Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

179/2013

Reglugerð um breytingu á reglugerð um sameiginlegar reglur um almenningsflug og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu nr. 812/2012.

1. gr.

Við 3. gr. bætist ný stafliður, sem orðist svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 690/2009 frá 30. júlí 2009 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu og niðurfellingu tilskipunar ráðsins 91/670/EBE, reglugerðar (EB) nr. 1592/2002 og tilskipunar 2004/36/EB, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 59, 18. október 2012, bls. 45, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 164/2011 frá 19. desember 2011, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 15, 15. mars 2012, bls. 63.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., 136. gr. a og 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 13. febrúar 2013.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.