Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

183/2012

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 972/2011 um framkvæmd viðurlaga í tengslum við kerfi um auðkenningu og skráningu nautgripa samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1760/2000.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 112/2011 frá 1. janúar 2011 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1053/2010 frá 18. nóvember 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 494/98 að því er varðar stjórnsýsluviðurlög í þeim tilvikum þar sem ekki er hægt að sannreyna auðkenni dýra.

2. gr.

Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 2. febrúar 2012, bls. 131.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 17. gr. laga nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl., og 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

6. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. febrúar 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Indriði B. Ármannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica