Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

176/2020

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 963/2019, um veiðar með dragnót við Ísland.

1. gr.

1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Veiðar með dragnót eru óheimilar allt árið innan línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 64°04,90´N - 22°41,40´V Garðskagaviti
  2. 64°44,50´N - 23°38,50´V Hellnanes

2. gr.

13. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Veiðar með dragnót eru óheimilar allt árið innan línu sem dregin er réttvísandi vestur/austur um Hríseyjarvita milli eftirfarandi hnita:

  1. 66°01,09´N - 18°30,55´V
  2. 66°01,09´N - 18°16,75´V

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, til þess að öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. febrúar 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.