Félagsmálaráðuneyti

823/2004

Reglugerð um breytingu á reglugerð, nr. 521/2004, um lánshlutfall og hámarksfjárhæð ÍLS-veðbréfa, með síðari breytingum. - Brottfallin

823/2004

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð, nr. 521/2004,
um lánshlutfall og hámarksfjárhæð ÍLS-veðbréfa, með síðari breytingum.

1. gr.

Í stað orðanna "Uppfærð áhvílandi ÍLS-veðbréf og fasteignaveðbréf, sem skipt hefur verið fyrir húsbréf" í 3. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: Uppfærð áhvílandi lán Íbúðalánasjóðs.


2. gr.

Í stað orðanna "áhvílandi ÍLS-veðbréfa og fasteignaveðbréfa, sem skipt hefur verið fyrir húsbréf" í 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: áhvílandi lána Íbúðalánasjóðs.


3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 19. gr. og 29. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Lánsumsóknir sem berast sjóðnum fyrir gildistöku reglugerðarinnar skulu afgreiddar á grundvelli 3. og 4. gr. reglugerðar nr. 521/2004.


Félagsmálaráðuneytinu, 14. október 2004.

Árni Magnússon.
Guðjón Bragason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica