftför sem falla undir gildissvið EASA-reglugerðarinnar.
    1. Loftför sem talin eru upp í viðauka II við fylgiskjal I við EASA-reglugerðina. Um er að ræða loftför sem ekki hafa fengið tegundavottorð eða lofthæfivottorð á grundvelli EASA-reglugerðarinnar og reglna um framkvæmd hennar.
    2. Loftför sem ekki falla undir gildissvið EASA-reglugerðarinnar; þ.e. loftför hers, tolls og lögreglu eða sambærilegra aðila sem nýta sér loftför, hreyfla og loftskrúfur og íhluti þeirra og búnað.
    3. Loftför sem Flugöryggisstofnun Evrópu hefur lýst yfir að falli ekki undir gildissvið EASA-reglugerðarinnar tímabundið.

5. gr. Nánari flokkun EASA-loftfara.

Flokkar loftfara sem falla undir gildissvið EASA-reglugerðarinnar:

  1. Mjög léttar flugvélar (Very Light Aeroplanes - CS-VLA).
  2. Léttar sportflugvélar (Light Sport Aeroplanes - CS-LSA)
  3. Litlar flugvélar (Small Aeroplanes - CS-23).
  4. Stórar flugvélar (Large Aeroplanes - CS-25).
  5. Mjög léttar þyrilvængjur (Very Light Rotorcraft - CS-VLR).
  6. Lítil þyrla (Small Rotorcraft - CS-27).
  7. Stór þyrla (Large Rotorcraft - CS-29).
  8. Svifflug / Mótorsvifflug (Sailplanes / Powered Sailplanes - CS-22).
  9. Loftbelgir (Baloons - CS-31TGB, CS-31HB, CS-31GB).
  10. Loftskip (Airship).

Nánari skilgreining og afmörkun á hverjum flokki loftfara er í vottunarkröfum Flugöryggisstofnunar Evrópu (CS) sem eru aðgengilegar á heimasíðu stofnunarinnar, www.easa.europa.eu.

Litlar flugvélar geta verið vottaðar með vísan til notkunar í normal-flokki, nytja-flokki (e. utility), og listflugs-flokki (e. aerobatic) eða í einum eða fleiri flokkum ef kröfum í hverjum flokki er fullnægt.

6. gr. Lofthæfivottorð.

Lofthæfivottorð eru flokkuð með eftirfarandi hætti:

A. Loftför sem falla undir gildissvið EASA-reglugerðarinnar, sbr. 1. lið 1. mgr. 4. gr. B. Loftför skv. 2. lið 1. mgr. 4. gr.
Lofthæfivottorð Heimild til starfrækslu loftfars
Lofthæfivottorð, sem gefin eru út fyrir loftför sem samræmast tegundavottorði sem gefið hefur verið út í samræmi við reglugerðir. A. Takmarkað flugleyfi. Heimild sem gefin er út fyrir loftför sem ekki fullnægja viðeigandi vottunarforskriftum, ef sýnt hefur verið fram á að hægt sé að fljúga loftfarinu á öruggan hátt.
Takmarkað lofthæfivottorð, sem gefin eru út fyrir loftför sem
- samræmast takmörkuðu tegundavottorði, eða
- sem Flugöryggisstofnun Evrópu hefur verið sýnt fram á að uppfylli ákvæði tilgreindra vottunarforskrifta sem tryggja fullnægjandi öryggi.
B. Heimasmíði. Heimild sem gefin er út fyrir loftför sem teljast heimasmíðuð samkvæmt gildandi reglugerð um heimasmíði loftfara.
Flugleyfi, sem gefin eru út fyrir loftför sem uppfylla ekki eða ekki hefur verið sýnt fram á að uppfylli viðeigandi vottunarforskriftir en geta flogið örugglega við tilteknar aðstæður. C. Sérstök loftför. Heimild sem gefin er út fyrir loftför sem eru verksmiðjuframleidd samkvæmt forskrift eða staðli sem ekki er viðurkennd af Flugöryggisstofnun Evrópu.
- Með því að uppfylla fastákveðnar eða sérstaklega viðurkenndar lofthæfikröfur hafa þessi loftför náð fullnægjandi lofthæfi með hliðsjón að fyrirhugaðri notkun; eða
- Loftfarið hefur áður verið skráð í öðrum flokkum en er starfrækt við önnur skilyrði en þau sem upphaflega voru lögð til grundvallar við skráningu; eða
- Loftfarið var upphaflega hannað til notkunar í hernaði.

D. Lofthæfivottorð.

Loftför með lofthæfivottorð sem gefin eru út fyrir loftför sem fullnægja kröfum viðauka 8 við Chicago-samninginn, framleidd eru af viðurkenndum framleiðanda og Samgöngustofa metur gild.

Fyrir alla flokka sérstakra lofthæfivottorða skal rita á bakhlið vottorðsins rekstrartakmarkanir. Tilgreina skal allar takmarkanir á starfrækslu loftfarsins.

Í sérhverju loftfari með útgefið sérstakt lofthæfivottorð skal sérstöku skilti með eftirfarandi upplýsingum komið fyrir í stjórnklefa eða farþegarými loftfarsins þannig að farþegar og flugáhafnir sjái vel texta þess: "Þetta loftfar uppfyllir ekki kröfur um almennt lofthæfivottorð en hefur þess í stað sérstakt lofthæfivottorð með rekstrartakmörkunum."

7. gr. Viðurlög.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu samkvæmt 141. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum.

8. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 12. gr., 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast gildi 15. mars 2007. Samhliða fellur úr gildi reglugerð um flokkun loftfara nr. 281/1980 með síðari breytingum.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.