Félagsmálaráðuneyti

941/2000

Reglugerð um hlut Vinnueftirlits ríkisins í tryggingagjaldi launagreiðenda á árinu 2001. - Brottfallin

941/2000

REGLUGERÐ
um hlut Vinnueftirlits ríkisins í tryggingagjaldi launagreiðenda á árinu 2001.

1. gr.

Vinnueftirlit ríkisins fær á árinu 2001 í sinn hlut til að standa straum af kostnaði vegna framkvæmdar laga nr. 46/1980 0,048% af gjaldstofni tryggingagjalds, sem er allar tegundir launa eða þóknunar fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskylt er skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 75/1981.


2. gr.

Reglugerð þessi sem er sett samkvæmt 1. tölul. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 113/1990 öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 60/1991, um hlut Vinnueftirlits ríkisins í tryggingagjaldi launagreiðenda, með síðari breytingum.


Félagsmálaráðuneytinu, 21. desember 2000.

Páll Pétursson.
Elín Blöndal.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica