Fara beint í efnið

Prentað þann 6. maí 2024

Breytingareglugerð

198/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð um Jafnréttisráð – samráðsvettvang um jafnrétti kynjanna, nr. 460/2021.

1. gr.

Í stað orðanna "1. mars" í 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. desember.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 33. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, sbr. 24. gr. sömu laga, öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 6. febrúar 2024.

Katrín Jakobsdóttir.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.