Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

180/2012

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 141/2007, um kröfu varðandi samþykki, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 183/2005, fyrir starfsstöðvum fóðurfyrirtækja sem framleiða eða setja á markað aukefni í fóðri sem er í flokknum hníslalyf og vefsvipungalyf.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla í I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2007, frá 7. júlí 2007, öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 141/2007, um kröfu varðandi samþykki, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 183/2005, fyrir starfsstöðvum fóðurfyrirtækja sem framleiða eða setja á markað aukefni í fóðri sem er í flokknum hníslalyf og vefsvipungalyf.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 141/2007 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. febrúar 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Indriði B. Ármannsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.